Gátt - 2010, Blaðsíða 14

Gátt - 2010, Blaðsíða 14
14 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S g á T T – á R S R I T – 2 0 1 0 gefnum hugmyndum um gildi þátttöku í skipulagðri fræðslu og merkingu hugtaksins þátttöku yfirleitt, of sjaldan séu ein- staklingar skoðaðir í félagslegu samhengi sínu og gengið sé út frá því að allir bíði spenntir eftir að komast á námskeið. Jim Crowther (2000) bendir á að umræðan í samfélaginu mótar hugmyndir okkar og þekkingu. Orðræðan um full- orðna námsmenn inniheldur ekki annað hvort réttar eða rangar fullyrðingar um af hverju fullorðnir taka þátt og af hverju ekki, heldur skapar hún skilning okkar á því hvað telst til þátttöku og hvað ekki. Hún skapar ákveðið sjónarhorn sem beinir þekkingu okkar og skilningi í ákveðinn farveg en á sama tíma útilokar orðræðan annan skilning á viðfangs- efninu, til dæmis að það séu einstaklingar í samfélaginu sem beinlínis hafa ekki áhuga á að leggja stund á nám eða taka þátt í fullorðinsfræðslu og telja í einlægni að nám gagnist þeim ekki. Paladanius (2007) lýsir því til dæmis hvernig atvinnulausir verkamenn líta á skóla sem leiðinlega og til- gangslausa daggæslu fyrir ómálga einstaklinga. Fullorðnir séu sjálfráða, vinni og skapi, þannig að þátttaka í fræðslu er greinilega ekki í samræmi við hugmyndir þeirra um það sem fullorðnir gera. Paladanius varð einnig var við að þeir kusu frekar eigin reynslu sem aðferð til að ná tökum á nýjungum en lestur, hlustun, íhugun og umræður eins og þekkist á námskeiðum. Þannig er ljóst að orðræðan um þátttöku er ekki endilega sú sama meðal þeirra sem móta umræðuna um fræðslu og þeirra sem eiga að njóta hennar. „ Þ á T T T A K A E R g ó Ð “ Umræðan um fullorðinsfræðslu endurspeglar oft það við- horf að þátttaka í fræðslu sé góð, að tilgangur eða mark- mið hennar sé að ráða bót á ætluðum skorti hjá fólki. Þá er gengið út frá því að nám og fræðsla sé eitthvað jákvætt, eitt- hvað sem bæti líf okkar og eitthvað sem við eigum að hafa aðgang að í gegnum allt lífið. Það kemur því ekki á óvart að í rannsóknum á þátttöku í fullorðinsfræðslu sé gengið út frá þessari sýn. Þegar kemur að því að bregðast við fjarveru ákveðinna hópa frá fræðslu er gjarnan reynt að finna leiðir til að hvetja fólk til þátttöku í fræðslutilboðum sem þegar eru fyrir hendi í stað þess að endurskoða þá fræðslu sem því stendur til boða (Crowther, 2000). Starfsmaður símenntunar- miðstöðvar orðar þetta þannig: „Þetta eru ekki menn sem að myndu koma þó við myndum auglýsa einhver flott námskeið þar sem ætti að efla þá í færni við að fara á vinnumarkað- inn … þeir myndu ekki láta sjá sig. Þannig að við stöndum svolítið frammi fyrir því hvernig getum við mótiverað þennan hóp“. Illeris (2004) bendir á að rannsóknir á fullorðinsfræðslu sýni að ævimenntun getur ekki alltaf uppfyllt þá mynd sem kemur fram í stefnuplöggum OECD, UNESCO og ESB. Þannig er þátttaka í skipulagðri fræðslu ekki endilega ávísun á betra líf fyrir alla og nám er ekki alltaf skemmtilegt, auðgandi og frelsandi fyrirbæri. F R Æ Ð S L A E R E K K I b A R A N á M - S K E I Ð Þegar umræðan um nám og fræðslu fullorðinna ber á góma, er ekki laust við að helst sé rætt um þátttöku fullorðinna í námskeiðum. Starfssemi fræðslustofnana snýst að mestu leyti um það að skipuleggja og bjóða alls konar námskeið fremur en að styðja við nám eða menntun fólks á allan mögulegan hátt. Þá er algengt að almenningur vanmeti eigin þekkingu og færni þar sem hennar hefur ekki verið aflað í formlegu námssamhengi. Rannsóknir á þátttöku bera og vott um það hversu námskeið eru miðlæg í allri hugsun okkar um nám og fræðslu fullorðinna (Crowther, 2000). Viðhorf til náms og fræðslu fullorðinna eru aftur á móti að breytast og sjónarhorn að víkka. Gott dæmi um það má sjá í orðum starfsmanns símenntunarmiðstöðvar: „…þegar þeir voru að koma hérna á námskeið þá bað ég þá um að koma með skírteinin sín og sko við erum oft að tala um heilu möppurnar. Þannig að það er ekkert hægt að segja að þeir hafi verið ómenntaðir, þeir voru bara menntaðir inn í ákveðin störf“. Svipuð viðhorf má sjá hjá Tight (1998) sem bendir á að það sé erfitt að finna einhvern sem hafi ekki á virkan hátt verið að læra eitthvað. Með öðrum orðum, fólk er alltaf að læra eitthvað í daglegu amstri sínu í gegnum allt lífið. Að hans áliti ætti lykilspurningin ekki að vera hvort fólk sé að taka þátt eða ekki, heldur hversu mikið og í hvers konar fræðslu. Við sjálf, höfundar þessarar greinar, myndum jafnvel vilja bæta við spurningunum: Hvað gerir fólk til þess að auka þekkingu og færni sína? Og svo: Hvað geta fræðsluaðilar gert til að hjálpa því?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Gátt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.