Gátt - 2010, Blaðsíða 38

Gátt - 2010, Blaðsíða 38
38 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S g á T T – á R S R I T – 2 0 1 0 ungs fólks, þar sem stærstur hluti hópsins hefur ekki lokið námi eftir grunnskóla. Menntunarstig ungra atvinnuleitenda er með þeim hætti að u.þ.b. 75% hafa ekki lokið námi eftir grunnskóla. Það má ætla að atvinnuástandið nú gæti dregið úr hvata til að hætta námi en það leiðir vonandi til þess að fleiri ljúka námi. Menntun hefur áhrif á möguleika einstaklings á vinnumarkaði og félagslega stöðu hans. Með aukinni menntun aukast líkur á samfélagslegri virkni, möguleikar á vinnumarkaði aukast, líkur á hærri launum og betri heilsu og um leið dregur úr líkum á atvinnuleysi. Í ljósi þessa ætti það að vera forgangsverkefni að berjast gegn ótímabæru brottfalli úr framhaldsskóla. Í því sambandi er afar mikilvægt að menntamálayfirvöld og félagsmálayfirvöld taki höndum saman. Leggja þarf mikla áherslu á forvarnir inni í skólunum annars vegar og hins vegar þurfa vinnumarkaðsaðgerðir, sem beinast að ungu atvinnulausu fólki, að leggja áherslu á að beina því í nám að nýju. Afleiðingar atvinnuleysis og þá sérstaklega lang- tímaatvinnuleysis eru taldar hvað alvarlegastar fyrir ungt fólk. Gögn frá ýmsum löndum sýna að aldurshópar, sem koma út á vinnumarkað í erfiðu atvinnuástandi, eru almennt með hærra atvinnuleysishlutfall en aðrir starfsævina á enda (Schröder, 1994). Í ljósi þessa tóku íslensk stjórnvöld þá ákvörðun að bregðast við vaxandi atvinnuleysi meðal ungs fólks með því að skipa starfshóp tveggja ráðuneyta, sem fékk það verkefni að kortleggja stöðuna og safna saman upplýsingum um unga atvinnuleitendur og aðstæður þeirra ásamt því að leggja fram tillögur um virkniaðgerðir. Hópurinn skilaði skýrslu í nóvember 2009 þar sem m.a. var lagt til að: Ungir atvinnuleitendur 18–24 ára þurfa ráðgjöf og • stuðning ásamt því að hafa hlutverk í samfélaginu. Óvirkni getur haft svipaðar afleiðingar og í Finnlandi • upp úr 1990 þar sem talað er um týndu kynslóðina með þeim alvarlegu afleiðingum sem það hafði fyrir einstaklingana og samfélagið allt. (Einstaklingar sem hvorki eru skráðir í skóla né á átvinnuleysisskrá tilheyra hinni svokölluðu týndu kynslóð í Finnlandi; athugasemd ritstjórnar.) Megintilgangur með aðgerðum gegn atvinnuleysi ungs • fólks ætti að vera að virkja það og hvetja til þátttöku í námi og sjálfboðaliðastörfum og í raun ætti allt annað að vera í boði en að vera óvirkur á bótum (Félagsmála- ráðuneytið, 2009). á T A K S V E R K E F N I Ð „ U N g T F ó L K T I L A T H A F N A “ Á grundvelli skýrslu starfshópsins ýtti félags- og trygginga- málaráðuneytið úr vör þann 1. janúar sl. átakinu „Ungt fólk til athafna“. Markmið þess var að tryggja öllu ungu fólki 16–24 ára virkniúrræði innan þriggja mánaða frá atvinnumissi og skyldi því náð fyrir 1. apríl 2010. Alþingi samþykkti að verja 600 milljónum til átaksins. Vinnumálastofnun var falin framkvæmd verkefnisins og á höfuðborgarsvæðinu var opnuð skrifstofa á Suðurlandsbraut 22 undir merkjum átaksins. Annars staðar á landinu sáu þjónustuskrifstofur VMST um framkvæmdina. Tíu nýjum ráðgjöfum var bætt við starfsmannahóp Vinnumála- stofnunar til að sinna verkefninu. Við upphaf átaksins voru atvinnulaus ungmenni rúmlega 3.000 á landinu öllu, flest á höfuðborgarsvæðinu eða rúmlega 2.000. Grunnskóli Starfst. framh. Iðnnám Stúdentspróf Háskólanám 2.307; 74% 75; 3% 191; 6% 463; 15% 68; 2% Grunnskóli Starfst. framh. Iðnnám Stúdentspróf Háskólan m 2.307; 74% 75; 3% 191; 6% 463; 15% 68; 2% Mynd 4. Ungir atvinnuleitendur – Námsleg staða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Gátt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.