Gátt - 2010, Blaðsíða 47
47
R á Ð g j Ö F o g R A U N F Æ R N I M A T
g á T T – á R S R I T – 2 0 1 0
R á Ð g j Ö F á V I N N U S T Ö Ð U M Í
K j Ö L F A R b R E Y T I N g A
Í kjölfar mikilla breytinga í íslensku samfélagi og á vinnu-
markaði haustið 2008 fundu ráðgjafar Mímis fyrir meiri áhuga
fyrirtækja og stofnana gagnvart verkefninu Náms- og starfs-
ráðgjöf á vinnustað. Þá fjölgaði starfsmönnum sem nýttu sér
einstaklingsráðgjöf að loknum kynningum. Nokkur fyrirtæki
óskuðu eftir að fá verkefnið á vinnustað í kjölfar uppsagna. Að
mati ráðgjafa Mímis reyndist vel að fá tækifæri til að nálgast
starfsmenn áður en atvinnuleit tók við, m.a. til að kynna þjón-
ustu náms- og starfsráðgjafa, upplýsa um möguleika á námi,
kynna styrki starfsmenntasjóða, aðstoða við gerð ferilskráa og
hvetja til virkni. Margir í þessum hópi stóðu frammi fyrir því að
vera að leita að vinnu í fyrsta skipti á starfsævinni eða eins og
einn sagði „ég hef aldrei þurft að leita að vinnu og veit ekkert
hvernig ég á að snúa mér í þessu“.
R á Ð g j Ö F V I Ð A T V I N N U L E I T E N d U R
Í U M b o Ð I V I N N U M á L A S T o F N -
U N A R
Í lok október 2009 var undirritaður samningur milli Fræðslu-
miðstöðvar atvinnulífsins, Kvasis – samtaka símenntunar-
„ Þ E T T A E R Þ A Ð b E S T A S E M H E F U R K o M I Ð
F Y R I R M I g L E N g I “
N á M S - o g S T A R F S R á Ð g j Ö F F Y R I R A T V I N N U L E I T E N d U R
H j á M Í M I – S Í M E N N T U N
Mímir–símenntun hefur með samningi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins tekið þátt í fram
kvæmd verkefnisins Náms og starfsráðgjöf á vinnustað frá byrjun ársins 2006. Megintil
gangur verkefnisins er að hvetja fólk á vinnumarkaði með stutta formlega skólagöngu og fólk
af erlendum uppruna til að styrkja stöðu sína með símenntun og starfsþróun. Verkefnið felst í
því að náms og starfsráðgjafar fara út á vinnustaði, halda kynningar og bjóða starfsmönnum
upp á viðtöl sem fara fram á vinnustaðnum. Að mati ráðgjafa, sem hafa tekið þátt í verkefninu
hjá Mími, er þetta áhrifarík leið til að ná til markhópsins og hefur vakið athygli víða.
Frá haustinu 2009 hefur ráðgjöfin hjá Mími að stórum hluta beinst að atvinnuleitendum.
Þetta eru annars vegar einstaklingar sem koma að eigin frumkvæði eða er vísað í ráð
gjöfina frá stéttarfélögum og hins vegar atvinnuleitendur sem eru boðaðir í viðtal í umboði
Vinnumálastofnunar. Flestir koma í húsnæði Mímis í Skeifunni 8 en náms og starfsráðgjafar
Mímis hafa einnig boðið reglulega upp á viðtöl í húsnæði Eflingar–stéttarfélags, hjá VR og
í Rauðakrosshúsinu í Borgartúni. Atvinnuleitendum hefur einnig verið boðið upp á hópráð
gjöf hjá Mími þar sem þeir vinna meðal annars að gerð færnimöppu. Hér verður sagt frá
ráðgjöf við atvinnuleitendur sem byggð er á upplifun og reynslu náms og starfsráðgjafa hjá Mími en að jafnaði
hafa fimm ráðgjafar starfað við verkefnið síðustu tvö ár.
SIgRÍÐUR dÍSA gUNNARSdóTTIR
Sigríður Dísa Gunnarsdóttir
miðstöðva og Vinnumálastofnunar (hér eftir skammstafað
VMST) um þátttöku náms- og starfsráðgjafa sem starfa á
símenntunarstöðvum, í ráðgjöf við atvinnuleitendur. Með
samningnum hefur gefist kærkomið tækifæri til að nálgast
fleiri úr markhópi verkefnisins Náms- og starfsráðgjafar
á vinnustað og jafnframt nýta þá þekkingu og reynslu
sem hefur byggst upp við að aðstoða og hvetja hópinn til
starfsþróunar. Fólk með stutta formlega skólagöngu hefur
verið rúmlega helmingur þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá á
höfuðborgarsvæðinu.
Markmið ráðgjafar á vinnustað er að auðvelda ákvarð-