Gátt - 2010, Blaðsíða 88
88
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á T T – á R S R I T – 2 0 1 0
4. Aukin hæfni leiðir af sér meira sjálfstraust
og eykur áhugann
Það er okkur eðlislægt að vilja öðlast hæfni í því sem okkur
finnst skipta máli. Aukin hæfni byggir upp sjálfstraustið.
Fullorðnir námsmenn eru yfirleitt mjög meðvitaðir um eigin
frammistöðu. Ef þeim finnst hæfnin aukast eykst námsáhug-
inn og sjálfstraustið. Öfugt dregur skortur á sjálfstrausti og
tilfinning fyrir vanhæfni verulega úr námsáhuga fullorðinna.
Margir þeirra sem hafa horfið frá námi án þess að ljúka
því hafa djúpa vanmetakennd og líða fyrir skort á sjálfstrausti
gagnvart námi og menntun og hefur það mikil áhrif á líf
þeirra. Oft hamlar skortur á sjálfstrausti því að fullorðnir hefji
nám að nýju. Mikilvægt er að þeir sem það gera upplifi að
námið sé árangursríkt og hæfni þeirra aukist. Leiðbeinendinn
þarf að skipuleggja námið þannig að það mæti nemandanum
þar sem hann er staddur svo að hann hafi tækifæri til að ná
árangri og byggja upp sjálfstraustið.
Sigurrós Magnúsdóttir fór aftur í nám á framhaldsskóla-
stigi á fimmtugsaldri eftir ráðgjöf hjá Fræðsluneti Suðurlands.
„Spurð að því hvað hafi komið til að hún hafi ákveðið að fara
í nám á fullorðinsaldri segir Sigurrós: „Það blundaði alltaf í
mér að fara í skóla og læra meira þó mér hafi ekki gengið vel
í skóla á sínum tíma [..] – En hvernig fannst Sigurrós að fara
í nám eftir svona langan tíma? „Þetta hefur styrkt mig mikið
og gefið mér aukið sjálfstraust. Mér finnst ég vera meira með
í þjóðfélaginu. Ég var t.d. skíthrædd við tölvur og hélt að ég
gæti ekki lært á þær út af því að ég skildi ekki enskuna en
nú er ég búin að taka áfanga í tölvu- og upplýsingatækni og
gekk bara vel þannig að ég hef losnað við þessa hræðslu.
Ég hef í raun verið að koma sjálfri mér stöðugt á óvart og
hef fengið mjög góðar einkunnir.“ (Fræðslunet Suðurlands,
2009:bls. 4)
Í stuttu máli er það boðskapur Wlodkowskis að við sem
leiðbeinendur sköpum námsaðstæður sem glæða og efla
námsáhuga fullorðinna þegar
við hjálpum öllum nemendum að verða hluti af hópnum •
og finna fyrir öryggiskennd,
við stuðlum að jákvæðum viðhorfum þátttakenda til •
námsins,
við stuðlum að því að hver þátttakandi hafi skýra mynd •
af tilgangi námsins í huga sér
við gefum hverjum einasta þátttakanda tækifæri til að •
ná árangri.
N á M S á H U g I S E M V I Ð b ó T A R V Í d d
V I Ð g E R Ð K E N N S L U á Æ T L U N A R
Hefðbundnar kennsluáætlanir byggjast á námsmarkmiðum
og námsathöfnum sem raðað er í tímaröð út frá eðli við-
fangsefnisins. Með aðferðafræði, sem Wlodkowski og Gins-
berg kynntu árið 1995 og nefna „The Motivational Fram-
ework for Culturally Responsive Teaching“, hafa þau bætt
við vídd námsáhuga og menningarlegrar næmni. Þegar
kennsluáætlunin er samin eru meginatriðin fjögur, sem
kynnt voru hér að framan, notuð sem leiðarljós við að velja
kennsluhætti og námsathafnir til að flétta inn í áætlunina.
Wlodkowski lýsir í bókinni mjög ítarlega sextíu mismunandi
kennsluaðferðum og útskýrir á hvaða hátt hver og ein þeirra
nýtist til að örva námsáhuga. Aftast í bókinni er heildar-
yfirlit yfir allar kennsluaðferðirnar þar sem þær eru flokkaðar
og lýst hvaða hvetjandi tilgangi hver og ein þeirra þjónar.
Einnig er tilgreint hvenær í námsferlinu er heppilegast að
nota hverja aðferð. (Wlodkowski, 2008:bls. 382–385) Mörg
dæmi og reynslusögur gera þetta efni bæði lærdómsríkt og
notadrjúgt fyrir leiðbeinendur.
L E I Ð S Ö g N S E M g L Æ Ð I R N á M S -
á H U g A
Framúrskarandi leiðsögn er bæði list og tækni. Það er ekki á
allra færi að ná þeim árangri. En það geta allir orðið hvetj-
andi leiðbeinendur. Þetta er færni sem hægt er að tileinka
sér, stjórna og gera betri með ásetningi og aukinni reynslu.
Hvetjandi leiðsögn byggist skv. Wlodkowski á fimm
meginstoðum sem allar eru mikilvægar. Vanti eina eða fleiri
hefur það letjandi áhrif á námsáhuga og árangur nemenda.
(Wlodkowski, 2008:bls. 49–94)
Sérfræðiþekking •
Leiðbeinandi þarf að hafa ítarlega kunnáttu á viðfangs-
efni sem nýtist öðrum fullorðnum. Undirbýr sig vel og
skipuleggur námsferlið vandlega.