Gátt - 2010, Blaðsíða 100
100
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á T T – á R S R I T – 2 0 1 0
Þ j ó N U S T U S A M N I N g A R V I Ð
M E N N T A M á L A R á Ð U N E Y T I Ð
Allir þjónustusamningarnir, sem gerðir hafa verið við
menntamálaráðuneytið, eiga það sammerkt að markhópar
starfseminnar er fólk á vinnumarkaði sem ekki hefur lokið
framhaldsskóla, innflytjendur og aðrir sambærilegir hópar.
FA er ekki ætlað að sinna markhópum sínum beint heldur í
gegnum samstarfsaðila sína sem eru símenntunarmiðstöðv-
arnar á landsbyggðinni, Mímir–símenntun og fræðslumið-
stöðvar iðngreina.
Hér á eftir verður gerð grein fyrir starfseminni samkvæmt
þjónustusamningi við menntamálaráðuneytið.
1 Í fyrsta lagi verður gerð grein fyrir þeim verkefnum sem
veitt er fé til hjá fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum.
2 Í öðru lagi verkefnum sem FA annast.
3 Í þriðja lagi verður greint frá nokkrum stórum verkefnum
sem eru fjármögnuð með öðrum hætti.
1 Framlög til fræðslu- og símenntunarmið-
stöðva
Greiðslur til fræðslu- og símenntunarmiðstöðva komu fyrst
inn í samninga FA árið 2006 og hafa því verið framkvæmdar
á fimmta ár. Framlag til miðstöðvanna greinist í fjóra hluta
og verður gerð grein fyrir þeim hverjum fyrir sig.
1. Framlag til vottaðs náms hjá fræðslu- og símenntunar-
miðstöðvum.
2. Framlag til símenntunarmiðstöðvanna vegna náms- og
starfsráðgjafar.
3. Framlag til námsráðgjafar og raunfærnimats hjá
fræðslu miðstöðvum iðngreina.
4. Framlag úr sérstökum sjóði til raunfærnimats og ráð-
gjafar.
1.1 Framlag til vottaðra námsleiða
Árið 2009 voru greiddar um 297,3 milljónir króna til vott-
aðra námsleiða, sambærileg upphæð fyrir 2008 er um 163
milljónir króna. Alls sóttu 1.973 nemendur nám í 253.171
nemendastund árið 2009. Áætlaður fjöldi eininga er 20.041.
Einingaverðið (á vorönn) er því u.þ.b 14.800 krónur.
Um 62% þátttakenda voru á landsbyggðinni en 38%
sóttu námið hjá Mími–símenntun á höfuðborgarsvæðinu.
Aukning í vottuðu námi í nemendastundum er 72% milli
áranna 2008 og 2009.
Tafla 1. Upplýsingar um vottaðar námsleiðir
2008 og 2009
Fjöldi
nám
skeiða
Fjöldi
þátt
takenda
Fjöldi
nemenda
stunda
Fjöldi
lokinna
eininga
Fjármagn í
krónum
2008 118 1.509 147.237 11.414 163.423.905
2009 168 1.973 253.171 20.041 297.263.239
Samtals 286 3.482 400.408 31.455 460.687.144
Nokkuð er um að vottað nám sé greitt af öðrum en FA og gefur
næsta mynd yfirsýn yfir þróun vottaðs náms. Þegar bornar eru
saman tölur á milli áranna 2008 og 2009 sést að vottað nám
greitt af FA eykst mjög mikið á milli ára á meðan annað ein-
ingabært nám fyrir markhóp FA dregst lítillega saman.
1.2 Framlag til náms og starfsráðgjafar hjá símennt
unarmiðstöðvum
Árið 2009 var áætlað að nota 52,7 milljónir kr. til náms- og
starfsráðgjafar samkvæmt reiknilíkani. Þá var einnig úthlutað
tæplega 38,4 milljónum úr sérstökum sjóði vegna raunfærni-
mats og ráðgjafar og 1,9 milljón úr sjóði vegna erfiðrar stöðu
á vinnumarkaði. Samtals var því úthlutað tæplega 93 millj-
ónum í náms- og starfsráðgjöf á árinu 2009. Árið 2010 eru
til ráðstöfunar í náms- og starfsráðgjöf 55,3 milljónir en auk
þess geta fræðsluaðilar sótt um fjármagn í sérstakan sjóð
fyrir náms- og starfsráðgjöf og raunfærnimat.
Á árinu 2009 voru haldnir 252 kynningarfundir í 202 fyrir-
tækjum og stofnunum. Fundina sóttu 3.003 ein staklingar og
komu 1.147 í viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa í framhaldi
af kynningarfundum Þegar verkefnið Náms- og starfsráðgjöf
á vinnustað fór af stað árið 2007 fóru flestir kynningarfundir
fram hjá fyrirtækjum en í dag eru ráðgjafar í meira mæli að
kynna þessa þjónustu á fjölbreyttari vettvangi. Sjá mynd
Kynningar og viðtöl 2009.
Árið 2009 var heildarfjöldi viðtala 5.469, þar af var
fjöldi þeirra sem tók þátt í hópráðgjöf 1.704. Endurkomur
voru 1.869. Meðalverð, sem FA greiddi fyrir hvert viðtal á
árinu, var rúmar 12 þúsund krónur. Átta af símenntunarmið-