Gátt - 2013, Page 31

Gátt - 2013, Page 31
31 Þ R Ó U N F R A M H A L D S F R Æ Ð S L U N N A R G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3 Þóra Ásgeirsdóttir Helga Lára Haarde ÞÓRA ÁSGEIRSDÓTTIR OG HELGA LÁRA HAARDE H V E R J I R S T A R F A V I Ð F E R Ð A Þ J Ó N U S T U ? H V E R J I R S T A R F A Í F E R Ð A Þ J Ó N - U S T U ? Niðurstöður könnunarinnar gefa gott yfirlit yfir hverjir sinna hvaða störfum innan ferðaþjónustunnar á gisti- og veitinga- húsum en það var megintilgangur verkefnisins. Þar var um að ræða yfirlit yfir ferns konar störf, í eldhúsi, veitingasal, móttöku og þvottum og þrifum. Um 45% hópsins hefur lokið grunnskólaprófi eða minni menntun og svipað hlutfall hefur lokið framhaldsskóla og hluti þess hafið nám í háskóla. Hópurinn hafði að meðaltali starfað 4,65 ár við ferða- þjónustu. Aðeins um fjórðungur svarenda hafði starfað við ferðaþjónustu lengur en fimm ár en yfir 30% sögðu starfs- aldur sinn vera eitt ár eða styttri. Þeir sem hafa stysta starfs- aldurinn (eitt ár eða styttra) vinna fremur við þvotta og þrif en þeir sem hafa fimm ára starfsaldur eða lengri starfa fremur í eldhúsi en annars staðar. Svarendur af erlendu þjóð- erni virðast fremur ílengjast í störfum sínum en Íslendingar en meirihluti Íslendinga sem svöruðu hafa starfað í eitt ár eða styttra innan ferðaþjónustunnar. Meirihluti svarenda af erlendu þjóðerni hefur starfað í ferðaþjónustu lengur en tvö og hálft ár en skemur en fimm ár. Eftir því sem fólk hefur unnið lengur þeim mun líklegra er það til að ætla að halda áfram að starfa við ferðaþjónustu. Þegar litið er til mennt- unar sést að af þeim sem hafa lokið háskólaprófi og starfa innan ferðaþjónustunnar hafa flestir starfað fimm ár eða lengur en af þeim sem hafa lokið grunnskólaprófi hafa flestir starfað eitt ár eða styttra. Starfshlutfall starfsmanna ferðaþjónustunnar er marg- breytilegt en aðeins rösklega þriðjungur starfsmanna var í fullu starfi eða meira síðustu 12 mánuði áður en könnunin var gerð. Um 15% svarenda sögðust einungis hafa verið í starfi sínu á sumrin. Aðrir hafa verið í hlutastarfi eða ýmist í hlutastarfi og fullu starfi. Þeir sem ekki hafa íslensku að móðurmáli eru mun líklegri til að vera í fullu starfi eða meira. Það má því álykta að Íslendingar líti á þessi störf frekar sem aukastörf en þeir sem eru af erlendu bergi brotnir. Algengara er að þeir sem hafa unnið í fullu starfi síðustu 12 mánuði starfi í eldhúsi en til dæmis í veitingasal en þeir sem vinna Maskína vann rannsókn fyrir Samtök ferðaþjónust- unnar og fleiri aðila. Rannsóknin var unnin með milli- göngu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og var liður í vinnu á greiningu á færnikröfum í ferðaþjónustu. Í þessari grein verður farið yfir helstu niðurstöður rannsóknarinnar sem gerð var meðal starfsmanna og stjórnenda í ferðaþjónustu. Unnið var með svokallaða „blandaða aðferð“, þ.e. beitt var bæði eigindlegri og megindlegri rann- sóknaraðferð. Verkefnið hófst með Fjarumræðuborði Maskínu. Í Fjarumræðuborðinu ræddu stjórnendur sín á milli um samsetningu vinnuafls, skoðanir á því hvað mætti betur fara, hvað vel væri gert og hugmyndir um námskeið eða menntun til að auka færni starfsfólks. Könnun var lögð fyrir starfsfólk og stjórnendur í ferðaþjónustu á Íslandi og var hún að hluta til byggð á niður- stöðum Fjarumræðuboðsins. Um var að ræða stjórnendur sem eru félagar í SAF og starfsfólk, um allt land, sem eru félagar í stéttarfélögum innan Starfsgreinasambands Íslands. Könnunin var lögð fyrir starfsmenn á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku og var hægt að svara bæði í síma og á netinu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Gátt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.