Gátt - 2013, Blaðsíða 78
78
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3
K V E I K J A N A Ð V E R K -
E F N I N U
Náms- og starfsráðgjafar Mímis-
símenntunar hafa í starfi sínu
undanfarin ár hitt fjölda starfsfólks sem starfar í vöruhúsum,
bæði atvinnuleitendur og fólk í launuðu starfi. Í viðtölum
hefur komið skýrt í ljós að þeir sem starfa í greininni búa
yfir þekkingu og færni sem í flestum tilvikum er án form-
legrar staðfestingar. Það sem einnig hefur vakið athygli ráð-
gjafa er mikill áhugi þessara einstaklinga á starfinu og vilji
til náms- og starfsþróunar á þessum vettvangi. Framboð á
námi í starfsgreininni er af skornum skammti hér á landi og
heildstætt nám er ekki fyrir hendi fyrir þennan hóp starfs-
manna. Má því segja að formleg tækifæri til náms í greininni
hafi ekki staðið til boða. Samkvæmt Hagstofu Íslands (2012)
störfuðu um 11.700 einstaklingar, eða um 6.9% af starfs-
fólki á vinnumarkaði, við atvinnugreinina Samgöngur og
flutningar á árinu 2012. Þótt ekki liggi fyrir upplýsingar um
það hversu margir starfa í vöruhúsum má ætla að það sé stór
hluti af heildinni. Starfsmennirnir hafa ólíka menntun að baki
og leiða má líkur að því að stærstur hluti þeirra hafi lokið
stuttri skólagöngu.
Raunfærnimat hefur þróast mikið í gegnum tíðina en
er öflugt verkfæri til að draga fram og viðurkenna það nám
sem í boði er utan hins formlega skólakerfis, til dæmis á
vinnustöðum. Mat á raunfærni styður við símenntun einstak-
linga og er aðferð sem gerir færni sýnilega og viðurkennda
(Fjóla María Lárusdóttir og Haukur Harðarson, 2012). Það lá
því fyrir að í vöruhúsum væri hópur af einstaklingum með
færni og þekkingu sem ekki hefur verið formlega staðfest.
Mímir-símenntun sótti því um styrk til þróunarsjóðs fram-
haldsfræðslu til að vinna að raunfærnimati fyrir starfsfólk í
vöruhúsum. Þegar styrkveitingin hafði verið samþykkt hófst
vinna við verkefnið. Unnið var jafnt og þétt allt árið 2012 og
voru verklok í nóvember það ár.
F R A M K V Æ M D V E R K E F N I S
Yfirmarkmið verkefnisins var að undirbúa og útbúa verkfæri
til raunfærnimats í vöruhúsum. Verkefninu var skipt í nokkur
undirmarkmið sem fólust í að:
• Greina færnikröfur og greina þær á hæfnisþrep
• Móta færniviðmið
• Útbúa sjálfsmatslista, skimunartæki og stoðgögn
Leitað var til hagsmunaaðila og myndaður stýrihópur sem
í sátu fulltrúar fyrirtækja, stéttarfélaga og þeirra sem koma
að framkvæmd verkefnisins. Í stýrihóp sátu fulltrúar frá
Samtökum verslunar og þjónustu (SVÞ), VR, Eflingu, Félagi
atvinnurekenda, Vífilfelli og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
(FA).
Með aðstoð hagsmunaaðila var myndaður faghópur úr
atvinnulífinu. Í hópnum voru 10 einstaklingar sem starfa í
vöruhúsum, flestir þeirra yfirmenn. Leitast var við að hafa
fulltrúa frá mismunandi flokkum í starfsgreininni svo sem
verslun, heildsölur, framleiðslufyrirtæki og vöruhótel.
Faghópurinn var mjög öflugur enda mikill faglegur áhugi á
verkefninu. Það var mjög árangursríkt að fá fulltrúa atvinnu-
ÞURÍÐUR ÓSK SIGURJÓNSDÓTTIR
R A U N F Æ R N I M A T F Y R I R S T A R F S F Ó L K Í
V Ö R U H Ú S U M
Raunfærnimat hefur þróast töluvert á undanförnum árum og sífellt er unnið að innleiðingu
þess í fleiri starfsgreinum. Mímir-símenntun hefur tekið virkan þátt í innleiðingu raun-
færnimats og vann nýverið undirbúningsverkefni vegna raunfærnimats í vöruhúsum. Starf
í vöruhúsum er stór þáttur í flutningagreininni sem krefst þekkingar á jafnólíkum þáttum
og öryggismálum, umhverfismálum, þjónustu, frágangi á farmi, vörumeðhöndlun, flutnings-
ferlum, gæðaeftirliti og tjónamálum til þess að viðskiptaskilmálar og lög séu uppfyllt. Í
verkefninu fólst að undirbúa og útbúa verkfæri til raunfærnimats fyrir starfsfólk í vöru-
húsum. Í þessari grein verður fjallað nánar um verkefnið og næstu skref.
Þuríður Ósk Sigurjónsdóttir