Gátt - 2013, Blaðsíða 115
115
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3
reynslusögum og lýsingum á ýmsum möguleikum sem standa
þeim til boða sem óska eftir fræðslu. Sá kafli ritsins með
greinum sem tengjast verkefnum námsmanna sem sérhæfa
sig í námi fullorðinna og náms- og starfsráðgjöf fyrir full-
orðna til meistaraprófs hefur aldrei skipað jafn veigamikinn
sess. Þar er stoðum rennt undir að fullorðnir vilja mennta sig
til starfa og að sjálfstraust er mikilvæg undirstaða þess að
geta það. Ritið er sent víða, meðal annars til símenntunar-
miðstöðva, framhaldsskóla og bókasafna. Gátt er notað til
kennslu í þremur háskólum, HÍ, HA og LHÍ, og er þar að auki
aðgengilegt á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, www.
frae.is.
Ársfundur FA var haldinn fimmtudaginn 29. nóvember
á Hótel Reykjavík Natura. Fundurinn bar yfirskriftina Nám
og vinnumarkaður. Þar voru flutt fjögur ávörp og sex erindi
og að venju voru viðurkenningar veittar Fyrirmyndum í námi
fullorðinna árið 2012. Glærur fyrirlesara og ávörp fyrirmynd-
anna eru aðgengilegar á vef FA, www.frae.is sem er upp-
færður reglulega.
Upplýsingum er miðlað með ýmsum hætti, svo sem með
kynningarbæklingum, útgáfu námsskráa og dreifingu þeirra,
þátttöku í ráðstefnum og móttöku gesta, bæði innlendra og
erlendra. Á árinu 2012 var gefinn út einn nýr bæklingur þar
sem kynnt er námsleiðin Fjölvirkjar. Einnig var gefin út ensk
þýðing á almennum bæklingi um starfsemi FA. Ennfremur
var unnið uppkast að sameiginlegum kynningarbæklingi um
náms- og starfsráðgjöf sem fer fram hjá símenntunarmið-
stöðvum um allt land.
Starfsemi FA var á tímabilinu september 2012 – ágúst
2013 kynnt fyrir nær 600 manns, Þar á meðal erlendum
hópum frá Færeyjum, Noregi, Litháen og Lapplandi og á
ráðstefnum á Íslandi og í Eistlandi, Svíþjóð og Austurríki.
Umfjöllunarefni kynninganna var starfsemi FA, tilraunaverk-
efni í ferðaþjónustu, tölfræði úr starfinu, EQM-gæðavottunin
og heftið 8 árangursþættir. Þá má nefna kynningu á fram-
haldsfræðslunni á Málþingi ASÍ.
Aukin áhersla verður lögð á kynningu á því starfi sem
fram fer á vettvangi framhaldsfræðslu bæði fyrir almenning
og gagnvart öðrum skólastigum. FA fékk Heiði Björnsdóttur
markaðsfræðing til liðs við starfsfólkið til þess að móta nýja
kynningarstefnu fyrir FA. Hópur innan FA vann að kynn-
ingaráætlun með Heiði haustið 2012 og í kjölfarið var leitað
til nokkurra auglýsingastofa um að koma með hugmyndir til
að móta þessa kynningarstefnu. Auglýsingastofan ENNEMM
var fyrir valinu til að þróa hugmyndirnar áfram.
N Á M S E F N I S G E R Ð
Í þjónustusamningi við mennta- og menningarmálaráðu-
neytið sem FA vinnur eftir er ákvæði um að FA vinni að
verkefnum tengdum námsefnisgerð eftir því sem mögulegt
er og fjármagn leyfir.
Verkefni á sviði námsefnisgerðar á tímabilinu hafa falist
í að þróa áfram Mælistiku FA um gæði námsefnis, veita ráð-
gjöf um námsefnisgerð fyrir markhópinn og leiðbeina þeim
sem vilja útbúa námsefni á grundvelli námsskráa FA fyrir
framhaldsfræðslu.
Almennar umræður um gæði námsefnis fara stöðugt
fram á Stiklunámskeiðum en til viðbótar var þróað sérstakt
Stiklunámskeið um gæði námsefnis – Stiklur 3b og auglýst
með öðrum Stiklunámskeiðum. Ekki hefur verið eftirspurn
eftir því námskeiði enn.
Veitt hefur verið einstaklingsráðgjöf um námsefnis-
gerð þar sem Mælistikan var kynnt sem hjálpartæki ásamt
námsefnisgerðarforritum. Ráðgjöfin var veitt í tengslum við
fyrirhugaða námsefnisgerð um námstækni fyrir Skrifstofu-
skólann.
Vísað hefur verið í námsefni frá sjávarútvegsráðuneytinu
þegar eftir því hefur verið leitað. Yfirlit yfir námsefnið er nú
vistað í gagnasafni FA undir yfirskriftinni Fiskvinnslunám-
skeið. Einnig er prentað námsefni vistað hjá FA og dreift eftir
þörfum.
Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins árið 2012 á Hótel Natura.