Gátt - 2013, Blaðsíða 66
66
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3
GUÐFINNA HARÐARDÓTTIR
G Æ Ð I O G A F T U R G Æ Ð I
um innle ið ingu EQM gæðavottunar á Ís landi og hugmyndir að
áframhaldandi þróun gæðaviðmiða
F Y R S T U G Æ Ð A V I Ð M I Ð I N V O R U
G E F I N Ú T Á R I Ð 2 0 0 6
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur allt frá stofnun unnið að
eflingu gæða í fræðslustarfi með ýmsum leiðum og árið 2006
voru birt á vef FA fyrstu drög að handbók um gæðaviðmið í
fullorðinsfræðslu. Í henni mátti finna leiðbeiningar og viðmið
um gæði í fullorðinsfræðslu, sniðin að þörfum þeirra fræðslu-
aðila sem voru í samstarfi við FA og/eða kenndu eftir náms-
skrám FA. Viðmiðin voru í samræmi við almennar venjur
hvað varðar sjálfsmat og úttektir á gæðum fræðslustofnana
og var ætlað að auðvelda fræðsluaðilum slíka vinnu. Mark-
miðið með gerð handbókarinnar var að hanna gegnsætt og
einfalt gæðakerfi sem hentaði starfsemi lítilla fyrirtækja og
stofnana sem starfa hér á landi á sviði fullorðinsfræðslu og
starfsmenntunar og bjóða upp á námskeið fyrir markhóp
FA. Hugsunin var að með því móti væri hægt að tryggja að
ákveðnar lágmarkskröfur væru uppfylltar af öllum samstarfs-
aðilum og þar með leitast við að bæta kennslu og árangur
náms og uppfylla væntingar allra hagsmunaaðila.
A L L → R E C A L L → E Q M
Þegar gæðaviðmið FA voru samin var tekið mið af afurðum
Evrópuverkefnisins ALL-accreditation of lifelong learning.
Markmið ALL-verkefnisins var að þróa gæðavottunarkerfi til
að meta framboð á tungumálanámi og meðal afurða voru
gæðaviðmið og sjálfsmat fyrir fræðsluaðila. Þegar því verk-
efni lauk fékkst styrkur frá Leonardo da Vinci menntaáætlun
Evrópusambandsins fyrir framhaldsverkefni sem gekk út á að
þróa hugmyndir og niðurstöður ALL-verkefnisins enn frekar.
Framhaldsverkefnið hlaut nafnið RECALL – Recogniton of
Quality in Lifelong Learning og hófst vinna við það í lok árs
2006. Í fyrstu var verkefninu stýrt af Mennt – samstarfsvett-
vangi atvinnulífs og skóla en þegar Mennt hætti starfsemi
í árslok 2007 fluttist verkefnið yfir til FA. Samstarfsaðilar
RECALL-verkefnisins komu frá Bretlandi, Danmörku, Íslandi,
Ítalíu, Litháen, Noregi, Portúgal og Slóveníu.
Markmið verkefnisins var að mæta aukinni þörf fyrir
gæði og gagnsæi í símenntun og starfsþjálfun með því að
þróa einfalt gæðastjórnunarkerfi sem fræðsluaðilar gætu
nýtt við mat á námsframboði sínu. Afurðir RECALL verk-
efnisins voru meðal annars EQM gæðaviðmiðin, eyðublöð
og lýsingar á vottunarferli, auk leiðbeininga til fræðsluaðila
og matsaðila sem og viðskiptaáætlun sem lýsir hugmyndum
að útbreiðslu og uppbyggingu EQM kerfisins. Enn fremur
var hannað merki sem vottaðir fræðsluaðilar fá að nota við
kynningu á þjónustu sinni. Á heimasíðu EQM er að finna allar
afurðir RECALL verkefnisins ásamt upplýsingum um frekari
þróun og lista yfir fræðsluaðila sem nota kerfið.
H V A Ð E R E Q M ?
EQM stendur fyrir European Quality Mark eða Evrópska
gæðamerkið og er gegnsætt matsferli fyrir fræðsluaðila til
að meta fræðslustarfsemi sína út frá viðurkenndum gæða-
viðmiðum. EQM er hannað til að mæta síauknum kröfum
Í 9. grein þjónustusamnings Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins við mennta- og menningarmálaráðuneytið segir
að FA beri að efla gæði fræðslustarfs og ráðgjafar hjá viðurkenndum fræðsluaðilum með þróun gæðaviðmiða í
samráði við ráðuneytið. Nú er svo komið að FA er vottunaraðili EQM1 á Íslandi og 13 samstarfsaðilar FA auk eins
fræðsluaðila utan samstarfsnets FA hafa hlotið viðurkenningu samkvæmt Evrópska gæðamerkinu EQM vegna
fræðslustarfs síns. Auk þeirra hefur annar fræðsluaðili utan samstarfsnets FA hafið vottunarferlið. Þá er FA að
vinna að gæðaviðmiðum í náms- og starfsráðgjöf og einnig hefur FA tekið þátt í Nordplus verkefni um gæða-
viðmið í raunfærnimati. Hér verður sagan rakin í stuttu máli og fjallað um hvað hefur verið gert til að efla gæði í
fullorðinsfræðslu hér á landi og hvaða áform eru um áframhaldandi gæðastarf á vettvangi FA.
1 EQM stendur fyrir European Quality Mark eða Evrópska gæðamerkið
og er gegnsætt matsferli fyrir fræðsluaðila til að meta fræðslustarfsemi
sína út frá viðurkenndum gæðaviðmiðum.