Gátt - 2013, Side 66

Gátt - 2013, Side 66
66 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3 GUÐFINNA HARÐARDÓTTIR G Æ Ð I O G A F T U R G Æ Ð I um innle ið ingu EQM gæðavottunar á Ís landi og hugmyndir að áframhaldandi þróun gæðaviðmiða F Y R S T U G Æ Ð A V I Ð M I Ð I N V O R U G E F I N Ú T Á R I Ð 2 0 0 6 Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur allt frá stofnun unnið að eflingu gæða í fræðslustarfi með ýmsum leiðum og árið 2006 voru birt á vef FA fyrstu drög að handbók um gæðaviðmið í fullorðinsfræðslu. Í henni mátti finna leiðbeiningar og viðmið um gæði í fullorðinsfræðslu, sniðin að þörfum þeirra fræðslu- aðila sem voru í samstarfi við FA og/eða kenndu eftir náms- skrám FA. Viðmiðin voru í samræmi við almennar venjur hvað varðar sjálfsmat og úttektir á gæðum fræðslustofnana og var ætlað að auðvelda fræðsluaðilum slíka vinnu. Mark- miðið með gerð handbókarinnar var að hanna gegnsætt og einfalt gæðakerfi sem hentaði starfsemi lítilla fyrirtækja og stofnana sem starfa hér á landi á sviði fullorðinsfræðslu og starfsmenntunar og bjóða upp á námskeið fyrir markhóp FA. Hugsunin var að með því móti væri hægt að tryggja að ákveðnar lágmarkskröfur væru uppfylltar af öllum samstarfs- aðilum og þar með leitast við að bæta kennslu og árangur náms og uppfylla væntingar allra hagsmunaaðila. A L L → R E C A L L → E Q M Þegar gæðaviðmið FA voru samin var tekið mið af afurðum Evrópuverkefnisins ALL-accreditation of lifelong learning. Markmið ALL-verkefnisins var að þróa gæðavottunarkerfi til að meta framboð á tungumálanámi og meðal afurða voru gæðaviðmið og sjálfsmat fyrir fræðsluaðila. Þegar því verk- efni lauk fékkst styrkur frá Leonardo da Vinci menntaáætlun Evrópusambandsins fyrir framhaldsverkefni sem gekk út á að þróa hugmyndir og niðurstöður ALL-verkefnisins enn frekar. Framhaldsverkefnið hlaut nafnið RECALL – Recogniton of Quality in Lifelong Learning og hófst vinna við það í lok árs 2006. Í fyrstu var verkefninu stýrt af Mennt – samstarfsvett- vangi atvinnulífs og skóla en þegar Mennt hætti starfsemi í árslok 2007 fluttist verkefnið yfir til FA. Samstarfsaðilar RECALL-verkefnisins komu frá Bretlandi, Danmörku, Íslandi, Ítalíu, Litháen, Noregi, Portúgal og Slóveníu. Markmið verkefnisins var að mæta aukinni þörf fyrir gæði og gagnsæi í símenntun og starfsþjálfun með því að þróa einfalt gæðastjórnunarkerfi sem fræðsluaðilar gætu nýtt við mat á námsframboði sínu. Afurðir RECALL verk- efnisins voru meðal annars EQM gæðaviðmiðin, eyðublöð og lýsingar á vottunarferli, auk leiðbeininga til fræðsluaðila og matsaðila sem og viðskiptaáætlun sem lýsir hugmyndum að útbreiðslu og uppbyggingu EQM kerfisins. Enn fremur var hannað merki sem vottaðir fræðsluaðilar fá að nota við kynningu á þjónustu sinni. Á heimasíðu EQM er að finna allar afurðir RECALL verkefnisins ásamt upplýsingum um frekari þróun og lista yfir fræðsluaðila sem nota kerfið. H V A Ð E R E Q M ? EQM stendur fyrir European Quality Mark eða Evrópska gæðamerkið og er gegnsætt matsferli fyrir fræðsluaðila til að meta fræðslustarfsemi sína út frá viðurkenndum gæða- viðmiðum. EQM er hannað til að mæta síauknum kröfum Í 9. grein þjónustusamnings Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins við mennta- og menningarmálaráðuneytið segir að FA beri að efla gæði fræðslustarfs og ráðgjafar hjá viðurkenndum fræðsluaðilum með þróun gæðaviðmiða í samráði við ráðuneytið. Nú er svo komið að FA er vottunaraðili EQM1 á Íslandi og 13 samstarfsaðilar FA auk eins fræðsluaðila utan samstarfsnets FA hafa hlotið viðurkenningu samkvæmt Evrópska gæðamerkinu EQM vegna fræðslustarfs síns. Auk þeirra hefur annar fræðsluaðili utan samstarfsnets FA hafið vottunarferlið. Þá er FA að vinna að gæðaviðmiðum í náms- og starfsráðgjöf og einnig hefur FA tekið þátt í Nordplus verkefni um gæða- viðmið í raunfærnimati. Hér verður sagan rakin í stuttu máli og fjallað um hvað hefur verið gert til að efla gæði í fullorðinsfræðslu hér á landi og hvaða áform eru um áframhaldandi gæðastarf á vettvangi FA. 1 EQM stendur fyrir European Quality Mark eða Evrópska gæðamerkið og er gegnsætt matsferli fyrir fræðsluaðila til að meta fræðslustarfsemi sína út frá viðurkenndum gæðaviðmiðum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Gátt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.