Gátt - 2013, Side 50

Gátt - 2013, Side 50
50 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3 1. Hæfniviðmið Áhrifa þess að nota hæfniviðmið – það sem námsmaður þekkir, skilur og getur gert að loknu námsferli – gætir í ríkari mæli í evrópskri stefnu og verklagi í menntun og þjálfun. Þess er vænst að hæfniviðmið hjálpi til við að skilja hvað stendur á bak við hæfisvottun, auki ábyrgð þeirra sem votta hæfi og hvetji til náms. Hvernig til tekst ræðst af því hvernig hæfniviðmið eru skilgreind og hvernig þau eru notuð. Ein lausn fyrir alla á ekki við hér. Brýnt er að skilgreina og lýsa hæfniviðmiðum nákvæmlega og í samræmi við tilgang hverju sinni. Gæðastarf á þessu sviði á að ganga út á að vakta og bæta notkun hæfniviðmiða á gagnrýninn og kerfisbundinn hátt. Með gæðakerfum er sjónum annars vegar beint að því að jafnvægis sé gætt milli almennrar og sértækrar leikni og svo að hinu, að hve miklu leyti hægt sé að meta útfærslu á lýsingum viðmiðarammanna. Þá er nauðsynlegt að meta á gagnrýninn hátt hvaða áhrif lýsingar hæfniviðmiða hafa á kennslu og þjálfun og kanna áhrif þeirra á sjálft námsferlið. Gæði hæfniviðmiða verður því að tryggja kerfisbundið á nokkrum stigum: við útfærslu lýsinga í viðmiðarömmum, þegar skilgreind eru viðmið starfa og við námsskrárritun og val á matsviðmiðum. Nánar er fjallað um tengsl hæfnivið- miða og ritun námskráa í grein Höllu Valgeirsdóttur hér í Gátt. 2.Mat og staðfesting Með aukinni fjölbreytni og sveigjanleika við öflun hæfisvott- unar verður mat á hæfniviðmiðum mikilvægara. Gæði ólíkra leiða, eins og náms á vinnustað, er aðeins hægt að tryggja með því að þróa áreiðanlegar leiðir til þess að ákveða hvort kröfum um hæfniviðmið hafi verið náð. Til dæmis fer áreiðanleiki raunfærnimats eftir því hvort framsetning hæfniviðmiða er nægilega skýr til að hægt sé að fylgja þeim nákvæmlega eftir. Evrópuráðið fjallar um þetta í tilmælum sínum sem samþykkt voru í desember 2012 um mat á óformlegu og formlausu námi. Þar er mælst til að aðildarlöndin komi á verklagi fyrir mat á óformlegu og form- lausu námi og tengi það við viðmiðaramma og gæðakerfi sín. Áhersla á mat og traust á mælikvarða sem byggja á hæfniviðmiðum endurspeglast í gæðaviðmiðum raunfærni- mats nokkurra Evrópuþjóða (til dæmis Frakka, Portúgala og Finna). 3. Stofnanir sem uppfylla skilyrði til að votta hæfi Hefð hefur verið fyrir því að stofnanir sem votta hæfi séu menntastofnanir á borð við háskóla, eða opinber yfirvöld eins og menntamálaráðuneyti. En einkafyrirtækjum (einkum fjölþjóðlegum), samtökum atvinnugreina og alþjóðlegum stofnunum sem votta hæfi hefur fjölgað. Til að komast hjá misferli og handvömm við hæfisvottun sem getur grafið undan trausti á vottun, verður gæðaeftirlit að ná lengra en til opinberra stofnana. Þessum nýju kringumstæðum verður að mæta af festu. Nokkrar aðildarþjóðir hafa þegar gert það. Hollendingar og Svíar hafa ákveðin gæðaviðmið og verklag sem gera þeim kleift að fella hæfi, sem veitt hefur verið utan formlegra mennta- og fræðslustofnana, að viðmiðaramma landanna. Í Hollandi þurfa fyrirtæki sem vilja að vottanir þeirra falli að viðmiðaramma landsins að hafa verið vottuð í fimm ár. Ennfremur þurfa þau að skilgreina fyrir hæfisvott- unina: þrep, hæfniviðmið, vinnuálag og matsferli sem beitt er og vísa til viðeigandi starfs. Guðfinna Harðardóttir fjallar í grein sinni hér í Gátt um vottun fræðsluaðila í framhalds- fræðslu hér á landi. Þess er vænst að reglur og umsýsla vegna slíkra hæfis- Skilgreining á hæfi Hæfi (e. qualification) er formleg niðurstaða (skírteini, námstitill) mats og staðfestingar sem fæst með því að viðurkenndur vottunaraðili hefur komist að niðurstöðu um að einstaklingur standist hæfniviðmið samkvæmt skilgreindum viðmiðum. Þessi skilgreining beinir athygli að þeim þáttum vottunar sem ákvarða trúverðugleika hennar. 1. Hæfniviðmið (e. learning outcomes) 2. Mat og staðfesting (e. assessment and validation) 3. Viðurkenndur vottunaraðili (e. competent body) 4. Viðmið starfa (e. standards) Aukin áhersla á hæfniviðmiðin, og auknar kröfur til gæðakerfa að þessu leyti – þýða ekki að draga eigi úr athygli á gæðum menntunarinnar. Skilaboðin ætti heldur að skilja á þann veg að núverandi gæðakerfi vanmeti mikilvægi vottunarinnar. Gæði allra þátta fræðslunnar, kennslu, náms og afraksturs, eru að sjálf- sögðu jafn mikilvæg.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Gátt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.