Gátt - 2013, Síða 53

Gátt - 2013, Síða 53
53 F U L L O R Ð I N S F R Æ Ð S L A G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3 uppfylltu skilyrði átaksins, tryggð skólavist haustið 2011. Í upphafi þurfti að skilgreina hvaða nemendur væru þátttak- endur í átakinu og hverjum ætti að fylgja eftir með auknum stuðningi innan skólanna, þar sem átakið kvað á um að skólarnir veittu þessum nemendum viðbótarstuðning til að sporna gegn brotthvarfi. Umfjöllun hér á eftir takmarkast við þátttakendur sem stunduðu nám á framhaldsskólastigi, en auk þess innrituðust nemendur átaksins í nám í framhalds- fræðslu, frumgreinadeildum og háskólum. Nemendahópur- inn sem innritaðist í nám á vegum átaksins var fjölbreyttur og margir deildu þeirri reynslu að eiga að baki námsferla sem báru með sér að nemendur höfðu glímt við hindranir í námi. Áhersla var lögð á að nemendahópnum yrði mætt með það í huga og að leitað yrði leiða til að sporna gegn brotthvarfi. En brotthvarf er viðurkenndur vandi sem steðjar að íslensku menntakerfi. Margar ástæður geta legið að baki brotthvarfi nemenda úr námi og um er að ræða flókið samspil þátta hverju sinni sem tengjast nemandanum, fjölskyldu hans, skóla og sam- félaginu í kring. Almennt er fjallað um brotthvarf sem ferli og eftir því sem fleiri áhættuþættir eru til staðar hverju sinni aukast líkur á brotthvarfi nemenda. Samkvæmt Jóni Torfa Jónassyni og Kristjönu Stellu Blöndal (2002) er brotthvarfs- hópur skilgreindur sem þeir einstaklingar sem ekki hafa farið í nám að loknum grunnskóla eða hafa hætt námi í fram- haldsskóla. Í niðurstöðum rannsóknar þeirra á námsgengi og afstöðu ’75 árgangsins til náms koma fram mismunandi ástæður þess að meðlimir árgangsins fóru ekki í framhalds- skóla eða hættu þar námi. Fjórar algengustu ástæðurnar sem fólk nefndi voru að þeim leiddist námið, þeim hafi boðist gott starf, fjárhagsvandræði og heimilisaðstæður. Þetta er í samræmi við umfjöllun sem birtist í grein Jóns Torfa, Krist- jönu Stellu og Anna-Christin Tannhauser (2011) en þar er fjallað um ástæður brotthvarfs á Íslandi út frá þremur sjónar- hornum, það er skipulagi, skólanum og einstaklingnum. Í sömu grein er einnig tekinn fyrir samanburður á brotthvarfi hér á landi við nágrannalönd, með sérstaka áherslu á fram- haldsskólastigið. Þar sker íslenskt menntakerfi sig úr þar sem brotthvarf er talsvert meira hérlendis. Hlutfall brotthvarfs er talsvert hátt meðal beggja kynja og hjá ólíkum aldurs- hópum. Þegar dregnir eru fram félagslegir þættir brotthvarfs, þá kemur fram að hlutfall þess er hærra meðal karlmanna og meðal hópa sem búa við lága fjárhagslega og félagslega stöðu. Í skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar (2010) Brott- hvarf úr námi meðal 16–20 ára á Norðurlöndum er fjallað um að meginástæða brotthvarfs sé lélegur árangur í upphafi skólagöngu, ásamt skorti á félagsfærni og dræmri þátttöku í skólalífinu sem getur gert það að verkum að það dragi úr skuldbindingu nemenda við nám sitt. Því er lagt til að gripið verði til aðgerða snemma í skólagöngunni, í grunnskólum og jafnvel leikskólum. Þar er áhersla lögð á mikilvægi þess að nám verði miðað við forsendur hvers og eins til að sporna gegn líkum á brotthvarfi. Fjallað er um að á milli 60 og 80% norrænna nemenda í hverjum árgangi ljúki framhaldsskóla- námi. Þó svo að þetta sé góður árangur þar sem best lætur, þá er lögð áhersla á mikilvægi þess að draga úr brotthvarfi þeirra sem eftir standa. Þegar Norðurlöndin eru borin saman kemur í ljós að 67% nemenda í Svíþjóð hafa lokið fram- haldsskólaprófi þegar þeir standa á tvítugu. Í Noregi ljúka að meðaltali 68% nemenda framhaldsskólanámi. Á Íslandi ljúka að meðaltali 62% nemenda framhaldsskólanámi 24 ára eða yngri. Í Danmörku ljúka 85% nemenda framhaldsskólaprófi innan 25 ára aldurs. Erfitt getur reynst að bera löndin saman, þar sem skipulag náms er ólíkt og ekki er staðið eins að útreikningum á brotthvarfi þeirra á milli. Ísland kemur mun verr út en nágrannaþjóðirnar í þessum samanburði og gildir þar einu hvaða matsþættir eru bornir saman. Í skýrslu OECD um Ísland frá árinu 2006, kemur fram að brotthvarf nemenda í framhaldsskólum sé mikið og mennt- unarstig landsmanna á aldrinum 25–64 ára sé töluvert undir meðaltali OECD ríkja. Þar kemur einnig fram að um þriðjungur árganga hérlendis lýkur ekki námi á framhalds- skólastigi, og er hlutfallið hærra en í flestum OECD löndum (OECD, 2006). Vinnuhópur sérfræðinga á vegum OECD tók að sér að skilgreina styrkleika og veikleika íslenska mennta- kerfisins þegar kemur að því að sporna gegn brotthvarfi. Helstu styrkleikarnir voru taldir vera frammistaða íslenskra grunnskólanema því samkvæmt niðurstöðum PISA könnunar frá árinu 2009 var frammistaða íslenskra nemenda í lestri og stærðfræði yfir OECD meðaltali. Þessi niðurstaða gefur vonir um að nemendur á grunnskólastigi séu vel undirbúnir þegar þeir fara yfir á framhaldsskólastigið. Næsti styrkleiki sem nefndur var er að íslensk stjórnvöld fjárfesta í menntun en Ísland er meðal þeirra OECD landa sem leggja hvað mest fjármagn í sitt menntakerfi miðað við þjóðarframleiðslu. Einnig er litið á það sem mikinn styrkleika að menntakerfið leggur markvissa áherslu á að mæta þörfum nemenda með jafnrétti til náms að leiðarljósi. Hindranir sem dregnar voru fram af sérfræðingum OECD eru að hátt hlutfall brotthvarfs- nema á framhaldsskólastiginu leiðir líkur að því að uppbygg-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Gátt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.