Gátt - 2013, Síða 55

Gátt - 2013, Síða 55
55 F U L L O R Ð I N S F R Æ Ð S L A G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3 Af nemendum í átakinu voru 147 einstaklingar sem hætt höfðu námi að loknum fyrstu tveimur mánuðum haustannar og 52 sem hætt höfðu námi að loknum fyrstu tveimur mán- uðum vorannar. Fjöldi nemenda sem haft var samband við til að spyrja út í ástæður brotthvarfs, byggt á þeirra eigin reynslu voru samanlagt 199. Þar af náðist í 189 einstaklinga og samþykktu þeir allir að taka þátt í könnuninni, sem er þátttaka upp á 94,97%. Vert er að benda á að þátttakan þykir afburða góð og er þetta hærra svarhlutfall en almennt þekkist í símakönnunum. Þátttakendur voru á ólíkum aldri, allt frá rétt rúmlega átján ára til rúmlega fimmtugs en aldursbreiddin var meiri í hópi þeirra þátttakenda sem voru á skrá hjá Vinnumála- stofnun. Meðalaldur þeirra sem rætt var við úr hópi 18–24 ára nemenda var 21,9 ár og meðalaldur þátttakenda sem rætt var við úr hópi VMST var 26,6 ár. Karlar voru meirihluti þátttakenda, eða alls 58,79% en konur 41,21%. Námsbak- grunnur viðmælenda var fjölbreyttur. Einhverjir nemendur höfðu átt góðu gengi að fagna en hætt námi, en fleiri áttu það sameiginlegt að hafa glímt við hindranir í námi allt aftur í grunnskóla og námsferlar þeirra báru þess merki. N I Ð U R S T Ö Ð U R Hér verður fjallað um hvernig brotthvarf birtist meðal nemenda átaksverkefnisins og hvernig það breyttist á milli anna. Því næst fáum við innsýn í bakgrunn nemenda og fyrri skólagöngu, með það fyrir augum að öðlast betri skilning á ástæðum brotthvarfs. Þar á eftir verður fjallað um helstu ástæður brotthvarfs meðal nemenda átaksverkefnisins. Að lokum verður svo fjallað um hvernig framtíðarsýn þátttak- enda birtist gagnvart frekara námi. Birtingarmynd brotthvarfs meðal nemenda átaksverkefnisins Alls innrituðust 1.479 nemendur í nám á framhaldsskólastigi undir formerkjum átaksins Nám er vinnandi vegur, haustið 2011. Talsvert brotthvarf varð úr nemendahópnum á haus- tönn eða 21,37%. Þá höfðu 88 nemendur af rúmlega fimm- hundruð manna nemendahópi VMST hætt námi eða saman- lagt 16,73%. Á sama tíma höfðu 228 nemendur af tæplega þúsund manna nemendahópi þeirra sem voru á aldrinum 18–24 ára og höfðu verið án skólavistar hætt námi, sem gerði 23,82%. Verulega dró úr brotthvarfi meðal nemenda átaksins á vorönn og mældist það 11,49% í lok annar. Það hafði því lækkað um tæplega 10% og var nánast helmingi minna en á haustönn. Þá höfðu 29 nemendur af rúmlega 300 manna nemendahóp VMST hætt námi eða samanlagt 8,98%. Á sama tíma höfðu 118 nemendur af tæplega þús- und manna nemendahópi 18–24 ára hætt námi eða 13,24%. Sé brotthvarf skoðað eftir námsbrautum fyrir hvorn hóp, annars vegar út frá bóknámi og hins vegar út frá starfs- námi, þá kemur fram að brotthvarf meðal bóknámsnema var áberandi mest af almennum námsbrautum, en þar stunda nemendur nám sem ekki hafa lokið inntökuskilyrðum inn á stúdentsprófsbrautir. Þar á eftir var brotthvarf mest af félags- fræðibraut. Brotthvarf meðal starfsnámsnema dreifðist yfir fjölda ólíkra námsbrauta á hvorri önn, en var þó einna mest í grunndeildum málmiðna og rafiðna, listnámsbraut, sjúkra- liðabraut og tölvufræðibraut. Fyrri skólaganga Fram kom í orðum þátttakenda að margir þeirra höfðu lengi glímt við hindranir í námi. Ástæður fyrir því voru fjölbreyttar og margar hindranir sem nemendur nefndu voru samfelldar yfir tíma og höfðu því haft einkennandi áhrif á alla skóla- göngu þeirra. Má þar nefna sértæka námsörðugleika líkt og lesblindu. Aðrar hindranir sem nemendur nefndu voru meðal annars athyglisbrestur, líkamleg veikindi, andleg veikindi, að upplifa sig utangátta félagslega, einelti, léleg skólasókn og áhugaleysi. Þannig var grunnskólareynsla í minningu margra þátttakenda neikvæð upplifun eða erfið. Aðrir nemendur, en þó mun færri, bjuggu að góðum árangri á grunnskólaárum og jafnvel fram á fyrstu annir framhaldsskólanáms. Í þeim til- fellum höfðu nemendur gjarnan átt sögu um þunglyndi sem varð svo síðar til þess að þeir flosnuðu upp úr námi. Enn aðrir nemendur upplifðu grunnskólaárin með jákvæðum hætti þrátt fyrir að hafa glímt við erfiðleika tengda námi og slakan námsárangur. Mikil breidd einkenndi upplifun og reynslu nemenda en hér er reynt að gera grein fyrir algengustu þemunum sem fram komu í orðum þátttakenda. Umfram allt var gengi viðmælenda í námi misjafnt og mikil breidd innan hópsins. Uppgefnar ástæður brotthvarfs samkvæmt nemendum Algengustu ástæður sem nemendur nefndu fyrir brotthvarfi voru flokkaðar í 13 þætti. Það eru atvinna, fjárhagsástæður, námsörðugleikar eða ADHD, nám ekki við hæfi áhuga eða getu, féll á mætingu eða vísað úr skóla, veikindi barna,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Gátt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.