Gátt - 2013, Side 60
60
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3
Þ R Ó U N F J A R N Á M S Á Í S L A N D I
Fjarnám er ekki nýtt af nálinni á Íslandi. Það má segja að fjar-
kennsla hafi hafist á Íslandi árið 1931 en þá hóf Ríkisútvarpið
kennslu í ensku og þýsku. Nokkrum árum síðar bættust svo
danska og íslenska við. Næsta fjarnám var Bréfaskóli SÍS sem
var stofnaður 1940, síðar Bréfaskóli SÍS og ASÍ sem starf-
aði frá 1965–1974 og loks Bréfaskólinn frá 1974. Markmið
bréfaskólanna, eins og útvarpskennslunnar, var að ná til
fólks sem ekki hafði tök á að sækja skóla.
Kennaraháskóli Íslands á sér lengstu sögu háskóla um
fjarnám á Íslandi. Fjarnámið var starfrækt með hléum allt frá
árinu 1971 til ársins 1993. Um var að ræða nám til kennslu-
réttinda fyrir leiðbeinendur í grunnskóla á landsbyggðinni en
á þessum árum var mikill skortur á menntuðum kennurum á
landsbyggðinni. Í náminu var notast við bréfaskólatæknina,
þ.e. samin voru kennslubréf sem í voru verkefni sem leysa
skyldi og senda kennurum lausnirnar. Það var svo árið 1993
að Kennaraháskólinn hóf að bjóða fjarnám með aðstoð
tölvutækninnar. Námið var fullt bakkalárnám til grunnskóla-
kennaraprófs og var það fyrst og fremst hugsað sem jafnrétti
til náms og að gera fleirum kleift að mennta sig en þeim sem
bjuggu í nánd við skóla (Þuríður J. Kristjánsdóttir og Ingi-
björg B. Frímannsdóttir 2007, Þuríður Jóhannsdóttir og Sól-
veig Jakobsdóttir, 2011).
Margt hefur breyst frá því Kennaraháskólinn hóf að
bjóða upp á fjarnám. Það sem stendur upp úr í því sambandi
er að áður fyrr var fjarnám úrræði fyrir fólk á landsbyggðinni
en nú er það val hvers einstaklings hvort hann kýs að stunda
fjarnám eða staðnám, búseta er ekki lengur forsenda vals-
ins. (Þuríður J. Kristjánsdóttir og Ingibjörg B. Frímannsdóttir
2007, Þuríður Jóhannsdóttir og Sólveig Jakobsdóttir, 2011).
Fjarnám við Háskólann á Akureyri hefur verið í gangi frá
árinu 1998 er boðið var upp á fjarkennslu í hjúkrunarfræði
í gegnum fjarfundarbúnað til Ísafjarðar (Háskólinn á Akur-
eyri, 2013). Þar er hægt að taka sumar námsleiðir í fjarnámi
og er aðallega notast við fjarfundarbúnað. Um er að ræða
staðnám, því nemendur mæta í kennslustundir þar sem fjar-
fundarbúnaður er staðsettur og taka þannig þátt í kennslunni
hvar sem þeir eru staddir á landinu (Anna Ólafsdóttir, 2004;
Háskólinn á Akureyri, 2013).
S A M A Þ R Ó U N A N N A R S S T A Ð A R
Hinar dreifðu byggðir í Skotlandi hafa átt í sama vanda og
við Íslendingar, þ.e. fólksfækkun í hálöndunum og á eyjunum
umhverfis landið. Árið 1991 var tekin ákvörðun um að skipa
ráðgjafahóp sem hefði það hlutverk að skoða möguleika á
að stofna háskóla sem þjóna myndi hálöndunum og eyjunum
með aðild háskólastofnana á svæðinu. Það sem meðal ann-
ars réði þessari ákvörðun var þróun tölvutækninnar, það er
upplýsinga- og samskiptatækni og internetið. Í því sáu menn
möguleika á að tengja stofnanir saman. Það var svo árið 1996
að ráðamenn í Skotlandi lýstu því yfir að setja ætti fjármagn
í að stofna Háskóla Hálanda og eyja. Ástæðan var sú að þar
sáu menn tækifæri til að breyta Skotlandi úr framleiðslu-
þjóðfélagi yfir í þekkingarþjóðfélag og að hinir hefðbundnu
háskólar væru of íhaldssamir til þess að geta gegnt lykilhlut-
verki í þeirri breytingu (Hills o.fl., 2003). Einnig telja Skotar
að uppbygging háskólasamfélags í skosku hálöndunum sé
lykilatriði til þess að snúa við þeirri þróun sem hefur átt sér
stað hjá þeim, þ.e. fólksflótta úr hinum dreifðu byggðum og
einhæft atvinnulíf. Framtíðarsýn Háskóla Hálanda og eyja er
að tengja saman háskóla og rannsóknarstofnanir á svæðinu
sem munu verða sambærilegar við aðrar stofnanir hvað
gæðamál varðar og gegna mikilvægu hlutverki í menntun-
arlegri, efnahagslegri, félagslegri og menningarlegri þróun
svæðisins (UHI Millenium Institute, 2005).
Sömu sögu er að segja frá Ástralíu. Vegna þess hve landið
er dreifbýlt þróaðist fjarnám á grunnskólastigi. Miklar fjar-
lægðir og erfiðar samgöngur leiddu til þess að mörg svæði í
Ástralíu urðu einangruð og fámenn og fjarnám var ódýrasta
lausnin í stöðunni. Þróun fjarnámsins þar nær allt frá árinu
1909 þegar nemendum á unglingastigi í dreifðum byggðum
var boðið upp á fjarnám sem byggðist á bréfaskóla. Eftir því
sem tækninni fleygði fram hefur hún fylgt fjarnáminu, fyrst
var það útvarpið, síðan kennsla í gegnum sjónvarp og mynd-
bönd en eftir að internetið varð að veruleika hefur nettengt
fjarnám með aðstoð tölva og fjarfundarbúnaðar tekið völdin
(Stacey, 2005). Fjarnámið er við lýði í öllu ástralska skóla-
kerfinu, allt frá grunnskóla til háskóla.
K O N U R O G M E N N T U N
Konur hafa á síðustu árum nýtt sér aukna möguleika til
að afla sér menntunar í meira mæli en karlar og nú er svo
komið að á Íslandi stunda fleiri konur háskólanám almennt