Gátt - 2013, Side 64

Gátt - 2013, Side 64
64 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3 í umhverfis málum og fara yfir alþjóðlegar rannsóknir og stefnumótun á sviðinu. Um leið vildi Virke fá upplýsingar um hvernig hægt væri að efla þróun á grænni færni. Skýrsla með niðurstöðum hefur verið lögð fram (Arbeidsnotat 4/2013 „Grønn kompetanse i tjenesteyting“). Í skýrslunni kemur fram að vinna við að koma á um- hverfis vænni starfsemi er á byrjunarstigi og frekar frumstæð. Þetta endurspeglast meðal annars í því að þeir sem fást við verkefni á sviðinu gera það sjaldnast í fullu starfi, og þeir hafa ólíkan bakgrunn, bæði hvað varðar formlega menntun og reynslu. Verkefnin snúast aðallega um að sækja gögn, stýra vottunarferlum, fylgja eftir eigin viðmiðum og kröfum stjórnvalda og hvetja til og samræma verkefni á umhverfis- sviði innan fyrirtækisins. Á S K O R A N I R U M H V E R F I S M Á L A – F R Á S J Ó N A R H Ó L I U M S J Ó N A R - M A N N A Í F Y R I R T Æ K J U M Í könnuninni undirstrikuðu umsjónaraðilar umhverfismála að ef stefnt væri að árangri í rekstri þá væri afar brýnt, fyrir nánast öll fyrirtæki, að leggja aukna áherslu á umhverfismál og sjálfbærni. Auknar umhverfiskröfur eru gerðar við öll tilboðsferli í nær öllum atvinnugeirum. „Uppskriftin“ að árangri byggir á þekktum þáttum stofnanaþróunar: Styrkum stuðningi æðstu stjórnenda, breiðri þátttöku starfsfólks og breiðri menntun og nýtingu vinnustaðarins sem námsvett- vangs. Lykiláskorun er að gera vinnuna við umhverfismálin stefnumiðaðri, kerfisbundnari og skilvirkari. Forsenda fyrir því að það heppnist er meiri athygli bæði stjórnenda og starfsfólks sem aftur veltur á pressunni frá viðskiptavinum, stjórnvöldum og öðrum ytri aðilum. Flest fyrirtækin stefna að því að leggja aukna áherslu á umhverfismál þegar til langs tíma er litið. Hagræði þess felst í því að þá er hægt að verja tíma til uppbyggingar á nauðsynlegri færni en ókosturinn er hættan á því að öll athyglin beinist að bráðaverkefnum. Færniþarfir sem umsjónaraðilar lýsa eftir og sem fjallað er um í fræðiritum um græna færni, eru langt umfram þrönga afmörkun á menntun í umhverfismálum og sérþekkingu. Til þess að árangur í umhverfismálum náist er almenn færni í upplýsingatækni, stjórnun og samskiptum afgerandi undir- stöðuatriði. Græn færni felst í því að gera allt starfsfólk fært um að takast á við viðfangsefni sem tengjast nýtingu auð- linda og umhverfis. L A U S N I N F E L S T Í Æ V I M E N N T U N Norska færniþróunarátakinu var hleypt af stokkunum í kjöl- far samstarfs norskra stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins í efnahagslægðinni við upphaf tíunda áratugarins. Að lokinni yfirferð yfir viðeigandi norsk og alþjóðleg skjöl um stefnu- mótun er meginniðurstaðan sú að norska færni þróunar- átakið hafi verið undir sterkum áhrifum frá alþjóðlegum hug- myndum um nám í atvinnulífinu. Það átti í ríkum mæli við um áhrifin af vinnunni við innleiðingu ævimenntunar sam- kvæmt tilmælum frá OECD og ESB sem veittu Norðmönnum innblástur. Þetta kemur fram í samhæfingu á orðræðu og framkvæmd í átt að auknum hreyfanleika, rýmkun og afnámi reglna og hafta sem opna stærri staðbundna markaði og efla samkeppni. Yfirferð yfir stefnumótunarskjöl sýnir ennfremur fram á að Norðurlöndin hafa þróað stefnumótun um sjálf- bæra þróun í rannsóknum og menntun og að margir háskólar stefna að því að innleiða þekkingu um sjálfbæra þróun í námið sem boðið er upp á. Í nokkrum skjölum er minnst á fullorðna launþega og þá sérstaklega í samhengi við ævi- menntun. Við lestur fræðirita um málefnið kemur í ljós að þörf sé fyrir margháttaða fræðslu og mismunandi vettvang – þar með talið atvinnulífið – til þess að unnt verði að ná takmarkinu um grænna atvinnulíf. En fram að þessu hefur ekki verið gripið til neinna aðgerða sem tengja mismunandi svið við fræðsluaðila. Enn sem komið er, er engin tenging á milli stefnu þjóða i umhverfis- og loftslagsmálum og stefnu um ævimenntun. G R Æ N A R F Æ R N I U M B Æ T U R Fengur yfirferðarinnar varpar ljósi á þörf fyrir grænar færniumbætur sem ná til fyrirtækja, launþega og fræðslu- aðila. Hvorki fyrirtækin, faglega umhverfisfræðslukerfið né fræðslustofnanirnar virðast vera þess umkomin að efla græna færni langflestra launþega. Á heildina litið virðist yfirferð yfir fræðirit, skjöl sem og viðtöl við umhverfisum- sjónaraðila í fyrirtækjunum, benda til þess að þörf sé fyrir grænar færniumbætur. Umbætur með það að markmiði að þróa græna færni á víðu sviði atvinnulífsins gætu leitt til nýs verkfæris í verkfærakistu umhverfisyfirvalda. Umbæturnar ættu að grundvallast á samstarfi ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins gjarnan með stjórnvöld umhverfismála í veigamiklu hlutverki og í nánu samstarfi við yfirvöld í mennta- og fræðslumálum. Ögrunin liggur í því að það
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Gátt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.