Heima er bezt - 01.04.2003, Síða 7
Sigurður Jósefsson í hlíðinni ofan við Fjósa-
tungu, kominn yfir Bíldsárskarð á slóðir for-
feðra í Fnjóskadal.
Mynd tekin við gljúfur Torfufellsár, séð austuryfir Eyja-
farðardal. Handan árgljúfursins er nú vaxinn upp skóg-
ur, sem Sigurður og jjölskylda hafa ræktað.
8 barnabörn Sigurðar og Svövu í skógarreit þeirra 1990.
Talið frá vinstri: Steinbjörn Jónsson, Svava Björg Ein-
arsdóttir, Harpa Soffia Einarsdóttir, Steinar Már Ás-
grímsson, Sigurður Jósef Arnason. Aftast: Sigurður Arni
Jósefsson með Jón Þór Árnason. Börnin hafa að sjálf-
sögðu stækkað síðan myndin var tekin en trén þó sýnu
meira.
Ibúðarhús Sigurðar og Svövu í Torfufelli.
Myndin er frá 9. áratugnum
báðar ættir hefiir ævinlega verið mikil og góð
frændrækni.
Ég vil geta þess hér að þegar ég er á öðru ári
þá veikist móðir mín svo að það er rúmt ár sem
hún er sjúklingur og ekki heima. Á þeim tíma
er ég í fóstri hjá Margréti móðursystur minni á
Grund og þá eru líka komin þar foreldrar henn-
ar, Hólmfríður og Sigurður, og eyddu sínu ævi-
kvöldi þar. I báðum þessum ættkvíslum hafa
verið haldin ættarmót til að treysta frændsem-
ina og allt hefur verið mjög ánægjulegt í sam-
bandi við það.
Til dæmis var á einu þessu ættarmóti hjá Snæbjamar-
staðaættinni, farin einskonar pílagrímsför að Snæbjamar-
stöðum í dýrðlegu veðri og þá var Fnjóskadalurinn fagur.
Ég elst upp í Torfúfelli og bjó þar minn búskap allt fram
að 1989, þá flytjum við hjónin í bæinn og höfúm búið hér á
Akureyri síðan.
Kristneshæli og mjólkursamlag
Um uppvaxtarár mín vil ég segja að ég hafi átt frekar
áhyggjulausa bemsku og æsku, án stórtíðinda er snertu mig
beint.
Þegar ég lít til baka og rifja upp einstaka stærri viðburði í
nánasta umhverfí mínu allra fyrstu æviárin, þá staðnæmist
ég einkiun við tvennt.
Einhveijum vikum eftir að ég fæðist þá er Kristneshæli
tekið í notkun. Þetta var mjög merkilegt framtak því að
berklar geisuðu í héraðinu og felldu fólk alveg unnvörpum.
Á þeirri stofnun hefúr verið unnið alveg ótrúlegt þrekvirki
með því starfsliði sem hún hefúr átt á að skipa. Ég vil geta
þess í leiðinni að þeir sem höfðu fyrsta frumkvæði að undir-
búningi að byggingu Kristnesspítala eða Kristnesshælis,
eins og það var alltaf nefnt, var Hjúkrunarfélagið Hjálpin í
Saurbæjarhreppi, sem breytti svo nafni sínu í Kvenfélagið
Hjálpin og starfar enn í dag með tiltölulega góðum krafti, þó
Heima er bezt 151