Heima er bezt - 01.04.2003, Side 8
Nánasta umhvefi Grána. Nœst
er Sesseljubúð, þá Gráni og
framhjá honum streymir Geld-
ingsá fram. Myndin tekin í áður-
nefndum leiðangri á Eyfirðinga-
vegi 22. ágúst 1980.
(Ljósmynd: Rúnar Sigþórsson.)
félagskonum fækki nú í samræmi
við fækkun í sveitum.
Hitt atriðið, sem skipti mikið
sköpum í Eyjafirði, það var aftur
ári seinna, 1928, stofnun mjólk-
ursamlagsins. Það gjörbreytti al-
veg búskaparaðstöðu í Eyjafirði,
sem fram til þess hafði ekki mikil
vaxtarskilyrði sakir þéttbýlis og
landþrengsla til sauðfjárbúskapar.
En sakir veðursældar og öruggrar
heyöflunar á vel ræktuðum túnum, hentar héraðið vel til
nautgriparæktar eins og reynslan sannar og lyfti eínahag
bænda á hærra plan en annars hefði orðið.
Saga mjólkursamlagsins er samfelld síðan og hefur lengst-
um einkennst af vexti og viðgangi. Um það eru til nægar
heimildir. Þar var Jónas Kristjánsson frá Víðigerði helsta
driffjöðrin og stjómandi um áratugaskeið. Hann lærði, ég vil
segja, mjólkurffæði í Danmörku og var hvatamaður og vann
manna mest að þessari stofnun, sem hefur verið mikið gæfú-
Gangnakofinn Gráni. Myndin tek-
in 22. ágúst 1980 í ferð sem farin
var til að endurreisa gamlar vörð-
ur á svokölluðum Eyfirðingavegi,
fornri þjóðleið sem liggur frá
Vatnahjallavegi að Eyfirðingavaði
á Jökulsá eystri.
(Ljósmynd: Rúnar Sigþórsson)
spor fyrir héraðið og landbúnaðinn í
heild. Vilhjálmur Þór var þá kaupfé-
lagsstjóri og stóð einbeittur á bak
við þetta framtak.
Félagslíf í fjölmennri
sveit
Á þessum tíma, á fyrstu áratugum
tuttugustu aldarinnar og millistríðsárunum, var mjög marg-
mennt í Saurbæjarhreppi. Ég sá í einhverri heimild að þá
hafi verið yfir 600 íbúar í sveitarfélaginu. Þá hafa sennilega
verið um 70 býli í byggð en mikill fjöldi af þeim er kominn í
eyði núna. Á stærri jörðum var tvíbýlt og þríbýlt, áður en
fólk fór að flytjast á mölina, hingað til Akureyrar. En á
fjórða áratugnum, árunum fyrir seinni heimsstyrjöldina, þá
streymdi fólk úr sveitinni hingað í bæinn og það hafði á
vissan hátt lamandi áhrif á félagslíf í sveitinni.
Varðan Drottning endurreist og auðkennd með
nafni sínu. Hjá henni standa Þorlákur Hjálm-
arsson frá Villingadal vinstra megin og bróðir
hans, Angantýr Hjörvar, hægra megin. Mynd
þessi einnig tekin 22. ágúst 1980.
(Ljósmynd: Rúnar Sigþórsson)
152 Heima er bezt