Heima er bezt - 01.04.2003, Blaðsíða 22
agbókarminnisblöðin og mynd-
imar úr albúminu að þessu sinni
eru úr Kaupmannahafnarferð okkar
Sigrúnar konu minnar, dagana 21.
maí til 4. júní 1996.
Ég get ekki neitað því að frá upp-
hafi ferðar í Keflavík hafði ég hlakk-
að til að heimsækja þessa víðkunnu
borg, ennþá einu sinni, borg glað-
værðar og velmegunar, enda eru Dan-
ir ljúfir í viðmóti og góðir heim að
sækja.
Það hvílir móða yfir borginni við
sundið í aðflugi Boeingþotunnar að
Kastrupflugvelli þennan dag, þung
hitamóða. Hinir mörgu turnar Kaup-
mannahafnar sjást eins og í þoku en
þegar við göngum út úr flugstöðinni
vottar fyrir svalri hafrænu, jafnvel
með lykt af sjávarseltu utan frá Eyr-
arsundi. Hin mikla elfur fólks, sem
flæðir um göturnar þessa daga, fer
sér óvenju hægt og menn bera ekki
166 Heimu er bezt
á slóðir
höfundar
Basils fursta
og fleira
fólks
meiri klæði en svo að fullnægt sé al-
mennu velsæmi. Malbikið á götunum
er sem glóandi rist. Sumir þjást af
hita, aðrir kunnu veðurfarinu vel.
Heimurinn er fullur af andstæð-
um, jafnvel í Kaupmannahöfn.
Eins og mörgum mun kunnugt
eru Danir iðjusamir og kunna vel
fótum sínum forráð. En þeir eig-
inleikar, ásamt góðum stjómar-
háttum um langt skeið, hafa skap-
að þar almenna velmegun og
vellíðan, sem ekki fer
framhjá neinum er sæk-
ir þá heim. Verslun
og viðskipti mikil,
, Den lille
havfrue ",
tákn
Kaup-
manna-
hafnar.