Heima er bezt - 01.04.2003, Síða 33
Minningar eiga rík ítök í okkur flestum. Það er eins og ég
sagði eitt sinn, er við gamlir skólafélagar hittumst eftir
langa íjarvcru:
Efviö hefðum ekki neins að minnast,
ósköp vœri lífið gleðisnautt.
Þeir, sem aldrei öðrum fá að kynnast,
endurfunda bíða munu trautt.
Þeir, sem lífi þjóna eins og Gísli,
þarna í sinni eyðilegu sveit,
verða eflaust veraldar í sýsli,
viðundur á mannfélagsins reit.
Já, það væri ömurleg tilvera. En staðreynd er, að margt
fólk lokar sig af, vitandi vits, og gerir þar með líf sitt fátæk-
legt og einhæft. Félag eldri borgara víða um land á aðallega
tvenns konar hlutverki að gegna: að ijúfa einangrun og
auðga þannig mannlífið og í öðru lagi að lagfæra íjárhags-
legar aðstæður. Þetta skilar árangri með tímanum. En það
skilar engu, að hver sitji í sínu homi og tali við sjálfan sig.
Mér barst bréf ffá Jóhönnu Helgu Halldórsdóttur á
Brandsstöðum í Blöndudal. Hún segir:
„Einn góðan veðurdag hittust þeir, vinimir Rósberg G.
Snæadal og Angantýr Jónsson, örlítið við skál, að Fagranesi
í Langadal. Þegar þeir kvöddust, höfðu þeir bundið það
fastmælum, að sá sem dæi seinna en hinn, yrði að yrkja eft-
irmæli um þann, sem færi á undan. Eftirmælin em úr fómm
Bylgju Angantýsdóttur á Móbergi, dóttur Angantýs. Finnst
mér vel við eiga, að þau birtist í vísnaþætti Heima er bezt
að þessu sinni. Um leið er Angantýr hagyrðingur aprílmán-
aðar.
Rósberg G. Snædal, rithöfundur og skáld.
Fæddur8. 8. 1919, dáinn 9. 1. 1983.
Að mér færist fregnin slík;
fljótt á sœring dynur,
að þú vœrir liðið lík,
Ijóðakæri vinur.
Heljar slóðir hniginn á;
hnignar óðar hlynum.
Drengur góður fallinn frá,
fœkkar óðar vinum.
Þín var besta bragaglóð
bráðvel sett í letur.
Einatt mestur ortir Ijóð
öðrum flestum betur.
Eg þess minnist ávallt hér
við öll mín kynni fræða:
geymist inni í muna mér
máttur þinna kvæða.
Þó á sigi þokuloft
og þrýsti á nýjar undir,
í sumarfríum œði oft
áttum hlýjar stundir.
Vel úr lœðing leystum firá
Ijóða að glæða vökur.
Oft í næði undum þá;
ortum kvœði og stökur.
Agœt kynni eru mér
uppgrip þinna Ijóða.
Ljúfa inni á ég hér
endurminning hljóða.
Kveð þig, vinur, klökkt með þel,
kuldahrinum sleginn.
Lifðu í skini Ijóssins vel
í landinu hinu megin.
Þetta kvað Angantýr 18. janúar 1983, eða 9 dögum eftir
lát Rósbergs, vinar síns. Angantýr er látinn fyrir allmörgum
árum. Hann var sonur Jóns Þorfinnssonar og Guðrúnar
Arnadóttur ffá Lundi, sem var þekktur skáldsagnahöfundur.
Jón var góður hagyrðingur, svo að Angantýr átti ekki langt
að sækja hagmælskuna. Eftir Jón Þorfinnsson er þessi vísa,
sem er dæmi um vel gerða stöku og lipurt kveðna :
Nótt að beði sígur senn;
sofnar gleði á vörum.
Við skulum kveða eina einn
áður en héðan förum.
Eitt sinn hittust Rósberg og Angantýr á Skagaströnd, en
Heima er bezt 177