Heima er bezt - 01.04.2003, Page 45
stundað það þó nokkuð að fara í ferðalög, bæði hérlendis og
erlendis og orðið þau eítirminnileg.
Við höfum komist lengst til Austurríkis og Ítalíu, einnig
heimsótt Norðurlöndin svo og Bandaríkin og Kanada.
Hér innanlands höfum við ferðast bæði um öræfi og
byggðir. Við höfum líka farið í fjallgöngur eftir að við flutt-
um úr sveitinni, til dæmis gengið yfir Nýjabæjaríjall yfir til
Skagafjarðar fyrir svona einum ijórum eða fimm árum, sem
þykir nokkuð erfiður fjallgarður. Við vorum þar á göngu í
eina tíu tíma og lentum í kafþoku en það kom ekki að sök en
tafði okkur aðeins og gistum svo í Hildarseli í Austurdal.
Gengum svo heimleiðis um Austurdal daginn eftir í glamp-
andi sólskini. Við vorum þama ásamt öðmm hjónum, sem
hafa farið með okkur í fjallgöngur og ferðast þó nokkuð
með okkur. Ég hafði samið við þann ágæta mann sem þá var
við líði, Helga á Merkigili, að koma á sínum jeppa fram að
Ábæ, sýna okkur kirkjuna og keyra okkur svo út að Merki-
gili, sem er þó nokkur vegalengd, á sömu forsendum og
hann gerði fyrir Ferðafélag Akureyrar, við vorum þá sex
sem gengum yfir fjallið og gistum líka í Hildarseli. Við átt-
um í bæði þessi skipti mjög góðan dag með Helga, hann hélt
okkur svo veislu heima á Merkigili. Hann var mikill höfð-
ingi heim að sækja og sorglegt hver hans endalok urðu.
Nú, svo em ekki nema þijú ár síðan ég gekk á mitt gamla
fjall, Torfufellið, og þá hafði ég ekki farið það í ein fimmtán
ár og mér fannst það hafa hækkað nokkuð.
Einnig hefi ég ferðast nokkuð á hestum. Það em alveg frá-
bær ferðalög að vera í góðra vina hópi á hestum og maður
kemst ekki í betri snertingu við landið á annan hátt.
Það em ekki nema tvö ár síðan að synir mínir og tengda-
dætur drifu mig í það að fara með sér vestur yfir Hjaltadals-
heiði. Við vomm tvo daga í Skagafirði og fómm hinn seinni
út á Kolkuós. Fómm svo Heljardalsheiði til baka og niður í
Svarfaðardal. Þetta var hin ágætasta ferð og þá var ég búinn
að fara yfir flest ijallaskörð á Tröllaskaga, hafði klárað það
dæmi. Ég hef farið allmargar ferðir um Þingeyjarsýslu.
Ég vil að lokum segja nokkm nánar ffá einni ferð sem við
fórum frá Akureyri ffam Eyjafjörð og höfðum náttstað á
Torfufelli. Lögðum síðan næsta morgun upp þaðan, fómm
ffam á Vatnahjalla og síðan leið sem ekki er almennt farin
en ég hafði kynnt mér hana, fórum vestur á milli Lfrðarvatna
og niður með Hvítárdal hinum syðri, fómm ekki niður Hvít-
ármúlann sem er á milli Hvítárdalanna, heldur sunnan við
Syðri-Hvítárdalinn og það er tiltölulega greiðfær leið og ran-
inn niður í Austurdalinn er miklu mildari og greiðfærari. Við
riðum svo niður allan Austurdal, yfir Merkilgilið, niður í
Kelduland og hvíldum þar heilan dag hjá Stefáni bónda og
fómm á Vindheimamela þar sem þá var hestamannamót.
Eftir þá hvíld fórum við út Norðurárdal, yfir Hörgárdals-
heiði og höfðum nætursetu í Hörgárdal hjá Ármanni á
Myrkárbakka. Síðasta áfangann fórum út og yfir hjá
Vindheimum á Þelamörk, yfir heiðina þar og niður í
Kræklingahlíð. Enduðum í hesthúsahverfunum hér ofan
við bæinn og var þá orðið nokkkuð kvöldsett. Ferðalagið
tók þannig fimm daga með hvíld einn daginn, við vorum
heppin með veður og þetta var hin ágætasta ferð.
MELTINGAR-
BÓT
Þrjár tegundir áhrifaríkra
mjólkursýrugerla frá Institut
Rosell, sem eru hluti af
náttúrulegri þarmaflóru
líkamans. Inntaka mjólkur-
sýrugerla er árangursrík leið
til að viðhalda jafnvægi og
reglu á meltingu.
í hverju hylki eru 5 billjónir
lifandi gerla.
Lýsi hf
www.lysi.is