Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2008, Page 8

Heima er bezt - 01.08.2008, Page 8
Ólafur Björn. Fjölskyldan saman komin. Framhaldsskólanám Hvernig komstu inn í Menntaskólann á Akureyri? Eg sótti um undirbúningsbekk í svonefndum „Prestaskóla" á Sauðárkróki, sem séra Helgi Konráðsson stóð fyrir. Hann var ágætur fræðari. Margir nemendur í þessum unglingaskóla tóku inntökupróf upp í bekki í M. A. Manstu eftir einhverjum, sem tóku inntökupróf um leið og þú? Jú, þar má nefna Magnús Jónsson frá Mel og Bjöm Jónsson, lækni, lengi í Swan River í Kanada, og oft var nefndur Bjössi Bomm, en við vorum bræðrasynir. Við lukum stúdentsprófi vorið 1940; Þá útskrifuðust 47 frá M. A. Mjög fróðlegt er að blaða í nemendatalinu „M.A.-stúdentar“, 1927-1978, sem komin eru út 6 bindi af. Því má bæta við, að ég tók talsverðan þátt íþróttum í MA, og skíðaíþróttina hef ég stundað allmikið í skóla og síðar. Ég nennti ekki að lesa stærðfræði, en ég var í stærðfræðideild, vegna væntanlegs náms í lyljafræði. Ég hlaut ekki háa einkunn á stúdentsprófi, og fannst það ekki skipta máli. Ég var hins vegar allgóður í tungumálum og íslensku. Skólameistari í minni tíð var Sigurður Guómundsson, 296 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.