Heima er bezt - 01.08.2008, Blaðsíða 9
Heiði í Gönguskörðum.
Auk þess hef ég birt margt tímaritsgreina í Lesbók
Morgunblaðsins, Arbók Ferðafélags Islands, Farfuglum, Arsriti
Útvistar og víðar. Þá hlaut ég gulllauf Garðyrkjufélagsins.
Mér þykir vænt um þessar viðurkenningar.
Hagmæltur og lagvís
Stefán Stefánsson, bóndi
Heiði, langafi Ólafs
Björns.
magister, eða Siggi grái, eins
og hann var oft nefndur í
daglegu tali. „Þú ert af
slektinni", sagði meistari við
mig, og átti við það að ég
væri af Veðramótsættinni.
Störf eftir stúdentspróf
Fljótlega eftir að ég hafði lokið stúdentsprófi hóf ég starf
í Reykjavíkurapóteki. Flúsbóndi minn þar var Þorsteinn
Scheving Thorsteinsson. Þar fannst mér gott að starfa. Svo
lá leiðin til framhaldsnáms í lyijafræði til Kaupmannahafnar,
þar sem ég stundaði nám við Farmaceutiske Höjskole.
Þá var ég orðinn tjölskyldumaður. Við bjuggum rétt við
Gentoftevatn. Þá var ég alltaf á reiðhjóli, eins og Danir voru
jafnan. Fyrsta barnið okkar, sonurinn, Bjöm Már, fæddist
ytra. Kona mín var með verslunarpróf. Húsnæði okkar var
eitt lítið herbergi.
Heim komum við 1948, eftir þriggja ára dvöl í Kaupmannahöfn
og starfaði ég eftir það á sama stað sem lyíjafræðingur til
ársins 1962. Frá þeim tíma var ég yfirlyijafræðingur til
aldursmarka.
Þú ert hagmæltur og lagvís og hefur yndi af söng og
félagslífi.
Hvemig væri að birta hér eitt ágætt ljóð eftir þig, sem
hefur verið mikið sungið, og ég lærði ungur, eins og svo
margir? Á ég hér við ljóðið „Söngur förusveinsins“, undir
lagboðanum „The happy wanderer".
Söngur förusveinsins
Eg er hinn frjálsi förusveinn,
á ferð með staf og mal.
Minn boðskap fallablærinn hreinn
skal bera niður í dal.
Viðlag:
Félagsmálastúss og ritstörf
Þii hefur talsvert sinnt félagsmálum, er það ekki?
Jú, ég hef gert það í nokkrum mæli. Eg var formaður
Lytjafræðingafélags íslands, í stjórn Hins íslenska
Náttúrufræðifélags, og Garðyrkjufélags Islands. Mér er
allur gróður til yndis, og þess vegna hef ég ritað mikið um
það efni.
Falleri- fallera- fallera,
falleri- ha -ha- ha - ha- falleri-failera,
skal bera niður í dal.
Um förusveinsins frjálsa veg
ogjjöUin mín ég syng.
Að kveldi glaður gisti ég
á grænum mosabing.
Heima er bezt 297