Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2008, Page 11

Heima er bezt - 01.08.2008, Page 11
* Brotasilfur um BILFERÐIR Oft verdur mér til þess hugsað þegar ég er aðfara með fólk hér innanbœjar sem raunar kemur oft fyrir, hversu oft maður hefur gjört svo um dagana og ekki alltafá jafngóðum og greiðfœrum akbrautum og hér eru innan borgar sem utan. akklátur er ég í dag fyrir það að hafa gjört svo óteljandi sinnum og nær aldrei haft annað upp úr krafsinu en þakklæti þeirra sem ekið var með. Heima í Seljateigi, 1956, keyptum við faðir minn, aðallega þó hann, fyrsta fararskjótann okkar á fjórum hjólum, Rússa-jeppann góða, sem ég notaði til margs kyns brúks í 14 ár, flutti fé í honum, dró heyvinnsluvélar og heyvagna, að ógleymdum ferðum með fólkið mitt og fleiri, já, svo miklu fleiri. Rússajeppinn var ágætur, blæjubíll raunar en miðstöðin góð og þó neita ég því ekki að oft var heldur kuldalegt um að litast í bílnum í verstu vetrarveðrunum, þegar fara skyldi í skólann á morgnana þessa þriggja kílómetra leið og oft sat hann fastur - og þó, hann var undragóður í snjó og aðrir bílar áreiðanlega ekki betri. En þetta átti nú ekki að vera minningaþáttur um Rússajeppann U-362 og þó aðeins eitt í viðbót: Þegar ég seldi hann eða svo til gaf Halldóri mínum í Teigagerði sem eins konar varahluti í miklu yngri jeppa hans, þá undraði það mig að fáeinum dögum seinna var Halldór kominn á jeppann sem áður var U-362 og hafði þá þótt betra að nota sinn í varahlutina og ók á bílnum sem ég lét hann hafa eitthvað eftir það. Já, farþegamir með jeppanum mínum góða vom æðimargir og m.a. naut Þórir frændi minn Gíslason góðs afþví í skóla og úr og það gjörðu þau Sléttusystkini líka rækilega og stundum farið eftir þeim á morgnana þegar verra var eða þeim skilað heim einnig. Vel man ég það líka, þegar við urðum mjólkurlaus talsverðan tíma heima, að þá sótti ég mjólk suður að Sléttu, allnokkurt magn nær hvem dag og þegar greiða skyldi þá hló hún Guðbjörg vinkona mín á Sléttu að mér og sagði að nær væri, að þau borguðu mér fyrir allan skólaaksturinn og trúlega hefur eitthvað verið til í því. Hún minnti mig líka á ferðimar með Baldur bónda sinn af ýmsu tilefni m.a. af fundum í hreppsnefnd þar sem við Heima er bezt 299

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.