Heima er bezt - 01.08.2008, Qupperneq 11
* Brotasilfur um
BILFERÐIR
Oft verdur mér til þess
hugsað þegar ég er aðfara
með fólk hér innanbœjar
sem raunar kemur oft fyrir,
hversu oft maður hefur
gjört svo um dagana og
ekki alltafá jafngóðum og
greiðfœrum akbrautum og
hér eru innan borgar sem
utan.
akklátur er ég í dag fyrir það að
hafa gjört svo óteljandi sinnum
og nær aldrei haft annað upp úr
krafsinu en þakklæti þeirra sem ekið
var með.
Heima í Seljateigi, 1956, keyptum
við faðir minn, aðallega þó hann, fyrsta
fararskjótann okkar á fjórum hjólum,
Rússa-jeppann góða, sem ég notaði
til margs kyns brúks í 14 ár, flutti fé í
honum, dró heyvinnsluvélar og heyvagna,
að ógleymdum ferðum með fólkið mitt og
fleiri, já, svo miklu fleiri. Rússajeppinn
var ágætur, blæjubíll raunar en miðstöðin
góð og þó neita ég því ekki að oft var
heldur kuldalegt um að litast í bílnum í
verstu vetrarveðrunum, þegar fara skyldi
í skólann á morgnana þessa þriggja
kílómetra leið og oft sat hann fastur -
og þó, hann var undragóður í snjó og
aðrir bílar áreiðanlega ekki betri.
En þetta átti nú ekki að vera
minningaþáttur um Rússajeppann U-362
og þó aðeins eitt í viðbót: Þegar ég seldi
hann eða svo til gaf Halldóri mínum
í Teigagerði sem eins konar varahluti
í miklu yngri jeppa hans, þá undraði
það mig að fáeinum dögum seinna var
Halldór kominn á jeppann sem áður var
U-362 og hafði þá þótt betra að nota
sinn í varahlutina og ók á bílnum sem
ég lét hann hafa eitthvað eftir það.
Já, farþegamir með jeppanum mínum
góða vom æðimargir og m.a. naut Þórir
frændi minn Gíslason góðs afþví í skóla
og úr og það gjörðu þau Sléttusystkini
líka rækilega og stundum farið eftir þeim
á morgnana þegar verra var eða þeim
skilað heim einnig. Vel man ég það líka,
þegar við urðum mjólkurlaus talsverðan
tíma heima, að þá sótti ég mjólk suður
að Sléttu, allnokkurt magn nær hvem
dag og þegar greiða skyldi þá hló hún
Guðbjörg vinkona mín á Sléttu að mér
og sagði að nær væri, að þau borguðu
mér fyrir allan skólaaksturinn og trúlega
hefur eitthvað verið til í því.
Hún minnti mig líka á ferðimar með
Baldur bónda sinn af ýmsu tilefni m.a.
af fundum í hreppsnefnd þar sem við
Heima er bezt 299