Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2008, Qupperneq 23

Heima er bezt - 01.08.2008, Qupperneq 23
Það sem fer til spillis hefur einnig áburðaráhrif og nærir gróðurinn. Fýllinn er auðveld bráð fyrir tófu sem sækir í vörpin og tekur þar bæði egg, unga og fullorðinn fugl. Ingólfur í Drangshlíðardal fræddi okkur um refinn og fylinn en Ingólfur lá oft á greni fyrr á árum. Við tófugreni undir Eyjaljöllum er oftast mikið um fylshræ og fýlaþefur í lofti þegar komið er að þeim. Nefndi hann sem dæmi að eitt sinn hefði hann komið að greni þar sem tófan geymdi fýl í bunka í holu skammt frá greninu. Fleiri eltast við fýlinn en refurinn. Kjóinn og svartbakurinn ráðast á hann á flugi og neyða til að æla og hrafninn rænir hann bæði eggjum og ungum. Fýlnum hafa því fylgt miklar breytingar á kjörum gróðurs og dýra þar sem hann hefur tekið heima. Hvað hefur gerst frá 1980? Eftir þessar athuganir okkar á fylsvörpum í Rangárvallasýslu sumarið 1980 hefur ekki verið haldið þar áfram rannsóknum. Vafalítið hafa þar orðið einhverjar breytingar sem forvitnilegt væri að kanna nánar. Víða í norðurhöfum hafa sjófuglar átt undir högg að sækja síðustu ár og er þar m.a. kennt um ofveiði á fískistofnum og loftslagsbreytingum sem hafa áhrif á stærð og göngur stofna sem fuglarnir byggja afkomu sína á. Svör við slíkum vangaveltu fást ekki nema með reglubundnum talningum og vöktun sem stunduð er ár eftir ár. Það vakti ekki fyrir okkur árið 1980 að hefja slíka vöktun, fremur höfðum við hug á að skrá útbreiðslusögu fýlsins í sýslunni, kortleggja vörpin og fá mynd af fjölda fugla í byggðunum. Vorið 2008 heimsótti ég aftur þrjú vörp í Rangárvallasýslu til að forvitnast um hvort miklar breytingar hefðu orðið á útbreiðslu og fjölda fugla þar frá 1980. Þann 1. júní skoðaði ég varpið í Skútugili í Vatnsdalsfjalli sem er tæpan klukkustundar gang frá sumarhúsi mínu á Reynifelli á Rangárvöllum. Þar hef ég séð til fýla á sveimi úr ljarska í gegnum árin en ekki talið fuglana aftur fyrr en nú. Þann 24. maí 1980 töldum við þar 18 hreiður. Nú, 28 árum seinna, bar hins vegar svo við að aðeins 7 hreiður voru í varpinu og höfðu fuglamir allir þjappast í sama hamarinn en voru dreifðari áður. Þótti mér þetta merkilegt og vöknuðu spumingar. Gaf þetta vísbendingu um að fýl hefði fækkað annarsstaðar? Þann 6. júní 2008 skoðaði ég því einnig vörpin í Flókastaðagili í Fljótshlíð og í gilinu með Kvemá við Skóga undir Eyjafjöllum. Á þessum stöðum kom annað á daginn. I Flókastaðagili höfðum við talið 13 hreiður í lok maí 1980 en í þessari seinni talningu voru þau orðin 34 og hafði fuglinum því stórfjölgað þar. Þess ber að geta að fyrst varð vart við varp þar í gilinu árið 1977 og er líklegt að það hafi ekki verið fúllnumið árið 1980 þegar við töldum þar fyrst. Með Kverná er elsta og langstærsta varpið af þessum þremur. Þar byrjaði fýll að verpa um 1960 eins og fram hefur komið. Árið 1980 töldum við fugla í gilinu 12.júlíog voruþarþá 373 hreiður sem umreiknast í yfir 700 varppör við upphaf varptíma 20. maí. Kvemugil er einn þeirra staða þar sem við töldum varpfugla reglubundið yfir sumarið 1981. Þann 1. júní 1981 voru þar 521 hreiður. Talningin 6. júní 2008 Skútufoss í Fiská og Skútugil innan við Árgilsstaði í Hvolhreppi. Lítið Jylsvarp er í hamri við fossmiguna í gilinu til vinstri á myndinni. Varpið er um 25 km frá sjó og er eitt minnsta og afskekktasta varpið sem kannað var 1980. Arið 2008 hafði Jyl fækkað þar um meir en helming. Ljósm.: B.M. gaf nánast sömu niðurstöðu eða 523 hreiður og eru þá ekki talin með 12 hreiður á nýjum stað ofar með gilinu þar sem varp hafði ekki verið 1980. Þegar farið var um hlaðið á Skógum í júní 2008 veitti ég því einnig athygli að fýll var tekinn að verpa í litlu gili rétt ofan við Skógaskóla þar sem varp hafði ekki verið 1980. Þessar litlu athuganir vorið 2008 benda því til að fýllinn hafist vel við í Rangárvallasýslu og hafí haldið áfram að færa út kvíamar eftir 1980. Að lokum vil ég þakka öllu því góða fólki sem varð á vegi okkar sumarið 1980, greiddi götu okkar og fræddi um sögu fýlsins í Rangárvallasýslu. Sumt af því er horfíð yfir móðuna miklu. Elíasi Sveinssyni aðstoðarmanni mínum þakka ég áhugann og dugnaðinn á ferðum okkar. Njáll Sigurðsson veitti mér mikla hjálp við talningar og ferðir um Þórsmerkursvæðið og inn með Markarfljóti. Ævari Petersen fuglafræðingi á Náttúrufræðistofnun íslands þakka ég stuðninginn við að koma verkefninu af stað og Anette Theresia Meier á sömu stofnun fyrir vandvirkni og þolinmæði við gerð korta. Vísindasjóður íslands og Sýslusjóður Rangárvallasýslu styrktu rannsóknina og er þeim þakkað. Heima er bezt 311
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.