Heima er bezt - 01.08.2008, Qupperneq 30
Hátignin Konstantín konungur og
Anna-María drottning Hellena á
leið í móttöku að kvöldi
giftingardags síns í september 1964.
Hellena) við flestar konungshirðir, þar
á meðal í Bretlandi, á Spáni, í Luxemborg
og Jórdaníu. Hún er kölluð Anna-María
drottning (án nokkurra tengsla við eitthvert
land) við hirðimar í Danmörku og Svíþjóð.
Við hirðina í Hollandi er hún kölluð
„fyrrum drottning Grikklands“.
Árið 1980 stofnuðu þau Anna-María og
Konstantín Hellenska háskólann í London,
tvítyngdan skóla, þar sem þeirra eigin börn
fengu menntun. Anna-María er sem stendur
heiðursformaður skólastjómarinnar.
Ríkisstjóm Grikklands leyfði Önnu-
Maríu ekki að koma aftur til Grikklands
fyrr en árið 1981, þegar henni var
gefið leyfi til að stíga á gríska gmnd
í nokkra klukkutíma, til þess að vera
viðstödd jarðarför tengdamóður sinnar,
Frederiku drottningar. Fjölskyldan fór í
einkaheimsókn til Grikklands árið 1993.
Síðan 2003, þegar niðurstaða fékkst í
deilum manns hennar, Konstantíns og
grísku ríkisstjómarinnar, hefur Anna-María
heimsótt Grikkland mörgum sinnum.
Árið 2003 komu þau hjónin á laggimar
Önnu-Maríu stofhuninni, fyrir peningana
sem ríkistjóm Grikklands greiddi þeim í
bætur fyrir ólögmæta upptöku á eignum
þeirra. Stofhunin aðstoðar fómarlömb
náttúmhamfara, svo sem jarðskjálfta
og flóða í Grikklandi.
14. ágúst 2004 heimsóttu þau hjón,
Anna-María og Konstantín fyrrum heimili
sitt í Aþenu, gömlu konungshöllina, sem
nú er aðsetur forseta iandsins, og var
það í fyrsta sinn síðan 1967, sem þau
Konstantín konungur á yngri árum.
Stephaopoulos, ásamt fleiri meðlimum
alþjóðlegu Ólympíunefhdarinnar (en
Konstantín er heiðursfélagi í henni). í
desember árið 2004 var þeim Konstantín,
Önnu-Maríu og bömum þeirra aftur boðið
þangað í einkaheimsókn af Stephanopoulos
forseta.
Anna-María og Konstantín eiga fimm
börn. Þau eru:
Alexia prinsessa af Danmörku og
Grikklandi, fædd 10. júlí 1965, gift
Carlos Morales Quintana.
Pavlos, krónprins af Grikklandi, prins
af Danmörku, fæddur 20. maí 1967,
giftur Marie-Chantal Miller.
Nikolaos prins af Grikklandi og Dan-
mörku, fæddur 1. október 1969.
Theodora prinsessa af Grikklandi og
Danmörku, fædd 9. júní 1983.
Pilippos, prins af Grikklandi og Dan-
mörku, fæddur 26. apríl 1986.
Titlar og nafnbætur sem Anna-María
hefur borið:
Hennar konunglega tign, Anna-María
prinsessa af Danmörku (1946-1964).
Hennar tign, drottning Grikklands (eða
drottning Hellena) (1964-1973).
Hennar tign, Anna-María Grikklands-
drottning (eða Anna-María drottning
Hellena), notað utan Grikklands frá
árinu 1973 og enn í dag.
Anna-María de Grecia (notað í
Grikklandi ffá árinu 2003 og enn í
dag).
Anna María á yngri árum.
stigu þar fæti. Tekið var á móti þeim af
þáverandi forseta Grikklands, Costis
Frederika, Hýgift.
móðir
Konstantíns.
Konungshjónin.
318 Heima er bezt