Heima er bezt - 01.08.2008, Page 36
VETRARFERÐ
Ari Sigurðsson:
I desembermánuði árið 1975
fór undirritaður í óvœnt
ferðalag til lítils þorps, sem
er staðsett við Yukon fljótið
langt inn í víðáttum Alaska.
tilAlaska 1975
Vinafólk okkar hjónanna hafði
búið nokkur ár í þorpinu þar sem
maðurinn starfaði sem rafvirki.
Ástæða fyrir téðu ferðalagi var sú, að
heimilisfaðirinn hafði lent í slysi og
var óvíst hvort hann héldi lífí
Það mátti búast við að aðstæður væru
erfíðar hjá konu hans og börnum og
varð að ráði að ég færi til þeirra ef
þau þyrftu á aðstoð að halda. Þetta bar
nokkuð brátt að og fór ég með flugvél
frá Keflavík áleiðis til New York. Eftir
lendingu á Kennedyflugvelli fór ég út
úr flugstöðinni og hugðist fá flutning
út á Löngueyju þar sem vinafólk mitt
hefur búið um árabil.
Þégar ég stend þar á stéttinni til að
athuga með leigubíl, heyri ég kallað í
undrunarrómi:
„Ert þetta þú Ari?“
Mér til mikillar undmnar er vinnufélagi
minn úr flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli
staddur þama ásamt konu sinni og hugðist
fara heim með sömu flugvél og ég hafði
komið með. Með þeim var fólkið sem
ég ætlaði að fara til gistingar hjá og var
verið að flytja þau á flugvöllinn. Það
mátti ekki á milli sjá hvor varð meira
undrandi á þessum fundi okkar utan við
flugstöðina í milljónaborginni, að hittast
þama á stéttinni á þessum tímapunkti,
þar sem þúsundir voru á ferli.
Eg fór síðan með þeim hjónum heim
til þeirra út á Löngueyju, því ég átti
bókað flug til Seattle í Washington fylki
morguninn eftir.
Eftir notalega næturgistingu fluttu
þau hjón mig aftur á flugvöllinn og
ég skráði mig inn í flug til Seattle. Eg
varð nokkuð undrandi þegar flugið
324 Heima er bezt