Heima er bezt - 01.08.2008, Síða 42
DAGBOKARBROT
Opna úr dagbók
Auðuns Braga með
fœrslum frá þeim tíma
sem frá segir í
greininni.
^SsÆrr'/gf-'-'
yf1
^rr
iu—f ~r*,'h zf
L.rt * "j, 'lu_O.y ‘~4 —
“Z v .-vt<r
'i þ * í ú ->
Drangshlíðfyrir nokkrum árum. Ljósm.: Sunnlenskar byggðir.
Menn og kynni undir
Austur-Eyjafj öllum,
1953 -1954
Enda þótt ég hafi skrifað áður um dvöl
mína sem kennari og skólastjóri undir
Austur- Eyjafjöllum, er býsna margt enn,
sem rijjast upp þegar litið er til baka um
meira en hálfa öld.
Auóunn Bragi
Sveinsson
r
g var aðeins einn vetur fræðari bama á þessu skólahéraði og
kynntist býsna mörgum. Ég hélt dagbók þá, eins og ég haföi
raunar gert allt frá fermingu. Er hún til mikils stuðnings við
ýmsar ritsmíðar mínar, eins og þessa, þar sem getið er kynna við
nemendur og margt fólk í sveitinni. Ég er víst fæddur forvitinn og
námsgjam. Þess vegna hef ég aldrei falið mig, en gert mér far um
að kynnast fólki. Til em þeir, sem fmnst það ekki alltaf heppilegt.
Sigurstranglegt sé að halda sér til hlés og velja síðan úr þau, er
æskilegt sé að kynnast. Ég kynnist öllum, án tillits til mannvirðinga
eða annars, sem oft er mikils metið í borgaralegu þjóðfélagi.
í grein minni „Undir EyjaQöllum“, er birtist fýrst í Goðasteini,
en síðar í bókinni „Kennari á faraldsfæti“ rifja ég upp ýmislegt
varðandi skólahaldið almennt talað. Ég var rétt þrítugur, er ég
tók í fyrsta sinn að mér að bera ábyrgð á skólahaldi. Og lengst
af kennslu minnar bar ég titil skólastjóra, þó að ég væri sjálfur
oftast aðalkennarinn.
Hér verður bmgðið á það ráð að lýsa kynnum við fólkið í sveitinni,
en undir Austur-Eyjafjöllum voru og em allmargir sveitabæir. Ég
eignaðist reiðhjól áður en ég lluttist úr Reykjavík haustið 1953.
Notaði ég það til að bera mig frá Drangshlíð, þar sem fjölskyldan
bjó, og að Skarðshlíð. Þar var kennt á efri hæð ófullgerðs íbúðarhúss
bóndans á bænum.
330 Heima er bezt