Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2008, Side 51

Heima er bezt - 01.08.2008, Side 51
r »t- Skaftá að sigla út frá Famagusta. úr hvaða efni taugamar í þér eru!“ Þá rann upp fyrir mér, hvers konar græningi ég hafði verið. Rússinn og fleiri á skipunum (m.a A-Þjóöverjar Júgóslavar og fleiri A-Evrópuþjóðaskip) á ytri höfninni vissu hvað stríð var, ekki ég. Málið var það að svokölluð „græna lína“ sem skipti Beirút í tvennt, lá um þessa bryggju sem hermaðurinn kom hlaupandi og skjótandi út á. Við vorum á leiðinni inn í múslímaska hluta borgarinnar. Agemtinn tjáði mér að enginn, sem ekki væri kunnugur í Beirút, myndi botna nokkuð í ástandinu eins og það var þarna þá. Þama lagði ég áhöfnina í óþarfa hættu vegna, hvað á ég að segja, „asnaháttar". Nýskriðinn út úr hreiðrinu, hinu saklausa Islandi Síðar fórum við á írisi Borg til Ashdod í ísrael. Þar lestuðum við appelsínur, sem Palestínumenn á Gasaströndinni ræktuðu. Evrópubandalagið með Hollendinga í broddi fylkingar voru að hjálpa Palestínumönnunum að koma vöru sinni á markað í Evrópu og kostuðu flutninginn. Hollenska sjónvarpið fylgdist með öllu saman. Kvöldið sem við héldum úr höfn vildu þeir hafa við mig viðtal en ég vildi ekki láta sjónvarpa minni heimabrúks ensku. Sama kvöld kom Hollendingurinn sem stjómaði aðgerðum, til mín og tjáði mér að Arafat hefði hringt í sig til að þakka fyrir aðstoðina og hann hefði sérstaklega beðið að heilsa skipstjóranum á skipinu sem flytti appelsínurnar upp til Evrópu. Á leiðinni þegar við vomm undan Ítalíu voru við Atli að horfa á fféttir í einni af hinum mörgu sjónvarpsstöðvum og þar sáum við myndir frá Beirút og nú vom það Múslímar og Kristnir sem börðust. Og skip, sem lá ekki langt frá þar sem við höfðum legið, stóð í björtu báli eftir tundurskeytaárás, að okkur skildist. Við horfðumst í augu en sögðum ekki neitt. Atli reyndi seinna að hughreysta mig með því að segja að hann hefði gert það sama í mínum spomm. En ég gleymi aldrei þessu augnabliki. Nú vona ég að einhverjir skilji hversvegna ég er að skrifa um þessa hættu. Að menn viti á hverju þeir geta Rússneska flutningaskipið. átt von, og að íslensk siglingaryfirvöld eigi að fylgjast með og ef eitthvað er hægt gera til að forðast svona atburði þá eigi að upplýsa menn um það hér. Skipstjórinn með hluta af áhöfninni. Skipstjórinn ogAtli stýrimaður á ytri höfninni í Beirút. T. D. koma því, ef eitthvað er, inn í Slysavamaskólann. Og ég er ekkert að meina að ég sé eini Islendingurinn sem hef verið í siglingum, langt frá því. En ég held að góð vísa sé aldrei of oft kveðin hvað öryggi sjómanna varðar. Við höfum oft látið reka á reiðanum og þóst vera einhverjar hetjur. Heima er bezt 339

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.