Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2008, Blaðsíða 52

Heima er bezt - 01.08.2008, Blaðsíða 52
Jón á Bergi: Beðið eftir vorinu Gamli maðurinn lá í rúminu, sem stóð undir súðinni frammi við dyrnar, og beið eftir vorinu. Upphaflega hafði rúmið staðið undir stafnglugganum, en þegar fór að kólna, hafði það verið flutt fram að dyrunum. Vatn vildi píska svo inn um gluggann í austanhretum, og það var líka alltaf einhver trekkur um hann, sem ekki var hollur fyrir gamla manninn. Að vísu var köflótt teppi hengt fyrir gluggann, og það bætti eitthvað úr skák. Tengdasonurinn hafði líka eitthvað verið að tala um að setja tvöfalt gler í gluggann, en það var víst ekki komið og myndi sennilega dragast eitthvað. Kannski fékkst heldur ekki gler í kaupfélaginu. Það var svo margt, sem ekki fékkst þar tíma og tíma. Það var enginn miðstöðvarofn í herberginu. Þetta hafði verið smíðaherbergi. Svo var það lagt niður og þá notað sem geymsla eða réttara sagt ruslakompa, og engum dottið í hug, að það yrði nokkum tíma notað sem íverustaður. (Þá hafði gamli maðurinn verið hraustari en nú og búið fyrir norðan). En svo bilaði heilsan, eins og algengt var hjá fólki, sem komið var fast að áttræðu. Einkum var það sjóndepran, sem háði honum. Nú, og þar sem ekki þótti taka því að leggja mióstöðvarofn í kompuna, þá var komið þangað með olíuvél. Hún hitaði allvel, en hafði bara þann leiða löst, að hún ósaði talsvert. Kom þá ótætis stybba í kompuna og gamli maðurinn þoldi hana bölvanlega. Brjóstið var slæmt eftir margar og illkynjaðar lungnabólgur. Af þeirri ástæðu var sjaldnar kveikt á olíuvélinni heldur en þurft hefði. Oft var því andkalt uppi undir risinu í konipu gamla mannsins. En hann kvartaði aldrei. Nei, það tók því ekki. Og nú var vetur og því nokkuð langt til vors. Gamli maðurinn stytti sér því stundir með því að rifja upp angan og hlýju liðins sumars. Hann hafði þá oftast verið á fótum og gengið út. Það var svo gott að láta goluna strjúka vangana og teyga blómailminn úr loftinu. Svo hafði hann rölt eftir stígnum og niður að hliðinu. Fyrst í stað hafði hann aldrei farið lengra. Hann kunni heldur varla að opna lásinn. Þetta var einhver nýtísku læsing og hann orðinn sjóndapur. Þess vegna fékkst hann ekkert við hana. Og ekki gat hann verið að teíja tengdason sinn eða aðra við það að kenna honum, gamlingjanum einskis nýtum, að opna þennan lás. Hliðgrindin var grænmáluð fannst honum helst, og það var eitthvað svo viðfelldið að þukla um rimlana. Hann þekkti orðið hvern og einn, og þeir voru orðni bestu kunningjar hans eftir nokkra daga. Þá kom drengurinn til sögunnar. Dag einn, þegar gamli maðurinn stóð við hliðið og var að klappa kunningjum sínum í hliðgrindinni, heyrði hann skæra barnsrödd kalla: „Langar þig ekki út uml hliðið?“ Gamli maðurinn leit upp og sá, að drengurinn stóð á götunni utangarðs, og ljóst hár hans glóði í sólinni. - Ég veit ekki, væni minn. Ég er nú orðinn svo gamall, að mér nægir víst að róla þennan spöl ofan frá. Drengurinn stóð gleitt og hallaði undir flatt. Hann var moldugur um hendumar. Sennilega var hann fjögurra til fimm ára gamall. - A ég að opna? Drengurinn beið ekki eftir svari, heldur tyllti sér á tá, rjálaði eitthvað við læsinguna og grindin laukst upp, - Sjáðu, nú er opið! Kanntu kannski ekki að opna? Nei, gamli maðurinn kunni ekki að opna. Og nú var það æskan, sem rétti ellinni hönd, því drengurinn kenndi gamlingjanum að opna hliðið. Þannig urðu þeir vinir. Hann var kallaður Dengsi. Þeir hittust nær því allt sumarið, og gamli maðurinn leiddi drenginn við hönd sér eða kannski var það drengurinn, sem leiddi hann. Og drengurinn sýndi honum bílana sína og bátana, en gamli maðurinn sagði drengnum sögur. Einn dag, þegar gamlinginn kom niður að hliðinu, var Dengsi þar ekki fyrir. Hann var þó vanur að vera kominn á undan honum. Gamli maðurinn settist á barð utan við stíginn og beið. En Dengsi kom ekki. Þá fór gamli maðurinn að ókyrrast. Það skyldi þó ekki eitthvað hafa komið fyrir 340 Heima er bezt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.