Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2008, Qupperneq 67

Heima er bezt - 01.08.2008, Qupperneq 67
efitir að hann fluttist frá Akranesi. María kona hans lifði hann í 30 ár. Hún andaðist 1918, og var þá orðin 88 ára. Eins og áður er fram komið ólst Ami Amason Þorsteinsson upp til tvítugsaldurs á Efra-Skarði í Svínadal, utan fjögur fyrstu árin hjá móður sinni, en bjó eftir það alla sína tíð á Akranesi og var eini afkomandi Þorsteins kaupmanns sem þar tók sér bólfestu. Hann lærði trésmíði í Reykjavík og varð trésmíða- og byggingameistari. Kona hans var Margrét, f. 3. 11. 1881- d. 31. 12. 1964, Finnsdóttir, formanns í Sýmparti á Akranesi, Gíslasonar. Ami og Margrét eignuðust fjóra syni. Þeirra elstur var Finnur, f. 8. jan. 1905 Hann var trésmiður og fetaði í fótspor föður síns og vann við húsasmíðar. Kona hans var Eygló Gamalíelsdóttir, fædd í Reykjavík, 23. 9. 1910, en foreldrar hennar fluttu til Hafnarljarðar er hún var í ffumbemsku og ólst hún þar upp. Þeirra böm em Ami Grétar Finnsson, hæstaréttarlögmaður, Anna Sigurbjörg skrifstofumaður og Trausti Gamalíel rafvirki. Næstur að aldri var Aðalsteinn, f. 2. ágúst 1907. Hann var múrari að mennt og síðar kaupmaður og starfaði á Akranesi. Kona hans var Ingibjörg Bjamadóttir, f. á Akranesi 1911. Böm þeirra eru: Bjami, Helga, Margrét og Aðalsteinn Ingi. Þriðji bróðirinn var Jón Ágúst, f. 15. jan. 1909. Hann stundaði ffaman af ævi verslunarstörf á Akranesi, en hóf svo afskipti af stjómmálum og fylgdi Sjálfstæðisflokknum að málum. Hann var tvö kjörtímabil forseti bæjarstjómar á Akranesi og kjörinn var hann alþingismaður Borgfirðinga árið 1959 og sama ár, vegna nýrrar kjördæmaskipunar, í haustkosningum þingmaður fyrir Vestlendinga og sat á Alþingi í hálfan annan áratug. Kona hans var Ragnheiður Þórðardóttir, Ásmundssonar kaupmanns á Akranesi. Böm þeirra em: Emelía, Þorsteinn, Margrét og Petrea Ingibjörg. Fjórði bróðirinn var Láms, f. 17. nóv. 1910. Lárus varmálari og starfaði á Akranesi eins og hinir bræður hans. Hann var tvígiftur. Síðari kona hans var Þórunn Bjamadóttir frá Vigur. Þeirra sonur er Bjami Lámsson. Sigríður Loftsdóttir, f. 1. júlí 1879. Hún var dóttir Lofts Oddssonar vinnumanns í Galtarholti, en vartekin til fósturs að Meðalfelli í Kjós og mun hafa alist þar upp. Sigríður eignaðist tvö böm: a) Þóru, f. .23. 12 1902, Höskuldsdóttur, Guðmundssonar, ættuðum úr Rangárþingi, og var hún barn hennar fyrir hjónaband, og b) Axel, f. 23. 3. 1911, eignaðist hún með manni sínum, Eyjólfi Eyjólfssyni bónda í Saurbæ á Kjalarnesi. Axel byggði nýbýlið Dalsmynni í Saurbæjarlandi árið 1931 og bjó þar til 1934. Hann var við nám í Bændaskólanum á Hvanneyri veturinn 1932 - 33. Lærði trésmíði hjá Áma móðurbróður sínum og lauk námi 1935. Var húsgagnasmiður á Akranesi 1935-47, en flutti þá starfsemina til Reykjavíkur og stofnaði húsgagnaverslun Axels Eyjólfssonar sem síðar varð Axis húsgögn ehf., Smiðjuvegi 9 í Kópavogi. Axel kvæntist Huldu, f. 28. 10. 1912, Ásgeirsdóttur, sjómanns á Bíldudal Ásgeirssonar, þau skildu, en eignuðust flögur böm: Jakobínu, Eyjólf, Þórð (látinn) og Sigríði. Þóra dóttir Sigríðar og Höskulds eignaðist tvær dætur með Jóni Eiríkssyni ffá Efri-Tungu í Örlygshöfh í Patreksfirði: Ragnheiði Sigríði, f. 18. 7. 1927, búsett að Sæviðarsundi 76, Reykjavík, - maður hennar er Björgvin Kristófersson rafvirkjameistari, f. 20. 3. 1928, þeirra sonur er Ólafur, er býr að Barðavogi 19 í Reykjavík, f. 10.11. 1961 - og Sigrúnu Kristínu, f. 27.9. 1928, en hún andaðist 1933 á sjötta ári aldurs síns. Son eignaðist Þóra með Axel Ólafssyni er alinn var upp í Saurbæ á Kjalamesi. Sonurþeirra Axels og Þóm er Sigurður Rúnar Axelsson, fæddur 3. mars 1935. Hann er búsettur í Danmörku. b) Einar Jóhannesson Hansen (1845 -1921) var elsti sonur Jóhannesar Wilhems Hansen. Einar kvæntist Jensínu Ólínu Ámadóttur frá Jóffíðarstöðum. Þau bjuggu allan sinn búskap við Strandgötuna, lengst í Jóhannesarhúsi, en í þeirra tíð var Jóhannesarhús lagt af og í staðinn byggt húsið sem varð Strandgata 19. Bjuggu þau síðan í nýja húsinu til dauðadags. I tíð sona þeirra, Jóhannesar Wilhelms, sjómanns, og Jóns G. Þ. .(Guðmundar Þorsteins), verkstjóra var húsið stækkað, eins og áður segir, árið 1921, en það var sama árið og faðir þeirra andaðist. Viðbyggingin austan við húsið var reist 1926. Hún var sameiginlegt verkefni Jóns G. Þ. Einarssonar og Gísla Sigurgeirssonar sem þá var fluttur í húsið ásamt konu sinni, Jensínu Egilsdóttur, sem var systurdóttir Jóns; bjuggu þau Gísli og Jensína í fyrstu í sambýli við þau mæðgin, Jón og Jensínu Ólínu, en ekki var það lengi því að Jensína Ólína dó 28. júní 1925. Jensína Ólína var fædd 28. mars 1852. Hún var dóttir Áma Jónssonar, bónda á Jóffíðarstöðum og verslunarmanns í Hafnarfirði, og Agnesar Steindórsdóttur. Steindór, faðir Agnesar, var fæddur 1776. Hann tók upp nafnið Waage, var stúdent að menntun og skipherra í Hafnarfirði (skipstjóri). Kona hans var Anna Katrín Welding. Steindór var sonur Rannveigar Filippusdóttur og fyrri manns hennar, Jóns Halldórssonar lögréttumanns í Nesi í Selvogi, en seinni maður Rannveigar var Bjami riddari Sívertsen. Föðurafi Jensínu Ólínu Ámadóttur var Jón, síðast prestur í Amarbæli í Ölfusi (1784-1859). Hann var Matthíasson. Séra Jón eignaðist níu böm. Þeirra á meðal vom séra Páll í Amarbæli, Matthías verslunarstjóri í Reykjavík, Guðlaugur bóndi í Öxney og Ámi, faðir Jensínu Ólínu, bóndi á Jóffíðarstöðum og kaupmaður í Hafnarfirði. Ámi var sá fyrsti sem tók upp nafhið Matthíasson og ritaði það að dönskum hætti, Mathiesen, og hefur þá að líkindum haft í huga nafh afa síns, Matthíasar stúdents á Eyri í Seyðisfirði, föður séra Jóns í Amarbæli. Einar Jóhannesson Hansen andaðist snemma árs 1921 og var hann sá fyrsti sem jarðaður var í kirkjugarðinum á Öldum. Áður höfðu Hafnfirðingar verið jarðaðir í Garðakirkjugarði. Böm þeirra Einars Jóhannessonar Hansen og Jensínu Ólínu Ámadóttur vom samkvæmt manntali 1901: 1) Jóhannes Wilhelm, 2) Jón Guðmundur Þorsteinn, 3) Þórunn, 4) Guðrún. Heima er bezt 355
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.