Heima er bezt - 01.08.2008, Qupperneq 70
Fjölskyldumynd, tekin um aldamótin
1900 við hirð Játvarðs VII. og
Alexöndru drottningar. I fremri röð,
sitjandi, sjást María, hertogynja af
Jórvík (með Játvarð prins af Jórvík,
síðar hertoga afWindsor), Alexandra
drottning (með Henry prins, síðar
hertoga af Gloucester) og Játvarður
konungur VII. Hertoginn af Jórvík,
síðar Georg V. konungur, stendur bak
við eiginkonu sína og móður. Aðrir á
myndinni eru ekki nafngreindir.
Örnólfur Thorlacius
BEÐMAL
OG STJÓRNMÁL
Pólitíkin á bak við afsögn Játvarðs áttunda
r
I júníhefti þessa tímarits nú í ár er
r
fróðleg grein eftir Olaf Ragnarsson
um sambandþeirra Wallis Simpson og
Játvarðs áttunda Bretakonungs, sem
varð til þess að konungur afsalaði sér
krúnunni til að ganga að eiga þessa
tvífráskildu bandarísku konu. Þar er
skilmerkilega greint frá ýmsu er varðar
einkahagi þeirra hjóna. En rétt eins og
ástin, geta stjórnmálin verið máttugt afl,
og hér verður þess freistað að bregða
Ijósi á hvernig þau Jléttuðust inn í þessa
atburðarás.
Sagan gerist í aðdraganda síðari heimsstyrjaldar og í
stríðinu sjálfu og mörg gögn sem hana varða eru enn
falin í leyndarskjölum ýmissa þjóða. Louise Ellman,
þingkona fyrir Liverpool á breska þinginu, fór til dæmis fram
á það í júní 2002 að öll bresk skjöl varðandi samskipti Játvarðs
við nasista yrðu gerð opinber. Ekki veit ég um viðbrögðin en
margt er enn að koma upp úr ýmsum leyniþjónustuskúffum
þótt annað liggi þar eflaust óhreyft.
Edward Albert Christian George Andrew Patrick David,
sem hér verður að íslenskum sið nefndur Játvarður, fæddist í
Lundúnum fyrir rúmum 114 ámm, hinn 23. júní 1894. Hann var
elsti sonur hertogahjónanna af Jórvík, Maríu og Georgs, sem
síðar varö Georg fimmti Bretakonungur. Sagt er að Játvarður
hafi verið efiirlætisbarnabarnabarn Viktoríu drottningar, sem
stýrði breska heimsveldinu þar til hann var átta ára.
Krónprins af Wales
Á árunum 1911 til 1936 bar Játvarðursem krónprins titilinn
prins af Wales. Hann átti það til að tala opinberlega gegn
yfirlýstri stefnu bresku ríkisstjómarinnar og lét stundum
frá sér upplýsingar sem snertu trúnaðarmál. Á fundi með
prinsinum 1934 undraðist ambassador Austurríkis, Albert
Mensdorff, til dæmis opinskáa aðdáum hans á Hitler, þar
sem Játvarður spáði því meðal annars að Bretar og Þjóðveijar
myndu taka höndum saman gegn ógninni af kommúnismanum.
358 Heima er bezt