Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2008, Qupperneq 81

Heima er bezt - 01.08.2008, Qupperneq 81
tíma undi kvöld höfðu menn landsýn, eitthvað fyrir austan Vestmannaeyjar og þá var nú heldur betur sett á fulla ferð og siglt vestur með og fyrir Reykjanes og til Reykjavíkur var komið snemma nætur. Það lifnað heldur betur yfir mannskapn- um um borð eftir að við höfðu landsýn, og menn fóru að spjalla og segja frá ýmsu. M.a. kom það fram að einhvern tímann fyrr um veturinn hafði skipið lagst talsvert á hliðina og liðið allnokkur tími áður en það rétti sig við. Það mun hafa verið í veiðiferð og fískur kastast til í lestinni. En ég áttaði mig á því, að kallarnir höfðu verið óvanalega þögulir við matarborðið á heimleiðinn, meðan veðrið var sem verst. Jæja, en við vorum að koma heim, og nú gekk fatan og „þú verður að vera snöggur, það þurfa fleiri að nota hana“. Eitthvað einum eða tveimur mánuðum eftir þessa ferð fór ég með báti frá Eyrarbakka til Vestmannaeyja. En mér fannst það ijandi hart að við vomm varla komnir af stað þegar ég var orðinn sjóveikur og ældi eins og múkki alla leiðina. Aust'm 7, árgerð 1923. endurhönnuðum Austin 7 bílum framleiddir undir aukanafninu „special“ og þar á meðal fyrsti Lotus bíllinn, Lotus Mkl, sem var byggður á hönnun Austin 7. Og svo var ímynd Austin 7 nafnsins sterk að verksmiðjurnar notuðu það áfram fyrir fyrstu tegundir A30 bílsins 1951 og Mini árið 1959. Austin verksmiðjurnar höfðu á árunum fyrir fyrri heimsstyrjöldina aðallega srníðað stóra bíla en seldu árið 1909 eins strokks, 7 hestafla bíl, sem smíöaður var hjá Svvift Motor Company í Coventry og nefndur Austin sjö. Eftir það ákváðu þeir að snúa sér frekar aftur að stærri bílum en einn eigandinn, Herbert Austin var þeirrar skoðunar að minni bíll myndi verða vinsælli, sem var alveg öfugt við álit stjórnar fyrirtækisins, sem hafði áhyggjur af tjárhagslegri stöðu þess. Austin hafði þó betur í þeirri rimmu með því að hóta því að fara með framleiðsluhugmyndina til keppinautar þeirra, Wolseley Motor Company, og fékk hann þá leyfi til þess að hetja hönnun bílsins, ásamt Stanley Edge, en þeir unnu sarnan að verkefninu árin 1921-22 á heimili Austins. Austin lagði sjálfur til verulega upphæð í hönnunina og fékk einkaleyfi á sitt nafn af mörgu því sem þeir bjuggu til. í staðinn fyrir fjármögnun sína fékk hann 2 gíneur (rúmar 300 krónur ísl.) fyrir hvern seldan bíl. Austin 7 Chummy, árgeró 1927. Tvö þúsund bílar voru framleiddir á fyrsta ári framleiðslunnar, ekki eins margir og menn höfðu gert sér vonir um, en innan fárra ára hafði „stóri smábíllinn“ þurrkað út alla samkeppni á smábíla markaðinum og snúið gæfunni Austin í hag. Þegar framleiðslu hans lauk svo árið 1939, höfðu verið ffamleiddir 290.000 fólks- og sendibílar verið af þessari gerð. Austin 7 bíllinn var verulega minni en T módelið hjá Ford. Hjólahaf hans var einungis 1,9 metrar. Hann var líka, eins og gefur að skilja, léttari, vó minna en helming af þyngd Ford bílsins, eða um 360 kíló. Vélin sern þurfti var því líka af minni gerðinni, aðeins 10 hestalla en dugði til síns brúks. Grind bílsins var í laginu eins og A með vélina festa á bitana fremst við mjórri endann. Engir demparar voru á fyrstu bílunum. Bremsur voru á öllum hjólum en í fyrstu var bremsað á framhjólunum með handbremsunni og afturhjólunum með fótbremsum, en árið 1930 var búið að tengja þær sanian. Sérútgáfur af Austin 7 voru framleiddar undir sérstöku leyfi af American Austin frá 1930, Dixi (sem seinna varð BMW) í Þýskalandi frá 1927 og Rosengart í Frakklandi frá 1928. Auk þess voru undirvagn og gírkassi fluttir út til Japans og Astralíu, þar sem þeir voru notaðir í samsetningu á yfirbyggingum sem framleiddar voru þar. Heima er bezt 369
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.