Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2008, Side 84

Heima er bezt - 01.08.2008, Side 84
Álfheiður Bjarnadóttir Þegar grætur Inga og Smári höfðu brugðið sér upp í risíbúðina til að snyrta sig og skipta um föt áður en þau bæru það síðasta á borð. Það var því enginn í búrinu þegar bakdyrahurðin opnaðist og inn kom hávaxin manneskja klædd í svart frá hvirfli til ilja. Á höfðinu hafði hún svarta lambhúshettu. Flóttaleg læddist hún inn og lét dymar út í náttmyrkrið standa opnar. Úr skjóðu sinni dró hún flösku með glærum vökva og með ógeðfelldum en niðurbældum hlátri, hellti hún innihaldi flöskunnar út í salatfötuna og hrærði rösklega í. „Verði nú öllum að góðu,“ tautaði svartklædda manneskjan, tróð flöskunni ofan í ruslapoka sem stóð opinn á gólfinu, hálffullur af tómum dósum og umbúðum. „Það fer engin að gá í ruslið,“ hugsaði hún. Það heyrðist umgangur, svo hún tók viðbragð og hentist út um dymar svo hurðin skall á eftir henni. „Smári, hvernig stendur á þessu?“ sagði Inga áhyggjufull. „Hvað?“ „Mér finnst salatið allt í einu svo þunnt.“ „Já, það er kannski í þynnra lagi. Heyrðu við eigum meiri fyllingu. Svona er það miklu betra. Drífúm nú þetta á borðið.“ Fólk tók vel til matar síns og það gekk ánægjulega á réttina. Það voru allir að verða vel saddir og hreifir af plastbalablöndunni, þegar Gústa Gabríels birtist í stofudyrunum. „Afsakið hvað ég kem seint, ég tafðist af óviðráðanlegum orsökum,“ sagði hún og hló. Grænu augun glömpuðu ískyggilega. Það sló hálfgerðri þögn á fólkið. Það kom á óvart að sjá Gústu birtast svona allt í einu. Andrea færði sig ósjálfrátt nær næsta manni, sem var Ómar og hann tók ósjálfrátt utan um hana, eins og í vamarskyni. „Jæja, það er mikið að þú kemur, ætlaðir þú að missa af fjörinu eða hvað,“ sagði nú Úlli. Andrea sté eitt skref áfram. Hún var föl en stillileg. Hún varð að vera hin fullkomna 372 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.