Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2008, Síða 91

Heima er bezt - 01.08.2008, Síða 91
14. kafli Úlfljótur Hermannsson var með sjálfum sér farinn að sáriðrast þess að hafa nokkum tíma hleypt Gústu inn fyrir dyr. Hann hafði aldrei orðið fyrir öðru eins ofríki af nokkurri manneskju eins og vinkonu sinni Gústu. Hann var nú farinn að sjá að það var allt annað að hafa hana fyrir skemmtana og drykkjufélaga en að búa með henni. Hann var eiginlega ekki alveg klár á af hverju hann var að skipta sér svona mikið afþessu í upphafí. Svo saknaði hann konunnar sinnar, það var nú sannleikurinn. Það var nú um síðir farið að verða Úlfljóti Hermannssyni ljóst, að hann hafði gert mikið glappaskot og komið fram eins og sambland af fanti og vesaling. Það var stór biti að kyngja fyrir hann, enda passaði hann sig á að viðurkenna aldrei hugsanir sínar fyrir nokkrum manni. Það versta var að nú var alltof seint að snúa við og reyna að bæta fyrir gerðir sínar. Andrea myndi aldrei líta hann réttu auga og Gústa myndi drepa hann ef hún fyndi á honum þessi veikleikamerki. Honum vom allar bjargir bannaðar og þá var bara best að halda áfram að vera hiklaus og svalur náungi, sem léti ekkert á sig fá. Svo var hann farið að kvíða fyrir að koma upp í hjónarúm á kvöldin, það var ekkert aðlaðandi lengur. Það var Ómar sem hafði vakið athygli Andreu á að fá síma upp í risið og útvegaði hann fljótlega. Hann vissi að Úlli myndi ekki sjá sóma sinn í að aðstoða Andreu neitt. Hann virtist algjörlega heillum horfínn maðurinn. Hvílík ógæfa, hugsaði Ómar, að flæma frá sér indælustu stúlkuna sem hann gat fengið, allt fyrir ístöðuleysi og vesalmennsku og áhrif af gjörspilltum hugsunarhætti Gústu. Ómari duldist ekki að hans eigin tilfínningar til Andreu voru meira en vinsemd. Þær lágu miklu dýpra og höfðu sennilega gert frá því hann sá hana fyrst. Hann hafði bara aldrei leyft sér að hugsa slíkt fyrr en nú nýlega. Gústa var orðin tvíbreið en ekki virtist það aftra henni frá því að gera allt sem hana langaði til. Hún geystist á böll á eftir Úlla og dansaði með bægslagangi og látum, ein ef henni var ekki boðið upp, sem var nú æ sjaldgæfara. Hún drakk og reykti og virtist ekki verða meint af neinu og láta almenningsálitið ekki á sig fá frekar en venjulega. Marta móðir hennar átti margar andvökunætumar af áhyggjum vegna dóttur sinnar en hafði þó haft sig í að heimsækja hana í fáein skipti. Gústa hlustaði hvorki á bænir né umvandanir. Bað móður sína blessaða að láta ekki svona. Hún lifði sínu lífí og ekki orð um það meir. Marta gafst upp. Gabríel gamli harðbannaði konu sinni að fara í fleiri heimsóknir til Gústu. Hún væri alltaf svo eyðilögð þegar hún kæmi heim og stelpan ntyndi leggja hana í rúmið fyrir rest. Marta hafði mikið hugsað til Andreu í öllu þessu umróti. Hún velti því fyrir sér hvort hún ætti ekki að líta til hennar, rétt til að gá hvernig henni liði. Hana tók sárt til þess að vita að hennar eigin dóttir hefði orðið spillingarvaldur í lífi Andreu. Svo var það einn daginn, þegar hún vissi að Gústa var í búðinni, að hún tók á sig rögg og fór að heimsækja Andreu Bjömsdóttur. Mörtu brá í brún þegar hún sá ungu konuna. Þó hún væri ekki hjúkrunarlærð duldist henni ekki að Andrea var veik. Þrútin af bjúgi, náföl og titrandi. Það sem fyrst kom í huga Mörtu var, „blessað bam“ og breiddi út faðminn. Andrea gekk eins og svefngengill inn í arma Mörtu og fannst eins og þetta væri Berta sem væri komin að hjálpa henni. Marta studdi Andreu inn í stofuna og lét hana setjast í sófann hjá sér, með handleggina utanum hana, sat hún hljóð og lét Andreu gráta út vanlíðan sína og sársauka. „Eg hefði átt að koma fyrr,“ hugsaði hún. „Stúlkan þarf að komast strax til þeirra á heilsugæslunni. Hún má ekki vera ein lengur.“ „Eg er svo fegin að þú komst,“ stundi Andrea upp. „Ég var svo ein og mér er búið að líða svo ömurlega." Hún stundi allt í einu af sársauka og reyndi að hnipra sig sanran. „Ég held það sé komið að því,“ sagði hún og reyndi að brosa og stóð upp með erfiðismunum. í sama bili streymdi legvatnið niður fótleggi hennar og myndaði stóran blett á gólfteppinu. „Leggstu fyrir vinan,“ sagði Marta og studdi hana inn í rúmið, svo flýtti hún sér í símann. Hún hringdi í Ingveldi ljósmóður. „Hvemig kemst hún til okkar?“ spurði Ingveldur. „Það veit ég ekki,“ sagði Marta ráðalaus. „Hringdu í Ómar,“ stundi Andrea. „Hann lofaði að keyra mig þegar að þessu kæmi.“ Ómar keyrði í ofboði heim til Andreu og innan skamms var hún komin í öruggar hendur Ingveldar Ijósu. Dagur leið að kvöldi. Andrea var með vægar hríðir en leið mjög illa. Henni fannst hún aldrei hafa verið eins ein og hrædd. A svona stundu hefði verið gott að hafa einhvem til að halda í höndina á. Samt hafði hún harðneitað beiðni Ómars um að vera hjá henni. Henni var ætlað að ganga ein í gegn um þetta og þá skyldi svo vera. „Reyndu að slaka á,“ sagði Ingveldur. „Þetta gengur vísast hægt úr því legvatnið er farið. Fyrsta fæðing er oft langdregin.“ Andreu var lítil huggun í að heyra þetta. Hún gat hvorki sofnað né verið afslöppuð. Sársaukinn reif og sleit líkama hennar og bakið á henni var eins og það væri að brotna í sundur. Ógleðin var svo mikil að hún kúgaðist með stuttu millibili. Það var enga hvíld að fá. Ómar hafði hringt tvisvar um kvöldið til að fá fréttir og bað um að hann yrði strax látinn vita þegar fæðingin væri afstaðin. Ingveldur lofaði því og hugsaði sitt. I rauða húsinu var neðri hæðin uppljómuð um miðnættið, þó björt vomótt væri. Gústa hafði fengið eitt bræðikastið þegar hún frétti að móðir hennar heföi heimsótt Andreu. Hún bölsótaðist yfir þessari afskiptasemi. Móðir hennar var búin að gera hana að algjöru athlægi í þorpinu. Hún sá fyrir sér kerlingamar þegar þær hittust í Bjömsvali. Þær myndu ekki tala um annað en Mörtu meðhjálparans, sem gengi á milli hæða í húsinu til að biðja Guð að blessa bumbumar á henni og Andreu fíflinu. Heima er bezt 379
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.