Læknaneminn


Læknaneminn - 01.08.1968, Page 42

Læknaneminn - 01.08.1968, Page 42
LÆKNANEMINN J,2 Þetta er óhentugt mörgum vinn- andi mönnum. 3) G. I. verkar venjulega ekki nægilega lengi til að koma í veg fyrir hyperglycemiu fyrir morgunverð, þegar insulin- þarfir sjúklings eru meiri en um 40 einingar á dag; er þá önnur, miklu minni, G. I. gjöf nauðsynleg að kvöldi. ISOPHANE INSULIN (N. P. H.). Þetta er krystallinskt P. Z. I., sem inniheldur phenol. Prótamín- magnið er nákvæmlega það, sem þarf til að tengjast insulininu (þ. e. isophane) og ekki meira (Krag- enbuhl og Rosenberg, 1946). Hægt er því að gefa N. P. H. og S. I. í sömu sprautu án þess að eiginleg hypoglycemisk áhrif insulinanna raskist. Venjulega þarf slíka blöndu, því byrjunarverkun N. P. H. er enn hægari en G. I. Aftur á móti verkar N. P. H. nokkru leng- ur en G. I. Með blöndu af N. P. H. og S. I. er hægt að ná góðri stjórn á sykursýki flestra, sem ekki þurfa meira en 60 einingar samtals. Reynist insulinþörfin meiri, er verkun oftast ekki nægileg löng, og grípa verður til annarrar N.P. H. gjafar að kvöldi. INSULIN ZINK SUSPENSI- ONIR. Hin framandi eggjahvíta, sem notuð er til að lengja áhrif þeirra langvirku insulina, sem þegar hefur verið lýst, veldur því, að ofnæmi er mun tíðara við notkun þeirra en S. I. og hinna nýrri insulina. Snemma höfðu Scott og Fisher (1935) sýnt, að áhrif insulins, bufferað með phosphati, mætti lengja með 400— 1000 mg af zinki/1000 insulin- einingar. Þetta zinkmagn reyndist of ertandi til nota. 1951 fundu Hallas - Möller og félagar, að 2 mg af zinki/1000 ein. nægja, þegar notaður er acetat- í stað phosphat- buffers. Hypoglycemisk áhrif eru mismunandi löng eftir gerð sus- pensionarinnar, ef amorf 12—16 klst. (Semilente), en ef krystall- insk er verkun um 36 klst. (Ultra- lente). Blanda var þannig nauð- synleg til gerðar insulins, sem end- ast mundi í 24 klst. og hefði jafn- framt sterkari áhrif að degi en nóttu (Lente). Ef þessi insulin hefðu komið fram 15 árum fyrr, hefði vart þótt ástæða til að setja P.Z.I., G.I. eða N.P.H. á markað- inn. SEMILENTE INSULIN (S.L.I.). Verkun er næstum eins hröð, en aftur nokkru lengri en áhrif S.I. Gefið fyrir morgun- og kvöldverð er verkun órofin allan sólarhring- inn og án teljandi overlapping*, þegar kvöldverður er ekki snædd- ur fyrir kl. 19. S.L.I. er þannig vel fallið til gjafa tvisvar á dag og kemur að góðum notum í erfiðum tilfellum. ULTRALENTE INSULIN (U.L.I.) Áhrif eru mjög áþekk verkun P.Z.I., og er það því sjald- an notað eitt sér. LENTE INSULIN (L.I.). Vand- leg athugun á blóðsykur-prófílum fjölmargra sykursjúklinga við notkun mismunandi blöndu Sem- ilente og Ultralente sýndi, að 3 hlutar hins fyrrnefnda með 7 hlut- um Ultralentehentaðiflestumbezt. Við eina. I. gjöf á dag fékkst góð stjórn á blóðsykri alls þorra hinna insulinþurfandi, árangur, sem síðar hefur verið rækilega stað- festur. Þegar þörf er talin á blöndu Semilente og Ultralente í öðru hlutfalli en 3:7, sem er í L.I., er bezt að nota hin fyrrnefndu til blöndunar fremur en annaðhvort þeirra og Lente. Byrjunaráhrifum * E.t.v. mætti nota orðið skörun um þetta, sbr. að sagt er, að þakplötur skar- ist og skarsúð. J. S. ritn.

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.