Læknaneminn - 01.08.1968, Qupperneq 56
50
LÆKNANEMINN
Magnús Jóhannsson, síud. med.
Breytingar á kennsluháttum
í læknadeild
Breytingar á kennsluháttum í
læknadeild voru síðast gerðar
1958, er núgildandi reglugerð var
samin. Breytingarnar, sem þá voru
gerðar, voru vafalaust til bóta, en
þær voru litlar, og heildarkerfið
var óbreytt. Kennslukerfi okkar
er mjög gamaldags, og er vissu-
lega þörf á rækilegri endurskoðun.
Samt sem áður hefur núverandi
kerfi sína kosti og ber að muna
eftir þeim, þegar nýtt er samið.
Núverandi reglugerð hafði að-
eins verið 4-5 ár í gildi, þegar
mönnum fór að verða ljóst, að
breytinga var þörf á ný. Flestir
læknanemar þekkja sögu þessa
máls síðan, og verður hún ekki
rakin hér.
Bláa bókin kom síðan út í sept-
ember 1966, og eru það tímamót,
vegna þess að það er það fyrsta
raunhæfa, sem gerist í átt til mjög
róttækra breytinga. Bláa bókin
fól í sér mjög fastmótaða skipt-
ingu á hverju ári niður í þrjár
annir (term), þar sem kennd væri
ein grein í senn. Námið átti að
taka 6-6 x/2 ár, kennurum þurfti
að fjölga um helming, og hverjum
árgangi átti að skipta í tvennt,
en það hafði í för með sér
tvöfalda kennslu. Þegar á átti að
herða, kom í ljós að tillögur þessar
voru ekki virkilega raunhæfar,
vegna kostnaðar, framkvæmda-
örðugleika auk fleiri annmarka.
Allt var nú hljótt um hríð, og gerð-
ist ekkert opinberlega í málinu
fyrr en í október 1967, þegar
hvíta bókin kom út. I hvítu bókinni
eru nýjar tillögur, og hafa þær
verið til umræðu og athugunar í
vetur.
Deildin skipaði nefnd til að
starfa að þessum athugunum, og
átti hún að skila áliti í formi nýrr-
ar reglugerðar. Nefndin tók til
starfa í desember og hefur starfað
síðan. í henni eru 5 kennarar, full-
trúi kandidata og fulltrúi stúdenta.
Nefndin hefur nú lokið störfum að
öðru leyti en því, að verið er að
festa á pappír tillögur að nýrri
reglugerð, en auk þess verður sam-
in greinargerð nefndarinnar, þar
sem reglugerðin verður skýrð og
túlkuð í smærri atriðum. Nefndin
hefur ráðfært sig við alla prófess-
ora og flesta aðra kennara. og
hafa ákvarðanir verið teknar í
samráði við þá.
Að áliti nefndarinnar er nauð-
synlegt að ráða sem fyrst kennslu-
stjóra (dean), sem hefi það starf
með höndum að stjórna kennslunni
í einstökum atriðum og samræma
hana hjá hinum ýmsu kennurum