Læknaneminn - 01.08.1968, Page 69
LÆKNANEMINN
61
Leifur Dungal, stud. med.
Þing IFMSA ■ París
Dagana 27. desember til 4. jan-
úar sl. var haldið í París 48. þing
stúdentaskiptastjóra og fulltrúa-
ráðs IFMSA, og sóttu það u.þ.b. 80
fulltrúar frá 20 af aðildarríkjum
samtakanna. Auk þess voru þar
nokkrir fulltrúar frá aukaaðildar-
ríkjum svo og frá WUS og fleiri
stofnunum. Var ég beðinn að halda
merki íslenzkra læknanema á lofti
á þingi þessu og lét tilleiðast eftir
miklar fortölur (svo sem eins og
fimm mínútur).
Dvalið var á stúdentagörðum
á Cité Universitaire og voru þar
einnig haldnir fundir fulltrúaráðs-
ins. Greinilegt var, að stúdentar
þar í borg eiga öðrum aðbúnaði
að venjast en tíðkast hér heima.
Ég bjó á belgíska garðinum, og í
herbergi mínu á 6. hæð (engin
lyfta), sem betur hefði sómt sér
á minjasafni, var t.d. ekkert vatn
í krönum, hvorki handklæði né
sápa og rúm, sem var ca. 170 cm
á lengd. Tóalettið var á næstu hæð
fyrir neðan og var illfært um það
stígvélalaust. Þessarar dýrðar
gætti svo paranoid húsvörður, sem
þuldi yfir manni formælingar á
sinni belgísku, þegar hann sá sér
færi á. Maturinn var allólystugur,
enda ávallt farið á restaurant á
eftir. Þó bjargaði það málinu, að
nóg var veitt af rauðvíni og bjór.
En, eins og fyrr er nefnt, er þetta
það, sem þarlendir stúdentar eiga
að venjast, og því alls ekki við þá
að sakast, sem skipulögðu þing-
haldið, enda var öli skipulagning
til fyrirmyndar og frönskum lækn-
anemum til hins mesta sóma. Far-
ið var með okkur í útsýnisferð um
Parísaborg og til Versala, boðið
í hanastél til menntamálaráðherr-
ans, Malraux, og á kvöldin haldnar
hinar dýrðlegustu veizlur, sem auð-
vitað náðu hátindi á gamlárskvöld.
Mörg mál og ólík voru til um-
ræðu á þinginu, en þó bar einna
mest á umræðum um aðild ýmissa
ríkja og ríkjasambanda, svo og
auðvitað umræðum um innbyrðis
samskipti og stúdentaskipti aðild-
arríkjanna. Upplýsti forseti
IFMSA, Robert Steffen frá Sviss,
að SAMA, bandarísku læknanema-
samtökin, myndu líklega sækja um
fulla aðild að IFMSA á þessu ári.
Þá munu samtök suður-amerískra
læknanema, STREMA, sennilega
fá aðild á ársþinginu í Helsinki
í sumar. Samningar stnda yfir við
samtök læknanema í Ástralíu,
Hong Kong, Singapore og Mal-
aysíu, ARMSA, og verður þess
vart langt að bíða, að þau fái ein-
hvers konar aðild.Áfundifulltrúa-
ráðsins var samþykkt að skylda
stúdentaskiptastjóra til að senda
öllum þeim, er sæki um stúdenta-
skipti í viðkomandi landi upplýs-
ingar um námsgildi þeirra kúrs-
usa, sem í boði eru, og segir mér