Læknaneminn


Læknaneminn - 01.08.1968, Side 81

Læknaneminn - 01.08.1968, Side 81
LÆKNANEMINN 7S FUNDUR 1 F.L. 30. 4. 1968. Fundarefni: Breytingar á launakjörum læknanema á ríkisspítölunum. Fundurinn haldinn í I. kennslustofu H.l. Formaður F.L. Edda Björnsdóttir, setti fundinn og skýrði forsögu fund- arefnis: Georg Lúðvíksson, framkvæmdastjóri líkisspítalanna, óskaði eftir umræðum við fulltrúa læknanema um væntanlegar ráðningar læknanema í nokkrar stöður á ríkisspítölunum nú I sumar. Þann 22. 4. sl. fór stjórn F.L. ásamt ráðninga- stjóra á fund framkvæmdastjórans. Þar kom í ljós, að í ráði var að lækka kaup læknanema í áðurnefndum stöðum og jafnframt flokka menn eftir stöðu í námi. Ekki var endanlega búið að ganga frá kauptaxta af hálfu ráðuneytisins, en næsta morgunn skyldi haldinn fund- ur með fulltrúum Reykjavikurborgar og fulltrúum frá Dóms- og Kirkjumála- ráðuneytinu. Samdægurs skrifaði stjórn FL. ráðuneytinu bréf, sem var lagt fyrir umræddan fund. Skömmu síðar barst F.L. afrit af bréfi ráðuneytisins til skrifstofu ríkisspital- anna, þar sem henni er heimilað að greiða læknanemum í afleysingum þann- ig: Læknanemar á síðasta ári 90% af byrjunarlaunum viðkomandi stöðu, læknanemar á næstsiðasta ári 80%, læknanemar í miðhluta 70%. 29. 4. gengu formaður og ritari á fund framkvæmdastjóra til umræðna. Hann taldi þennan taxta lokaboð ráðuneytis- ins. Stjórnin hafði samdægurs leitað álits yfirlækna Lsp., sem voru sammála stjórn um, að forprófin ein mörkuðu þáttaskil í III. hluta og ættu því pró- sentutalan að miðast við þau skil, en ekki síðasta eða næstsíðasta ár. Var skrifuð greinargerð og send fram- kvæmdastjóra, og sama kvöld lá fyrir munnleg yfirlýsing frá honum um, að þeir, sem hafi lokið forprófum, skuli fylgja 90% taxtanum. Að loknum þessum upplýsingum for- manns, var mönnum gefinn kostur á að segja álit sitt. Spurt var úr sæt- um, mest I. hl. menn, um störf kandi. data og þörf fyrir þá á sjúkrahúsum. Magnús Jóhannsson, fyrrv. formaður átaldi málsmeðferð af hálfu ríkisspítal- anna, en taldi hæpið að fara í hart, þar eð úrslit væru eki óhagstæð fyrir lækna- nema. Samþykkt var að fela stjórninni að forma mótmæli til stjórnar ríkisspítal- anna. 20—30 læknanemar voru á fundinum. Sumarstörf. Nú er sumarið komið eftir langan og strangan vetur. Læknanemar hafa margt í hyggju í sumar, bæði að fræð- ast og þjálfast og vinna sér fyrir náms- kostnaði við ýmis störf. Sumir hafa þegar ráðið sig til starfa í dreifbýlinu, ;aðrir ljúka skyldunámi á sjúkrahúsum, og enn aðrir búa sig undir próf. Áreið- anlegar fregnir herma, að margir I. hluta menn hafi tekið að sér að gæta laga og réttar í Reykjavík í sumar og íklæðzt svörtum einkennisbúningi með gylltum tölum, svo það er bezt að aka þægt og varlega í hægri umferðinni. pSt:ór hópur I. hluta manna fer að venju til Glasgow í hið margrómaða námskeið í krufningum og fleiru. Margir hafa ákveðið að fara í stúdentaskiptum til náms á sjúkrahúsum I öðrum löndum. sVið óskum öllum ánægjulegs sumars, og e. t. v. fáum við að lesa í þessu blaði, hvað á dagana hefur drifið. Árshátíð F. L. Læknanemar héldu árshátíð sína hinn 18. febrúar. Hófst hún kl. 14,30 um dag- inn með ávarpi formanns, en síðan tók aðalræðumaður dagsins, Ásmundur Brekkan yfirlæknir, til máls og þótti honum mælast vel. Birtist ræða hans á öðrum stað i þessu blaði. Eftir að hann hafði lokið máli sínu, lágu hin opin- beru hátíðahöld niðri þar til um kvöld- ið að borðhald hófst, þótt margir muni hafa notað tímann á milli vel og haldið nokkurs konar prívat árshátíðir. Til árshátíðarinnar um kvöldið voru að venju þeir læknar boðnir, sem tekið höfðu til máls á fundum félagsins á starfsárinu, en kennurum við deildina voru boðnir miðar til kaups. Borðhald- ið var í Þjóðleikhúskjallara eða in Hypogeo Theatris Nationalis, eins og stóð á aðgöngumiðunum og var vel sótt. Sigurður B. Þorsteinsson stjórnaði veizlunni af kunnáttu og með góðri kímni. Ræðumaður kvöldsins var Ulfar Þórðarson, læknir, og var hann ákaflega fyndinn í ræðu sinni, sem fjallaði um ýmsar aðferðir við sjúkdómsgreíningu, m. a. flóðs- og fjöru- aðferðina, veiðiað- ferðina o. fl. Þá var flutt frumsamið lag og Ijóð eftir Valgarð Egilsson stud. med. Hlaut það þegar miklar vinsældir og var áreiðanlega vinsælasta lag kvöldsins. Birtist það í þessu blaði. Margt fleira var til skemmtunar og að endingu stiginn dans, og sáust þar mörg afbrigði og sum forvitnileg af nýjustu idönsum. Mikill fjöldi sótti árshátið þessa, og héldu flestir eða allir ánægðir burt.

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.