Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1969, Page 40

Læknaneminn - 01.04.1969, Page 40
LÆKNANEMINN 40 verið rannsakaðir eins og æskilegt hefði verið, og má þá geta þess, að Hvítabandið var aðeins lítil hand- læknisdeild, sem hvorki hafði rannsóknastofu, röntgendeild né sérfræðinga í lyflækningum, nema á hlaupum. Vegna plássleysis varð aftur á móti að hraða aðgerðum, eins og hægt var. Einkennilega fáir voru með hækkaða blóðúreu og kreatínín, eða 78 með hækkaða blóðúreu og 48 með hækkað kreatínín við komu. Áreiðanlega voru fleiri með þvageitrun en þessar rannsóknir sýndu. Intrav. urografía var ekki gerð á nærri öllum, en ég er viss um, að hún er langbezta nýrna- prófið, sem hægt er að gera á þessum sjúklingum. Auðvitað var reynt að koma þessum sjúklingum í eins gott ástand og mögulegt var, áður en þeir voru skornir upp. Bætt úr blóðleysi með blóðgjöf, því að blóðmeðul eru allt of seinvirk. Mikill vökvi er nauðsynlegur, því að margir eru þurrir og með þvag- eitrun. Er því hgl. oft hærra við komu, ef þeir eru með þvageitr- un, en síðar mælist. Vanalega voru þeir látnir drekka sykurvatn, 1—2 1 á dag. Ef um sjúklinga með hjartasjúkdóma var að ræða, varð að fara varlega, og varð þá allur undirbúningur lengri. Nú munu vera liðin rúmlega 80 ár, síðan Mercier og McGill gerðu fyrstu prostatectomíuna. Síðan hefur verið reynt að ná þessum kirtli eftir öllum mögulegum leið- um: 1) Gegnum perineum. 2) Hefla hann burtu gegnum þvag- rásina. 3) Fara gegnum kvið- vegginn og blöðruna, neðan við lífhimnuna eða 4), gegnum kirtil- hýðið bak við lífbeinið, og nú síð- ast aftur gegnum þvagrásina og frysta hluta af kirtlinum, svo að hann rýrni og skreppi saman. Allar þessar aðferðir eiga það sameiginlegt að vera ófullnægj- andi, þ. e. prostata heldur velli og við ráðum ekkert við þennan kirtil, sem læknar vita ennþá sára- lítið um, og vafasamt er, hvort er okkur til nokkurs gagns, eða hví ættu flestöll spendýr að lifa góðu lífi án hans? Eg vona, að í fram- tíðinni getum við losnað við öll þau óþægindi, sem hann veldur okkur, eftir að þetta allt hefur verið rannsakað betur. Ánægjan af því að hafa hann er vafasöm. Allir sjúklingarnir voru skornir upp á þann hátt, að farið var inn í gegnum kviðvegginn, rétt ofan við lífbein, og svo í gegnum blöðru, a. m. Freyer, eða í gegnum kirtil- hýðið á bak við lífbeinið, a. m. Millini. Ekki get ég gert mikinn mun á hinum ýmsu aðgerðum. Þær taka álíka langan tíma, og blóðmissir er mjög svipaður. Það er áríðandi að taka allan kirtilaukann, sem getur verið mjög mismunandi að stærð og þyngd, allt frá 5—10 g og upp í 600 g. Ef eitthvað er skil- ið eftir af kirtlinum, getur það haldið áfram að stækka og orðið til þess, að annarrar aðgerðar sé þörf eftir nokkur ár. I 8 tilfellum var um að ræða menn, sem höfðu verið skornir upp annars staðar áður, en nú voru svo mikil þrengsli í innra þvag- rásaropinu, að þeir voru komnir með þvagteppu. Ég gat um 7 svip- uð tilfelli í grein minni 1957. Þetta er í öllum tilfellum af einni og sömu ástæðu. Stækkun blöðrubotnskirtilsins má raunverulega skipta í tvennt. Annað hvort er hún að mestu leyti inn í blöðruna, og úr blöðr- unni að sjá, líkist þetta einna mest cervix uteri, eða hún er und-

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.