Læknaneminn - 01.04.1969, Síða 44
LÆKNANEMINN
U
Rafeind losnar frá
óhlaðinni frumeind
við jónun
Neikvæður jón.
Rafeindin, sem losnaði
við jónun sezt að hjá áður
óhlaðinni frumeind, en hún
fær við það auka neikvæða
hleðslu
Neikvæður jón
(óbundin rafeind)
Jona
par
Jakvæður jón.
Frumeindin hefur
misst eina neikvæða
hleðslu og er ekki
lengwr hleðslujafnvægi
Mynd 1.
Jónun.
eftir rafhleðslu fátækari. Hafi
hún áður verið í hleðslujafnvægi,
verður hún nú með fleiri jákvæð-
ar hleðslur en neikvæðar og því
rafhlaðin út á við. Frumeindir
eða sameindir, sem ekki eru í
hleðslujafnvægi, kallast jónar.
Þetta eru aðaláhrif geisla og á
þeim byggjast flest önnur áhrif
þeirra. Við geislun illkynja æxla
valda einmitt þessi áhrif óbeint
frumudauða.
Geislar jóna mismikið. Röntgen-
og gammageislar jóna frekar lítið.
Þeir missa orku. sína smám saman
við að fara í gegnum efni og kom-
ast því miklu lengra en jafn orku-
miklir betageislar, sem jóna þétt,
missa orku sína fljótt og komast
því skemmra í efni. Skýringin
liggur í því, að betageislun er
hlaðnar agnir, en röntgen- og
gammageislun óhlaðnar.
Hinar þrjár tegundir geislunar,
röntgen-, gamma- og betageislun,
fást á mismunandi vegu. Gamma-
geislar fást frá geislavirkum efn-
um, aðallega kóbalti, cesxum og
radíum. Betageisla er mjög auð-
velt að framleiða. Ekki þarf annað
en að losa um rafeindir, t. d. í
málmum, þar sem þær eru mjög
laust bundnar, og knýja þær síð-
an áfram með rafspennu. Röntgen-
geislar eru framleiddir með aðstoð
rafeinda, en rafeindir, sem knúðar
hafa verið með háspennu, mynda
röntgengeisla við að stöðvast í
efni því, sem þær falla á. Slík
röntgengeislun er mest notuð í
geislalækningum.
Skulu nú athuguð þau geisla-
tæki, sem í dag eru helzt notuð til
geislalækninga.
Segja má, að frá árinu 1945 þar
til nú hafi þróun hávolta og ísó-
tópageislunartækja valdið róttæk-
um breytingum í öllum geisla-
lækningum. Skal þar sérstaklega
minnzt á kóbalt-60 geislunartæki.
Fyrsta tæki þeirrar gerðar var
sett upp árið 1951, en nú er tala
þeirra líklega orðin nálægt 2000.
Má reikna með, að kóbalttæki
komi að mestu leyti í stað þeirra