Læknaneminn - 01.04.1969, Page 71
LÆKN ANEMINN
6 7
Öll voru erindi ræðumanna hin
gleggstu, og fróðlegt var að heyra þetta
vandamál rætt frá sjónarhóli skuri lækn-
is, lyflæknis og barnalæknis.
1 lok fundarins var kosinn nýr stúd-
entaskiptastjóri, Ölafur Oddsson.
Fundurinn var vel sóttur.
Fuiulur í F. L.
Fundur var haldinn í Félagi lækna-
nema 27. febrúar 1969 í einni kennslu-
stofu Landspítalans. Fundarefni: Fé-
lagsmál.
Fyrstur tók til máls Sigmundur Sig-
fússon II. hluta og ræddi um hina nýju
löggjöf læknadeildarinnar, sem deildin
er u. þ. b. að afgreiða. Gaf hann fund-
armönnum gott yfirlit um þróun þess-
ara mála. Kom fram, að róttækustu
breytingarnar eru í sambandi við kosn-
ingu deildarforseta, um leyfi lækna-
deildar til að takmarka inngöngu í
læknadeild og stofnun embættis kennslu-
málastjóra.
Að ioknu erindi Sigmundar voru um-
ræður um löggjöfina. Ræddu menn aðal-
lega um inntökuskilyrði í deildina og
voru skoðanir manna á því máli mjög
skiptar.
Næstur tók tii máls gestur fundar-
ins Jón G. Stefánsson cand. med. og
ræddi um breytingu á reglugerðinni um
veitingu lækninga- og sérfræðingsleyfa.
Hefur nefnd á vegum læknadeildar
starfað að tillögugerð um þessi mál að
undanförnu, og mun tillagan nú liggja
fyrir.
Helztu breytingar eru þær, að gert
er ráð fyrir, að kandidatsárið lengist um
2 mán., og menn geti valið um 4
mán. dvöl á slysavarðstofu, barnadeild
eða geðdeild. Þá er og gert ráð fyrir
styttingu sérfræðináms.
Að loknu erindi Jóns urðu nokkrar
umræður. Síðastur tók til máls Atli
Dagbjartsson cand. med., og greindi
mönnum frá hinni svonefndu Húsavík-
urdeilu.
Að lokum tók formaður félagsins
Edda Björnsdóttir til máls og þakkaði
ræðumönnum fyrir fróðleg erindi og
sleit síðan fundinum.
Fundurinn var illa sóttur, því að að-
eins mættu 23 læknanemar.
Fundur í F. L.
Fundur var haldinn í Félagi lækna-
nema 6. marz 1969 í Átthagasal Hótel
Sögu. Gestir fundarins voru læknarnir
Alfreð Gíslason og Þórarinn Guðnason.
Formaður félagsins, Edda Björnsdóttir,
setti fundinn og skipaði Jóhann Heiðar
Jóhannsson fundarstjóra og Hörð Al-
freðsson fundarritara. Ljóðalestur var
fyrst á dagskrá. Þórarinn Guðnason
lssknir las fjögur ljóð, eitt eftir hvert
skáldanna Guðmund Frimann, Guðmund
Böðvarsson, Þorstein Valdimarsson og
Snorra Hjartarson, við góðar undirtektir
fundarmanna. Þvi næst var erindi
Alfreðs Gíslasonar læknis, sem hann
nefndi: Hvað er líf?
1 upphafi máls síns ræddi hann stutt-
lega um hlutverk lækna, þ. e. a. s. að
varðveita heilsu, vernda líf og bjarga
lifi. Næst ræddi hann um hugtökin „líf“
og ,,að lifa“, sem áður hefðu verið auð-
skilin, en nú á tímum væri oft örðugt
að skilgreina. Einföldustu skýringuna á
lífi taldi hann þá, að það efni væri lif-
andi, sem annaðist sjálft efnaskipti sín.
Síðan vék ræðumaður að upphafi
lifsins á jörðinni, og á hvern hátt það
hefði hugsanlega orðið til og þróazt, og
um rannsóknir vísindamanna á þessu
sviði. Þá ræddi hann lítillega samband
lífs og dauða.
Að lokum dró ræðumaður saman nið-
urstöður máls síns: Lífið er a. m. k.
jafngamalt sólkerfunum. Það er gætt
eilífn æsku. Lífið tók sér bólfestu í efn-
inu, þegar efnið var undirbúið, slðan
hefur það fullkomnazt og er enn í þró-
un. Dauðinn er lífinu ónauðsynlegur og
sumar lífverur bera í sér ódauðleikann
(t. d. einfrumungar).
Að loknu erindinu beindu fundarmenn
nokkrum spurningum til fyrirlesara, en
síðan var gert hlé á umræðum og tekið
til við kaffidrykkju og kökuát. Meðan
snætt var, lék Haukur Heiðar Ingólfs-
son stud. med. létt lög á píanó.
Síðar ræddi fyrirlesari nokkuð um
hugtakið „biologiskt minni,“ og svaraði
siðan enn nokkrum spurningum.
Að umræðum loknum var þessum
skemmtilega fundi slitið. Fundarsókn
var nokkuð góð, mættir voru um 40
læknanemar.
Aöalfundur F. L.
Aðalfundur Félags læknanema árið
1969 var haldinn 25. marz í XI. kennslu-
stofu H. 1. Edda Björnsdóttir formaður
félagsins setti fundinn og stýrði honum,
fundarritari var skipaður Leifur N.
Dungal.
Fyrst las formaður skýrslu um störf
stjórnarinnar frá liðnu ári.
Sigurður Þorgrimsson gerði grein fyr-
ir reikningum stúdentaskipta. Pálmi
Frímannsson las reikninga Læknanem-
ans. Kom fram að upplag blaðsins hef-