Læknaneminn - 01.04.1969, Síða 73
LÆKNANEMINN
69
diktafónn hefur og: skotið þar upp koll-
inum. Eln því miður vantar hann mót-
part sömu tegundar og kemur því að litlu
gagni enn sem komið er. Virðast sum-
ir ekki gera sér ljóst, að um orðabelgi
gildir reglan: ,,der skal to til“, þ. e.
einn fyrir þá, sem lesa, og annan fyrir
ritara, ef nokkurs árangurs er að
vænta. Þó hefur borið við, að læknar
hafi lesið inn á hann aðgerðarlýsingar
o. fl. og eru þeir ekki frá því, að slíkt
sé fljótlega en gamla lagið, þ. e. að
lesa kandidötum fyrir og láta þá hand-
skrifa. Journalar eru hins vegar ennþá
handskrifaðir og þvi fremur óyndis-
legir aflestrar eins og við er að búast,
þegar beita þarf ýmsum aðferðum til að
ráða þær hieroglýfur, sem hinir og
þessir hafa hripað niður í flýti. Hafa
kandídatar fullan hug á því að fá þessu
breytt.
Sá merkisatburður skeði fyrir
skömmu, að kandídatar fluttu í nýtt
herbergi, en það gamla, sem lengi hef-
ur verið frægt að endemum, var mokað
út. Er það mál manna, að margt furðu-
legt hafi komið í ljós við þá evaeuatio.
Er hið nýja herbergi bjart og vistlegt
og að öllu leyti í samræmi við nútíma-
kröfur um mannabústaði.
En það, sem mest hefur glatt kandí-
data og stúdenta, er, að tekin hefur
verið upp reglubundin kennsla á deild-
inni. Hefur Gunnar Biering barnalæknir
riðið á vaðið og er ætlun hans sú, að
kandidatar fái a. m. k. fimm kennslu-
stundir í perinatologíu þann tíma, sém
þeir eru á deildinni. Miðast þessi lág-
markskennsla við það, að kandidatar fái
yfirferð yfir þau atriði, sem þeim er
hvað mest nauðsyn að kunna skil á
varðandi ungbörn: 1) Skoðun ungbarna.
2) Rhesuskvillinn. 3) Lífgun ungbarna.
4) Respiratory distress. 5) Fyrirburðii'.
Þetta er hugsað sem minimum, en Gunn-
ar hefur boðizt til að fara yfir fleiri
atriði og hafa fleiri tíma, sé þess óskað.
Gynaecologar deildarinnar hafa ekki,
enn sem komið er, auglýst fasta kennslu,
þótt sumir muni hafa slxkt í athugun.
Hins vegar hafa þeir haft góð orð um
að hafa tíma með kandidötum og
stúdentum, ef um þá sé beðið. Er slíkt
lofsvert, en fast kennsluprógram er
samt það, sem koma skal.
Skemmtileg nýbreytni hefur verið upp
tekin nýlega, eins konar „hádegisverð-
arfundir" sem haldnir eru hálfsmánað-
arlega. Komið er saman hjá þeim lækn-
inum, sem fundinn heldur hverju sinni,
snæddar pylsur og drukkinn pilsner og,
þá er menn hafa tekið sárasta skurðinn
frá brjóstinu, tekur gestgjafinn til máls
og færir í tal tímaritsgreinar, sem hann
hefur tekið til, um efni, sem hann hef-
ur valiö til umræðu á fundinum. Leggja
svo hinir orð i belg og eru málin rædd
fram og aftur. Er mjög létt yfir þess-
um fundum auk þess að þeir eru fróð-
legir, enda tekin fyrir forvitnileg efni,
hvort sem um er að ræða algerar nýj-
ungar eða kynntar framfarir á þekktu
sviði. Hafa til þessa verið haldnir tveir
fundir, annar um prostaglandín, —
efni, sem að vlsu er fundið fyrir alllöngu
í prostata, en sem kornið hefur í ljós,
að finnst i blóði kvenna meðan á fæð-
ingu stendur. Hinn fundurinn fjallaði
um „induction of labour,“ kynnt voru
ný sjónarmið varðandi gangsetningu á
fæðingum.
Er gott t.il þess að vita, að hreyfing
skuli vera komin á menn innan fæð-
íngardeildarinnar. Við þá deild hefur of
lengi loðað, að þar ríki deyfð og drungi.
Þó segja megi með réttu, að of snemmt
sé að spá um framtíðina, mun þó óhætt
að segja, að það, sem talið hefur verið
upp, lofi góðu um framhaldið,
K. R.
Leiðrétting.
1 greininni Mengun andrúmsloftsins
urðu eftirtaldar þrjár prentvillur: Á bls.
34 stendur feitletrað Síkomin eitrun, en
á að vera Síðkomin eitrun. Á bls. 37 í
síðustu línu á undan þriðju greinarskil-
um í Lokaorðum stendur brennisteins-
tríoxíð, en á að vera brennisteins-
tvíoxíð Þrem línum ofar stendur best 1
stað berst.
Svör við þrautum.
Pétur er 50 ára.
E'rumþættir i tölunni 2450 eru 2,5,5,7
og 7. Séu þeir margfaldaðir saman, fást
margir möguleikar á aldri barnanna.
Fyrst Pétur veit samanlagðan aldur
þeirra, en þarf saxnt fleiri upplýsingar
hljóta tveir möguleikarnlr að gera
sömu summu. Það eru einmitt möguleik-
arnir 5,10,49 og 7,7,50.
Fyrst það nægir Pétri að vita, að
elzta barnið er yngra en hann sjálfur,
hlýtur hann að vera 50 ára.
Norðlendingurinn er lyfstali, Aust-
firðingurinn kennari, Sunnlendingurinn
sýslumaður og Vestfirðingurinn bæjar-
stjóri.
16 kg. Gaztu þetta nú ekki heldur?