Læknaneminn - 01.04.1991, Page 52
auki er lögð áhersla á flókin kolvetni, treíjar og prótein
úr fitusnauðum vörum bæði kjöti, mjólkurvörum,
komvörum og baunum. Það er hlutfall fitu/kolvetna
frekar en heildarfjöldi hitaeininga sem sýnir sterkust
tengsl við offitu (23). Hinir feitu borða því oftast ekki
fleiri hitaeiningar heldur meira af þeim úr fitu og
minna úr grófum kolvetnum. Lækkun blóðfitu er allt
frá 15-25 % og á þríglýseríðum 20- 40%, ef bæði
ofannefnd markmið nást fram. Oft er það nægilegt
(25).
Niðurstöður úr Framingham rannsókninni
benda til þess að án breytinga á fæðu væru um 16%
amerískra karla kandidatar fyrir lyfjameðferð en með
breytingum á fæðu mætti lækka þá tölu niður í 7% og
4% hjá konum. Þetta er þrátt l'yrir það að
meðallækkun kólesteróls sé aðeins 7-11% í þeirri
rannsókn(24). Þettaerþvíspurning um ótrúlegamikla
peninga. Sú þumalfingursregla er stundum notuð að
1% lækkun í serurn kólesteróli minnki hættu á hjarta
og æðasúkdómum um 2%. Þetta er trúlega vanmat og
er 3% fall nær lagi (37).
Fæði virðist hafa mest áhrif á LDL-C. Þar er
mikilvægasta einstaka atriðið magn mettaðrafitusýra
af kolefnislengdinni 12-16 (25), en þær er helst að
finna í feitu kjöti, í feitum mjólkurvörum, sumum
jurtafitum svo sem kókoshnetufitu sem mikið er notuð
í brauð og kex og einnig sjörlíki svo nokkuð sé nefnt.
Hún er 91 % mettuð áður en hún er unnin. Það segir því
lítið þó það standi á vörum að þær innihaldi jurtafitu
því hún er oft jafn slæm. Við mettun og steikingu
breytast fjölómettaðar fitusýrur úr sinni eðlilegu cis-
mynd yfir í trans-mynd sem er líffræðilega óvirk og
auk þess mettuð og því ófær um að valda
blóðfitulækkun. Algengt erað mælt sé með að hlutfalI
mettaðrar/fjölómettaðrar fitu sé 1.0.
Margar rannsóknir benda til þess að hlutfall
heildarkólesteróls/ HDL sé betri mælikvarði á áhættu
á hjarta og æðasjúkdómum, en heildarkólesteról,
HDL eða þríglýseríð ein sér (26.27.28,37).
E. Kólesteról.
Kólesteról ermest verðlaunaða litlasameindin í
líffræðinni enda hafa 13 vísindamenn sem helgað hafa
líf sitt rannsóknum á því fengið Nóbelsverðlaun. Það
virðist þó sjálft hafa minni áhril' á kólesteról í blóði
heldurenmettuðfita. Háttkólesteról ífæðuerþótengt
hækkunákólesteróli íblóðien miklu minnaen mettuð
fita (25).
Hvernig stendur þá á því að sumir geta innbyrt
mikið magn fitu og þó aðallega kólesteról en samt haft
litla blóðfitu? Melting kólesteróls er flókin og gerist í
mörgum þrepum. Margir þættir hafa áhrif á það hve
mikið er uppsogað svo sem magn fitu, trefja,
plöntusteróla og hraði fæðunnar um meltingarveg.
Hraðatakmarkandi skrefið er ekki fullþekkt en er þó
talið tengjast flutningi frís kólesteróls í micellum úr
þarmaaholinu að enterocytum og á fríu formi yfir
himnurþeirra. Þetta vartalið gerast meðpassívu flæði
en nokkrar rannsóknir hafa bent til áður óþekkts
flutningspróteins yfir himnur frumanna. Skrefin inni
í enterocytunum eru ekki vanalega talin
hraðatakmarkandi. Minnkað uppsog virðist vera aðal
aðferð líkamans til að takmarka kólesteról úr fæði.
Stjórnin á því er þó mismunandi milli manna. Einnig
spilar umbreyting kólesteróls og útskilnaður í formi
gallsalta stórt hlutverk(29.30). Þar geta stórar plús
hlaðnar fjölliður bundist mínus hlöðnum gallsöltum
ogfluttúrlíkamanum. Þettaþvingarlifrinatil aðtaka
kólesteról úr blóði og breyta því í gallsölt til
útskilnaðar og lækkar um leið blóðfitu.
F. Áhrif ýmissa fitutegunda og annara
fæðutegunda á blóðfitu.
1. Einómettaðar fitusýrur. Dæmi um þær er
olíusýra sem er ma. í ólífuolíu.
Rannsóknir á miðjarðarhafsþjóðum sem neyta
mikllarólífuolíu,einsogGrikkjum og Spánverjum og
hafa lága tíðni hjartasjúkdóma, virðast benda til þess
að ólían lækki LDL-C (31), amk. þegar hún komi í
staðin l'yrir mettaða fitu(25), en hafi lítil áhrif á HDL-
C og þríglýseríð. En sé hlutlausari þegar hún komi í
stað kolvetna eða lækki kólesteról eitthvað.
Okosturinn viðólífuolíuersáaðhún innihelduraðeins
aðra af tveim lífsnauðsynlegu fitusýrunum eða
línólíusýru. Kosturinn við hana er að hún fæst
algjörlega óunnin eins og hún kemur úr ólífunum í
formi Extra virgin olive oil og er græn á litin (32).
2. Fjölómettaðar fitusýrur. Dæmi um þæreru
línolen (omega-3) og línolíusýrur (omega-6) sem eru
báðarlífsnauðsynlegarogfinnastt.d. í graskersolíum
50
LÆKNANEMINN 1 1991 44. árg.