Bændablaðið - 11.05.2023, Síða 10

Bændablaðið - 11.05.2023, Síða 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023 FRÉTTIR Reykjabúið ehf auglýsir eftir röskum aðila til að taka að sér þrif á fuglahúsum í Ölfusi. Fuglahús eru mokuð og sápu þrifin eftir hverja eldislotu. Áríðandi að viðkomandi temji sér verklag og umgengnisreglur sem gilda í svona starfsemi. Nánari upplýsingar veitir Jón Magnús, s. 566 8250 - reykjabuid@kalkunn.is Atvinna í boði Reykjabúið ehf / Ölfus Reykjabúið ehf, 271 Mosfellsbæ Hitaveitur: Rjúfa verði kyrrstöðu í jarðhitarannsóknum – Talin þörf á sérstöku átaki til að bregðast við aukinni eftirspurn Frá kynningu skýrslu ÍSOR: (f.v.) Magnús Ólafsson, Steinunn Hauksdóttir, Árni Magnússon, forstjóri ÍSOR, Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Auður A. Óladóttir og Sigurður G. Kristinsson. Mynd / Umhverfisráðuneytið Í nýrri skýrslu Íslenskra orku- rannsókna (ÍSOR) um stöðu hitaveitna og nýtingar jarðhita- vatns til húshitunar, sem kynnt var 5. maí, kemur fram að um 2/3 þeirra hitaveitna sem úttekt nær til sjá fram á aukna eftirspurn og telja fyrirsjáanleg vandamál við að mæta henni. Þá þarf tæpur helmingur hitaveitna að fara í kostnaðarsamt viðhald á innviðum og dreifikerfi. Skýrsluhöfundar leggja til að farið verði í sérstakt átak til að aðstoða núverandi hitaveitur við að bregðast við aukinni eftirspurn. Ávinningur þess verði bætt rekstraröryggi veitna og að draga muni úr niðurgreiðslum vegna rafkyntrar húshitunar. Þá vinni slíkar aðgerðir með loftslagsmarkmiðum ríkisstjórnarinnar og auki lífsgæði sem fólgin séu í aðgengi að jarðhitavatni. Ísor telur að með nýjum rannsóknaraðferðum, aukinni tækniþróun og bættum úrvinnsluaðferðum og þekkingu megi búast við að hægt verði að finna nýtanlegan viðbótarjarðhita fyrir margar hitaveitur og útfæra aðrar tæknilausnir til húshitunar. Niðurstöður rannsókna ÍSOR gefa til kynna að margar hitaveitur sjái fram á að geta ekki sinnt fyrirsjáanlegri eftirspurn. Stafar það einkum af skorti á grunnrannsóknum á jarðhita og takmörkuðu framboði á bortækjum og sérfræðiþekkingu. Þá hamlar erfiður rekstur sveitarfélaga og takmarkað aðgengi að fjármagni viðbrögðum við vaxandi eftirspurn, auk þess sem leyfisveitingaferli er talið flókið og ágreiningur er um réttindi og leyfi frá landeigendum. Unnið var með allar reglugerðarveitur en þær vinna úr 63 jarðhitasvæðum. Ákveðnir þættir í starfsemi hitaveitnanna voru rannsakaðir til að gera þær samanburðarhæfar og meta hvað vantar upp á. Metinn var forði og umframgeta hvers svæðis fyrir sig og möguleikar á stækkun og hvort veitan væri sjálfbær, ágeng eða ósjálfbær. Samkvæmt niðurstöðum er vinnsla hjá 4 hitaveitum metin ágeng og 24 hitaveitur sjá fram á meira en 10 prósent aukningu á næstu 5 til 10 árum. Níu hitaveitur, sem hafa möguleika á stækkun, horfa fram á yfir 50% aukningu í eftirspurn og sambærileg aukning í eftirspurn er hjá þremur veitum sem ekki eru taldar hafa möguleika á stækkun að svo stöddu. Þær 7 hitaveitur sem komu best út samkvæmt úttektinni eru margar stærri og með meiri vinnslu en þær veitur sem fengu lægsta einkunn. Sveigjanleiki og stærðarhag- kvæmni gerir hitaveitum auðveldara um vik að svara aukinni eftirspurn og takast á við vanda í rekstri. Lítil framþróun ÍSOR leggur til að horft verði á mikilvæg langtímaverkefni. Þörf sé á heildstæðum grunnrannsóknum á sviði jarðhita, en þær séu forsenda sjálfbærrar nýtingar jarðhita til framtíðar. Slíkar rannsóknir séu sérhæfðar á sviði jarðhita og krefjist sérþekkingar og tækja sem mikilvægt sé að viðhalda á Íslandi svo að alþjóðlegt samkeppnisforskot á sviði jarðhitanýtingar tapist ekki. „Á 7. og 8. áratugum varð þessi stóra bylting þar sem jarðhiti varð ráðandi hitaveitugjafi til húshitunar. Síðan hefur lítið sem ekkert breyst. Í vetur erum við komin í þá aðstöðu að eiga á hættu að missa þá frábæru stöðu sem við vorum komin í,“ sagði Auður Agla Óladóttir, jarðfræðingur hjá ÍSOR, þegar skýrslan var kynnt. Áskoranir hitaveitna á Íslandi eru einkum að afla jarðvísindalegra grunnrannsókna á jarðhita til að auka þekkingu á auðlindinni og kostnaður við boranir á rannsóknar-, vinnslu- og/eða niðurdælingarholum. Þá sé viðhald og/eða stækkun dreifikerfa og innviða mikil áskorun og jafnframt að nýta vatn betur. Það megi gera með því að stuðla að orkusparnaði notenda og tæknilegum lausnum, svo sem niðurdælingu og nýtingu bakrásarvatns. Guðlaugur Þór Þórðarson, ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsmála lét vinna skýrsluna í kjölfarið á fréttum um erfiða stöðu hjá mörgum hitaveitum sl. vetur. „Skýrslan er til fyrirmyndar, skýr og góð, en niðurstöðurnar ekki góðar – en þó góðar að því leyti að þær eru grunnur að góðri ákvarðanatöku,“ sagði Guðlaugur Þór þegar skýrslan var kynnt. „Okkur ber skylda til að nýta þau tækifæri sem við erum með og byggjum á afskaplega góðum grunni. Það sem við erum að gera núna byggir á þekkingu og reynslu fyrri kynslóða. Í grunninn snýst þetta um samkeppnisstöðu okkar og loftslagsmálin.“ Skýrslan er aðgengileg á vef stjórnarráðsins. /sá Hitaveitur sjá fram á aukna eftirspurn. Mynd / Sam Bark Þörf á vestfirskum vatnsaflsvirkjunum Ákall er eftir að virkja orku hinna vestfirsku fjalla. Mynd / ÁL Ótrygg raforka á Vestfjörðum stendur uppbyggingu fyrir þrifum. Þörf er á nýjum virkjunum að lágmarki 25 megavött. Efla þarf flutningskerfið til að auka afhendingaröryggi og takmarka flutningstöp. Varaafl framleitt með jarðefnaeldsneyti skiptir enn miklu máli. Fram til ársins 2030 er áætlað að 20 megavött þurfi í orkuskipti og rafvæðingu á höfnum, smábátum, þungaflutningum og einkabílum. Enn fremur má gera ráð fyrir að 15 megavött þurfi til að mæta uppbyggingu nýrra fyrirtækja á svæðinu. Orkuþörf Vestfjarða fer því úr 50 megavöttum í 85. Þetta er meðal þess sem kom fram á Orkuþingi Vestfjarða 12. apríl sl. Samþykktir hafa verið tveir virkjanakostir í rammaáætlun sem geta hvor um sig uppfyllt áðurnefnda orkuþörf, þ.e. Austurgilsvirkjun og Ófeigsfjarðarvirkjun. Jafnframt er til skoðunar virkjunarkostur í Vatnsdal í Vatnsfirði. Í undirbúningi er virkjun í Steingrímsfirði sem getur skilað allt að 10 megavöttum. Líklegt er að hringtenging flutningskerfis raforku á norðan- og sunnanverðum Vestfjörðum verði lokið á næstu þremur árum. Með aflaukningu og eflingu flutnings- kerfisins mun afhendingaröryggi aukast um 90 prósent. Vegna ótryggrar afhendingar á raforku skiptir jarðefnaeldsneyti miklu máli við framleiðslu á varaafli. Til staðar eru ljósavélar sem geta framleitt 28 megavött raforku, ásamt tólf megavatta olíukatli tengdum fjarvarmaveitu. /ÁL Eftirlitsstofnun ESA hefur sent íslenskum stjórnvöldum formlegt áminningarbréf um starfsemi blóðtöku úr fylfullum hryssum. Þau kalla eftir því að EES-reglum um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni sé beitt rétt. Áminningarbréfið kemur í kjölfar kvörtunar sautján félagasamtaka sem Eftirlitsstofnuninni barst í apríl árið 2022. Þar lýsa félagasamtökin að starfsemi blóðtökunnar hér á landi væri andstæð ákvæðum EES samningsins. Bréfið er upphaf að hugsanlegri málsókn eftirlitsstofnunarinnar gegn íslenskum stjórnvöldum fyrir brot á ákvæðum EES samningsins. Íslensk stjórnvöld hafa tvo mánuði til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður stofnunin ákveður hvort málið verði tekið lengra. /ghp Áminningarbréf frá ESA

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.