Bændablaðið - 11.05.2023, Blaðsíða 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023
Í garð er genginn sá árstími sem
heillar mig mest, íslenska vorið.
Haustið fylgir fast á eftir.
Þessar tvær árstíðir eru tímar
umbrota í lífríkinu. Vorið lokkar
upp úr moldinni líf úr fasta svefni.
Liljurnar við rætur kanadíska
garðahlynsins hér í bakgarðinum
eru fyrstar, svo spretta á fætur
nokkrir fíflar og bóndarósin teygir
sig í ljósið.
Lóan og krían koma úr langferð og
gleðja okkur, veturbarða Íslendinga.
Gæsir og álftir sömuleiðis, en
nýjustu fréttir eru að mun minna sé
af þessum fiðruðu vinum okkar en
undanfarin ár. Getur skýringin verið
að það sé orðið svo dýrt að fljúga?
Laxar og silungar ganga í ár,
kollur leggjast á egg og hrognkelsið
gengur upp að ströndinni.
Af vorboðunum er þó einn þeirra
sem í mínum huga slær þeim öllum
við. Ilmurinn úr jörðinni þegar
hún hefur safnað í sig yl sólar og
sunnan vinda. Það er fallegasta lykt
á Íslandi.
Að hausti skartar náttúran
guðdómlegri litadýrð
Atburðarásin snýst til baka, jurtirnar
hverfa til vetrardvalar og þeir fuglar
sem nenna því fljúga á suðrænar
slóðir.
Hvernig þetta þrautskipulagða
fyrirkomulag varð til veit enginn,
þrátt fyrir öll vísindi nútímans. Lífið
er dásamlegur galdur.
Einn af vorboðum Íslands er
trillukarlinn. Í marsmánuði hefjast
grásleppuveiðarnar sem eiga sér
árhundraða sögu. Atvinnuveiðar
hófust þó aðeins fyrir rúmum sex
áratugum með útflutningi saltaðra
grásleppuhrogna. Til forna var
hrognkelsið stungið í fjöru og veitt
í net. Grásleppan var jafnvel borin
á tún fyrir kýrnar sem kunnu vel að
meta. Samkvæmt heimildum var blá
slikja á mjólkinni úr þessum kúm.
Rætur íslensks sjávarútvegs
liggja í smábátaútgerðinni. Þar
liggur upphafið. Að auki liggja í
smábátaútgerðinni menningarleg
verðmæti sem ber að varðveita og
hlúa að. Fjölmargrar sjávarbyggðir,
hringinn í kringum landið, byggðust
upp á útgerð lítilla báta og nýtingu
nálægra fiskimiða.
Hvaðan fengu stjórnvöld rétt til
þess að afnema þessa tengingu? Frá
almenningi?
Í 75. grein stjórnarskrár lýð-
veldisins er kveðið skýrt: „Öllum
er frjálst að stunda þá atvinnu sem
þeir kjósa. Þessu frelsi má þó setja
skorður með lögum, enda krefjist
almannahagsmunir þess.“
Fyrir Alþingi liggja frumvörp
um kvótasetningu grásleppu og
umbyltingu strandveiða. Í greinar-
gerðum þessara frumvarpa er hvergi
að finna tilvísun í þessa mikilvægu
grein stjórnarskrárinnar, hvað þá
rökstuðning um að frumvörpin varði
almannahagsmuni.
Í mínum huga er þetta stjórn-
sýslulegt fúsk.
Margfalt eftirlit
Í byrjun maímánaðar halda strand-
veiðimenn til hafs, vopnaðir
handfærum, veigaminnsta veiðarfæri
sem beitt er við Íslandsstrendur.
En það er ekki eins og þeir hafi
frjálsar hendur. Mega róa fjóra daga
í viku, verða að skila sér í höfn eigi
síðar en 14 klukkustundum eftir
að þeir lögðu frá, mega nota fjórar
færavindur og að hámarki veiða 774
kg af óslægðum þorski í róðri.
Þá verða þeir að tilkynna, áður en
þeir landa, eigin ágiskun í gegnum
smáforrit hver sé dagsaflinn.
Þetta er eitt það fíflalegasta innan
fiskveiðistjórnunarkerfisins.
Upplýsingar um hvort tveggja
liggja fyrir nokkrum mínútum eftir
löndun. Eina skýringin sem ég hef
heyrt frá Fiskistofu er að hugsanlega
séu einhverjir með falinn afla um
borð sem þeir ætli sér að landa síðar.
Heyr á endemi.
Fiskveiðieftirlit Fiskistofu með
grásleppu- og strandveiðum
er margfalt á við eftirlit með
togaraflotanum. Sá síðarnefndi veiðir
rúmlega helming þorskskaflans
á meðan grásleppukarlar og
strandveiðiflotinn dregur úr sjó
5-6%. Á árinu 2022 fór Fiskistofa
ekki í eitt einasta dróna/eftirlitaflug
yfir togaraflotann. Það verður að
teljast sérstakt afrek.
Hver er árangurinn?
Ég vona að flestir þeirra sem hafa haft
sig í gegnum þessa lesningu minnist
þess að matvælaráðherra skipaði
stóran hóp fólks undir vinnuheitinu
„Auðlindin okkar“.
Ég hef enga ástæðu til að ætla
annað en að þar sé einlægur vilji að
baki til að nálgast það meginmarkmið
verkefnisins að skapa sátt um
sjávarútveginn meðal þjóðarinnar,
í samræmi við fyrirheit í sáttmála
ríkjandi ríkisstjórnar.
Í „hálfleik“ þessarar vinnu
dreifði matvælaráðuneytið 220
blaðsíðna bæklingi með kynningu á
niðurstöðum starfshópanna fjögurra,
þ.e. „Aðgengi“, „Umgengni“,
„Samfélag“ og „Tækifæri“.
Á síðustu síðu bæklingsins (220)
var fyrirheit um að framkvæma ætti
skoðanakönnun meðal almennings
um viðhorf hans til sjávarútvegsmála.
Á fundinum þar sem bæklingnum
var dreift var þetta því miður það eina
sem ég sá ástæðu til að fagna.
Mér fannst málskrúðið í
bæklingnum óþægilega litað lofgjörð
um kvótakerfið, sjónarmiðum
þeirra sem vilja smábátaútgerðina
feiga, sem og að sniðgengnar voru
grundvallarspurningar.
Það var á mörkum þess að ég tryði
því að hvergi örlaði á gagnrýnum
spurningum varðandi árangur
ráðgjafarstarfs Hafró síðastliðna fjóra
áratugi. Starfshóparnir sáu heldur
ekki ástæðu til að gera athugasemd
við þá staðreynd að verðlagning
landaðs afla er tvöfalt, þar sem ætíð
hallar á þá sem reiða sig eingöngu á
frjálsa uppboðsmarkaði sjávarafla.
Í mínum huga var og er stærsta
spurningin þessi: Hver er árangurinn
af ráðgjöf Hafró síðastliðna áratugi?
Þessa spurningu var hvergi að finna
hjá starfshópunum eða í bæklingnum.
Hafsbotninn er kolefnisforðabúr
Ekki örlaði heldur á því að taka
til skoðunar skýrslu sem birtist
í vísindatímaritinu Nature í
marsmánuði 2022 um samspil
togveiða og losunar á koltvísýringi
úr hafsbotninum. Sé mark á henni
takandi er skýrslan kolsvört fyrir
togveiðiflotann.
Ég hef hvorki menntun né
kunnáttu til að dæma þar um, en
af fálæti starfshópanna fjögurra má
ætla að engum þeirra þótti mark
á þessu takandi, hvað þá heldur
matvælaráðuneytinu. Starfshóparnir,
samkvæmt því, ásamt ráðuneytinu,
hljóta því að vita betur.
Sé svo er sjálfsagt að málið sé
afgreitt með greinargerð þar sem sýnt
er fram á að innihald skýrslunnar sé
markleysa.
Samkvæmt vísindunum er
hafsbotninn stærsta kolefnisforðabúr
jarðar. Getur verið að botnrót auki
losun koltvísýrings? Skýrslan í
Nature áætlar að við hvert tonn af
fiski sem veitt er í troll, losni að
meðaltali 50 tonn af koltvísýringi,
þrisvar sinnum meira en að meðaltali
við aðrar veiðar.
Yfirgnæfandi stuðningur
Hvað sem öllu þessu líður fékk
matvælaráðuneytið Félags-
vísindastofnun Háskóla Íslands til
að gera ítarlegra skoðanakönnun
um viðhorf almennings varðandi
sjávarútveginn.
Ég viðurkenni fúslega að ég var
hreint ekki svo viss um hversu mikill
stuðningur almennings væri við
smábátaútgerðina. Fyrir um 30 árum
lét Landssamband smábátaeigenda
gera skoðanakönnun svipaðs eðlis.
Stuðningur almennings þá var
svo mikill að það var allt að því
óraunverulegt. Í könnuninni nú
var almenningur hins vegar í fyrsta
skipti spurður um afstöðu hans til
strandveiða, fjórtán árum eftir að þær
voru leiddar í lög.
Niðurstaðan er afgerandi. 72,3%
aðspurðra vilja veg þeirra mun meiri
en nú er. Matvælaráðherra þarf því
ekki lengur að velkjast í vafa um
hlutina. Hún hefur yfirgnæfandi
stuðning almennings þar við.
Það var eftir öðru að viðbrögð
stórútgerðarinnar voru þau að
almenningur hefði ekki hundsvit
á sjávarútvegi.Á aðalfundi Lands-
sambands smábátaeigenda í október
sl. kom Svandís Svavarsdóttir á seinni
fundardeginum og hélt stutta tölu.
Mér er sérstaklega minnisstætt þau
orð sem hún lét falla að fundarmenn
mættu kalla hana strandveiðiráðherra.
Þessu vil ég trúa. Þegar stjórnvöld
efndu til strandveiðikerfisins
voru þau að bregðast við áliti
Mannréttindanefndar Sameinuðu
þjóðanna.
Það stendur enn upp á þau að
ganga þannig frá hnútum að sómi sé
að. Eina leiðin til að fullnægja því
markmiði að öllum þeim sem það
velja að sækja sjó innan þess kerfis
er að tryggja með lögum ákveðinn
dagafjölda til veiðanna.
Vissulega mun aflinn undir
slíku fyrirkomulagi sveiflast um
einhverjar þúsundir tonna til og
frá, en sú stærð er hjóm eitt hjá
þeim frávikum sem eru innbyggð í
kvótakerfið, s.s. VS afli, undirmál,
tegundatilfærslur og fleira.
Þá er ótalið brottkastið sem er
stærsta óræða stærðin í heildar-
myndinni.
Eftirleikur matvælaráðherra er
auðveldur.
Höfundur er formaður
Landssambands smábátaeigenda.
NYTJAR HAFSINS
Ýmsar bátavörur
á hagstæðu verði
S. 666 6012 / batavorur.is
Lensidælur og rofar, ljóskastarar, siglingaljós, sæti
og standar, ryðfrí handföng, pollar og kefar, rofabretti
og rafmagnsvörur, stýrisbúnaður og ýmislegt fleira.
Smábátaútgerð:
72,3%
Niðurstöður skoðanakönnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands benda til þess að meirihluti landsmanna, 72,3%, vilja veg smábátaútgerðar mun
meiri en nú er. Mynd / Þórdís Una
Arthur Bogason
arthur@smabatar.is
Grásleppa. Fyrir Alþingi liggja frumvörp um kvótasetningu grásleppu og
umbyltingu strandveiða. Mynd / Haukur Hólmsteinsson