Bændablaðið - 11.05.2023, Blaðsíða 36

Bændablaðið - 11.05.2023, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023 „Okkar fyrsta verk í fyrra var að kaupa áburðinn – einmitt á besta tíma,“ segir Steinþór kaldhæðinn. „Foreldrar mínir fylgdu sínum lömbum til loka sláturtíðar en við tókum svo við búinu alfarið þá, eftir að hafa lagt drög að næstu framleiðslu, það er dilkum í haust.“ Kynntust í Bændaskólanum Eydís Anna er frá Finnmörk í Fitjárdal í Vestur-Húnavatnssýslu, frá sambærilegu sauðfjárbúi þar – en þau Steinþór kynntust í Bændaskólanum á Hvanneyri í búfræði þar sem þau voru saman í bekk. „Þetta er svona ekta,“ segir Steinþór og brosir. „Við erum ekki fyrsta bændaparið sem kynnist þar.“ Þegar Steinþór er spurður um framtíðarplön, segir hann að þau kunni vel við sig þarna og þetta líferni. „Að öllu óbreyttu verður þetta okkar lífsstíll og atvinna – það er að segja ef það verða forsendur til þess. Það er auðvitað lykilatriðið. Það er oft talað um að það sé komið að tímamótum í þessari búgrein en núna er ástandið þannig að það hefur sjaldan verið eins mikil eftirvænting eftir almennilegum skilaboðum stjórnvalda um hvað þau vilji gera til framtíðar,“ segir hann. Beðið eftir skýrum skilaboðum stjórnvalda Í sauðfjárrækt hefur þróunin verið sú að fé fækkar jafnt og þétt í landinu. Að vissu leyti hefur sú tilhneigingin orðið að þau bú sem eftir verða stækka mörg hver en önnur minnka niður í frístundastærðir, þar sem ábúendur stunda aðra atvinnu meðfram búrekstrinum. „Já, það virðist vera,“ svarar Steinþór. „En það eru þó margir sem enn bíða og sjá hvað verður. Í raun er beðið eftir skýrum skilaboðum stjórnvalda. Það er ekkert sjálfsagt mál til dæmis að kynslóðaskipti eigi sér stað á sauðfjárbúum, með himinháum vöxtum á lánum og verð á aðföngum í hæstu hæðum, það á líka við í fleiri búgreinum. Afurðaverð hefur kannski haldið nokkuð í við hækkun aðfanga en samt erum við enn nokkuð langt frá því að það hafi tekist að leiðrétta þau eins og þörf var á, fyrir þessar hækkanir á áburði til dæmis. Það er auðvitað forvitnilegt að sjá hvað kemur út úr endurskoðun búvörusamninganna og svo er stutt í nýjan búvörusamning í framhaldi af því,“ segir Steinþór þegar hann er spurður út í hvenær von sé á skilaboðum stjórnvalda. Ánægja með núverandi fyrirkomulag Steinþór segir að lesa megi sitthvað út úr áformum stjórnvalda með því að rýna í þingsályktunartillögu um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland, en drög að henni lágu í Samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar í febrúar. „Þar er snert á talsverðum breytingum á styrkjafyrirkomulagi við land- búnaðinn, til dæmis hvað varðar framleiðslustýringu, og svo eru þar hugmyndir um aukna styrki út á landbúnaðarland á kostnað beinna styrkja við búgreinar. Við höfum lýst ánægju okkar að mestu leyti með kerfið okkar eins og það er nú – svona í grundvallaratriðum. Við erum núna með þetta greiðslumark til dæmis í sauðfjárræktinni, sem er svona grundvöllurinn að stuðnings- fyrirkomulagi við greinina í dag, það er góður fyrirsjáanleiki í því. Markmiðið er auðvitað að tryggja framleiðslu á þessum búvörum, að þær séu aðgengilegar íslenskum neytendum á viðráðanlegu verði og að rekstraröryggi bænda sé tryggt. Þetta eru mikilvægir punktar þegar stefnt er að góðu fæðuöryggi, að landbúnaðurinn byggi á traustum grunni. Það er mikilvægt þegar á reynir. Og með það í huga er kannski ekkert óeðlilegt að ríkið komi inn með sterkari hætti, með meira fjármagni. „En jú, það er frekar óheppilegt að vera að skipta ítrekað um stefnu í þessu máli,“ segir Steinþór um þá staðreynd að sauðfjárbændur hafa í tvígang samþykkt niður- tröppun á greiðslumarki í gegnum búvörusamninga en vilja nú við endurskoðun þeirra halda í fyrirkomulagið. „Staðreyndin er hins vegar sú að ungir bændur hafa hlutfallslega fjárfest mikið í heildargreiðslumarki sauðfjárbænda og ef það er ekki hægt að treysta á stuðning á þeim grunni þá rýrnar fyrirsjáanleiki rekstrargrundvallar þeirra um leið. Sérstaklega ef hluti þess þróast yfir í eitthvað annað form stuðnings sem síðan er breytt kannski á nokkurra ára fresti,“ segir Steinþór. Hann segir að það sé þó jákvætt það sem hafi kvisast út um búvörusamningana að þeir verði gerðir í sátt á milli samningsaðila, vonandi þýði það að ekki eigi að neyða sauðfjár- bændur til niðurtröppunar á greiðslu- marki til dæmis. Fleiri óvissuþættir Fleiri þættir í rekstrarumhverfi sauðfjárbænda eru óvissu háðir, að sögn Steinþórs. „Þrátt fyrir að nú sé komið vel yfir ár síðan bændur fóru að leggja drög að framleiðslunni þetta árið eru enn ekki komnar fram afurðaverðskrár sláturleyfishafa.“ Þegar Steinþór er spurður um hvernig hann sjái hinar búgreinarnar þróast á næstu árum, hvort til dæmis bændur skoði það í auknum mæli að blanda búgreinum saman á bæjum til að styrkja afkomumöguleika sína – segir hann að það sé til umræðu og hafi í raun þróast að vissu leyti í þá átt með aukinni ferðaþjónustu í landinu. „Já, hún á góða samleið með landbúnaði upp að vissu marki. En um leið má ekki gleyma mikilvægi þess að fólk verði að geta einbeitt sér að kjarnanum í búrekstri sínum, sérhæfing leiðir til þróunar og aukinnar hagkvæmni búgreina. Það er víst ekki hægt að gera allt þó vissulega séu góðir kostir við það að reka fjölbreytt og blönduð bú.“ Möguleikar með auknu fjármagni til akuryrkju „En sjálfsagt opnast einhverjir möguleikar fyrir bændur með búfjárhald nú þegar stjórnvöld hafa ákveðið að setja mikið fjármagn í akuryrkju og grænmetisframleiðslu – og að endurvekja eyðijarðir. Á slíkum jörðum gæti verið minni tilkostnaður að fara út í búskap heldur en að fjárfesta í jörðum sem hafa verið í ábúð. Hins vegar til að koma nautgripa- og sauðfjárbændum til bjargar, sem margir hverjir eru í alvarlegum rekstrarvanda, verður að koma sterkt útspil frá stjórnvöldum. En jú, við verðum að fara að hugsa út fyrir boxið. Til dæmis bara með aukinni skógrækt þá munu skapast alls konar hliðargreinar út frá henni sem vonandi hjálpa til við að efla byggðafestu,“ segir Steinþór. Hann er ekki sannfærður um að lagasetning sem heimili meiri samvinnu á milli kjötafurðastöðva muni breyta miklu um afkomu bænda. „Ég held bara að traust bænda gagnvart afurðastöðvunum sé ekki nógu mikið. Fólk spyr sig í ljósi sögunnar hvort það verði virkilega til góðs fyrir bændur þótt afurðastöðvarnar fái að vinna meira saman – þær hafa sýnt að þær virðast hugsa mikið um eigin hag.“ Hann segir að margir hafi spurt sig að þessu sömuleiðis í tengslum við sameiginleg hagsmunasamtök bænda og samtaka fyrirtækja í landbúnaði í ljósi þess að í dag virðist vera unnið að ólíkum markmiðum og hagsmunum. Það séu þó mikil tækifæri fólgin í því og mikilvægt að öll keðjan vinni betur saman, það sé til hagsbóta fyrir alla. Nýliðun nauðsynleg Steinþór sat búgreinaþing sauðfjár- bænda 2023 og síðan Búnaðarþing 2023 sem fulltrúi Samtaka ungra bænda. Á Búnaðarþingi kom hann að gerð ályktunar um nýliðun í landbúnaði, sem svo rataði inn í heildarstefnumörkun Bændasamtaka Íslands. Í henni segir meðal annars að nýliðun í landbúnaði sé nauðsynleg til að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar og byggðafestu. Auka þurfi framlög í nýliðunarstuðning, endurskoða fyrirkomulagið, sem og að leita nýrra leiða til að styðja við kynslóðaskipti. Atvinnugreinin þurfi aðgang að þolinmóðu fjármagni á lágum vöxtum til að nýliðar sjái sér hag í að velja landbúnað umfram annan rekstur. Til að svo megi verða þurfi landbúnaðarstefnan að vera til lengri tíma og megi ekki sveiflast vegna geðþóttaákvarðana einstakra valdhafa hverju sinni. Framleiðendur verði að geta búið við fyrirsjáanleika og stöðugleika. Lagt er til að styðja sérstaklega við þá frumkvöðla sem hefja ræktun á nýjum tegundum, enda þurfi að auka fjölbreytni í íslenskri frumframleiðslu matvæla. „Það er ljóst að við búum við þau skilyrði til lántöku þar sem lánveitendur eru ekki mjög þolinmóðir. Fyrir venjulegar fjölskyldur er það bara orðið ansi stór biti að ráðast í fjárfestingar á bújörðum – og í raun óraunhæft að þær geti staðið undir þeim LÍF&STARF Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is Ungir bændur: Íslenskur landbúnaður á tímamótum – Nýliðun er nauðsynleg til að tryggja fæðuöryggi og byggðafestu, segir Steinþór Logi Arnarson Á Stórholti í Dölum, við utanverðan Gilsfjörð, búa þau Steinþór Logi Arnarsson og Eydís Anna Kristófersdóttir. Þau tóku á síðasta ári formlega við sauðfjárbúskapnum af foreldrum Steinþórs, sem þarna eiga rætur. Þau búa nú í íbúðarhúsnæðinu á jörðinni með níu mánaða son sinn, Kristófer Loga, en foreldrarnir eru fluttir á aðra jörð í sömu sveit þar sem faðir Steinþórs ólst upp. Steinþór tók við formennsku í Samtökum ungra bænda í lok janúar á síðasta ári og nú nýverið við formennsku í Félagi sauðfjárbænda í Dalasýslu. Hann telur íslenskan landbúnað að mörgu leyti standa á tímamótum. Steinþór Logi Arnarson og Eydís Anna Kristófersdóttir með soninn Kristófer Loga. Þau tóku formlega við búskapnum á Stórholti snemma á síðasta ári af foreldrum Steinþórs. Myndir / smh
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.