Bændablaðið - 11.05.2023, Síða 44

Bændablaðið - 11.05.2023, Síða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023 LÍF&STARF Í Sænautaseli á Jökuldalsheiði hefur um árabil verið rekin ferðaþjónusta yfir sumartímann. Á þessu gamla heiðabýli hafa gestir og gangandi getað gengið um torfhlaðin bæjarhúsin með sínum gildu röftum og séð ýmis amboð og búsmuni sveitabúskapar frá byrjun tuttugustu aldar, auk húsdýra, svo sem kýr, kinda, hesta, hæna, katta og hunda. Í gömlu fjárhúsi er rekin veitingastofa þar sem meðal annars kaffi og lummur eru á boðstólum. Náttúrufegurðin og kyrrðin á heiðinni er einstök og útsýn víð, auk þess sem Sænautavatn skammt frá bænum er fallegt heiðarvatn, með stærri vötnum á Jökuldalsheiði og 23 m djúpt, þar sem veiðist silungur. Að jafnaði er Sænautasel opið frá byrjun júní og fram í september. Lilja Hafdís Ólafsdóttir, bóndi á Merki á Efri-Jökuldal, rak ferðaþjónustuna í Sænautaseli nær sleitulaust í þrjátíu ár, eða allt frá því að húsin voru endurbyggð. Síðasta sumarið hennar sem rekstraraðili var í fyrra en eftir það lagði hún hið metnaðarfulla uppbyggingarverkefni í hendur nýs aðila og tekur sá við góðu búi, enda langur vegur frá því er Lilja bjó fyrstu sumrin í gamla torfbænum, var með kú í torffjósinu og vaskaði upp í læknum. Sænautasel samt við sig Björn Hallur Stefánsson, einnig búsettur í Merki, tók við rekstri Sænautasels í fyrrahaust. Hann er ekki ókunnugur rekstrinum því hann hafði verið Lilju til aðstoðar frá 1997. Björn Hallur segir að ferðaþjónustan í sumar verði með hefðbundnum hætti „Jú, þetta verður haft í sama hefðbundna stílnum, hann hefur reynst vel,“ segir hann. Boðið verði upp á gistingu í gamla bænum, tjaldsvæði án rafmagns, leiðsögn um bæjarhúsin og tekið á móti hópum í veitingar í fjárhúsinu ef pantað er fyrir fram. Þar séu á boðstólum lummur, kaffi og kakó og jafnvel eldaður silungur úr vatninu ofan í hópa. Gestir geta keypt veiðileyfi í Sænautavatn og hægt er að leika sér á hjólabátum á Kílnum þegar þannig viðrar. Björn Hallur segist halda að opnað verði fyrir ferðafólk að Sænautaseli um eða eftir miðjan júní. „Við opnum þegar vegurinn hefur þornað og búið er að hefla hann,“ og er bjartsýnn fyrir komandi sumri. Fyrirmynd Bjarts Sænautasel stendur í 525 m.y.s. og var byggt árið 1843 úr landi Hákonarstaða. Þar var búið í um öld og var um tíma búseta á allt að sextán bæjum á Jökuldalsheiðinni. Byggð eyddist að mestu leyti í Öskjugosi 1875 og Sænautasel stóð þá autt um fimm ára skeið. Síðasta fólkið flutti þaðan 1943. Sænautasel var endurbyggt árið 1992 og aftur að hluta 2010. Bærinn er um fimm kílómetra frá gömlu þjóðleiðinni um Möðrudalsöræfi og Jökuldalsheiði. Ýmsir munu kannast við að fyrirmynd Bjarts í Sumarhúsum í skáldsögu Halldórs Kiljan Laxness, Sjálfstæðu fólki, hefur verið talin komin frá Sænautaseli en Kiljan gisti þar á ferð sinni um Austurland haustið 1926. Er skáldsagan talin spanna tímabilið 1899 til 1921. Fleiri skáld rituðu um heiðabúskapinn svokallaða, svo sem Gunnar Gunnarsson og Jón Trausti. /sá Ferðamenn og heimafólk leggja gjarnan leið sína í Sænautasel á Jökuldalsheiði til að skoða gamla búskaparhætti heiðabýlisins. Áætlað er að opna laust eftir miðjan júní. Myndir / SÁ Bær var fyrst reistur í Sænautaseli árið 1843, endurbyggður 1992 og að hluta 2010. Á sumrin er þar drjúg umferð gesta. Iðulega er tekið á móti hópum í Sænautaseli og þá jafnvel slegið upp matarveislu þar sem boðið er upp á nýveiddan silung úr vatninu við bæinn. HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Jökuldalsheiði: Senn lifnar yfir Sænautaseli – Nýr rekstraraðili tekinn við og ætlar að halda áfram að glæða staðinn lífi Styrktartónleikar fyrir fjölskyldu Guðjóns Styrktartónleikar kóra og tónlistarfólks í Rangárþingi verða haldnir á Laugalandi í Holtum sunnudagskvöldið 14. maí kl. 20. Þeir sem standa að tónleikunum eru Hringur, sem er kór eldri borgara, Karlakór Rangæinga, Kirkjukór Kálfholtskirkju, Kvennakórinn Ljósbrá, Miðtúnssystur, Vinir Jenna og Öðlingarnir. Tónleikarnir eru til styrktar fjölskyldu Guðjóns Björnssonar, bónda á Syðri-Hömrum í Ásahreppi, sem lést af slysförum 17. mars síðastliðinn. Aðgangseyrir er 4.000 krónur. Fjölskyldan á Syðri–Hömrum í fjósinu á bænum. Frá vinstri: Helga Björg, Stefán Orri, Helgi Björn, Heiðdís Rún og Guðjón. Allur ágóði tónleikanna rennur til fjölskyldu Guðjóns heitins. Mynd/Aðsend Steinunn Ásmundsdóttir steinunn@bondi.is

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.