Bændablaðið - 11.05.2023, Blaðsíða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023
Vorið 2023 sótti höfundur
garðyrkjuráðstefnu í Þýskalandi.
Ein aðaláherslan var á erindi og
veggspjöld sem fjölluðu um hvaða
ræktunarefni væri hægt að nota í
staðin fyrir sphagnum.
S p h a g n u m
er innfluttur
torfmosi (barna-
mosi, hvítmosi)
og ýmist kall-
aður mómosa-
mold, svarðmold
eða torf. Í áratugi
hefur sphagnum
sannað sig sem
ræktunarefni í garðyrkju því það
hefur marga eðlis- og efnafræðilega
eiginleika sem eru hagstæðir fyrir
vöxt plantna. Því hefur sphagnum
verið aðalræktunarefni í framleiðslu
á grænmeti, berjum, skrautblómum
og trjám. Hins vegar, þegar
sphagnum brotnar niður, losnar
koltvísýringur sem annars myndi
haldast bundinn í jarðvegi til
lengri tíma litið. Því þarf nútíma
vararæktunarefni að láta sér nægja
minna sphagnum.
Stjórnvöld Þýskalands hafa
lagt mikið fjármagn í að finna
ræktunarefni sem væri hægt að nota
í staðinn fyrir sphagnum. Stefnt er
að því að leggja sphagnum alfarið
niður fyrir áhugamálaræktendur
árið 2026. Í atvinnuskyni í garðyrkju
á að skipta sphagnum að mestu
út fyrir lok áratugarins (2030).
Til að ná þessu markmiði verða
rannsóknar- og þróunarverkefni
víðs vegar um Þýskaland ásamt
sýniverkefnum styrkt, þar sem
garðyrkjustöðvar verða studdar til
að skipta yfir í ræktunarefni með
minna sphagnum. Jafnframt verður
veitt einstaklingsbundin aðstoð
meðan á umbreytingum stendur.
Því vinna margar rannsóknar-
stofnanir í Þýskalandi af miklum
þunga að þessu. Niðurstöður
rannsóknaverkefnanna sem kynntar
voru á garðyrkjuráðstefnunni
verður fjallað um hér fyrir neðan,
þar sem þessi viðfangsefni snerta
einnig ræktun hérlendis.
Almennt má segja að mikil-
vægustu ræktunarefni í staðinn
fyrir sphagnum eru viðartrefjar,
molta, mold úr trjábörkum og
efni sem fellur til úr kókosiðnaði.
Að auki henta leifar frá hör, strá
frá miscanthus, hrísgrjónahýði,
hampi og pálmatrefjum, kol, leifar
úr kaffivinnslu eða sauðfjárull
sem ræktunarefni auk annarra
ræktunarefna.
En ef áætlunin er að skipta
sphagnum út, þarf líka að aðlaga
ræktunaraðferðir (vökvun,
áburðargjöf, verndun plantna)
miðað við notkun vara-
ræktunarefna.
Ræktun með minna sphagnum
krefst hærri framleiðslukostnaðar
samanborið viðð notkun hefð-
bundins ræktunarefnis með
sphagnum vegna hærri kostnaðar
fyrir ræktunarefni, annarri þörf
fyrir vökvun, áburðargjöf og
verndun plantna. Að auki má
reikna með hærra hlutfalli af
ónothæfum plöntum. Það má
segja að minni sphagnum-notkun
sem ræktunarefni hefur áhrif
á plönturnar og eru áhrifinn
tegundarsértæk.
Það þýðir að mismunandi
ræktunarefni geta verið nauð-
synleg fyrir mismunandi tegundir
af plöntum. Það er ekki til einstakt
vararæktunarefni sem hefur reynst
vel, heldur blöndur af mismunandi
ræktunarefnum fyrir mismunandi
kringumstæður til að tryggja
jákvæða eiginleika eins og t.d. pH
og næringarinnihald.
Þess vegna er í framhaldi
einungis talað um
ræktunarefni með minna
sphagnum og ekki gefið
upp hversu mikið magn
af hverju efni er notað
í blöndurnar.
Tekna r e ru
saman niðurstöður
úr tilraunum sem voru
kynntar á ráðstefnunni
við ræktun með minna
sphagnum samanborið við
hefðbundin ræktunarefni (við
hefðbundið magn af sphagnum):
– Grænmeti og kryddjurtir:
Þegar basil var ræktað með minna
sphagnum minnkaði spírunarhlutfall
úr 98% í 96%. Ræktunartími
var um einni viku lengur miðað
við hefðbundin ræktunarefni.
Þörf var á tíðari vökvun.
Meiri áburðargjöf og meira eftirlit
var nauðsynlegt. Ræktunarefni með
minna sphagnum kostaði meira.
Salat og basil voru með 50% minni
blaðmassa og plönturnar voru
minni samanborið við plönturnar
sem fengu ræktunarefni með
hefðbundið sphagnummagn.
–Berjaræktun: Jarðarber voru
með sama uppskerumagn eins og
með hefðbundin ræktunarefni.
–Skrautplöntur: Pétúnia var
með 50% minni blaðmassa þegar
minna sphagnum-magn var notað
samanborið við plönturnar sem
fengu ræktunarefni með hefðbundið
sphagnum-magn. Plönturnar voru
einnig minni.
–Trjárækt: Vöxtur og gæði hjá
rósinni ‘Gärtnerfreude‘ og Weigela
‘Bristol Ruby‘ var minni í tveim
af fimm ræktunarefnum með
minna sphagnum, á meðan í þrem
ræktunarefnum var vöxturinn
nokkuð sambærilegur og við
hefðbundin ræktunarefni. Hjá
gullrunna var enginn munur þegar
minna sphagnum var notað.
Framleiðsla á Thúja oc. ‘Smaragd‘
var aðeins með litla lækkun í
framlegð, á meðan framlegð við
framleiðslu á Hypericum ‘Hidcote‘
var mikið minni með minnkandi
notkun á sphagnum. Ónýtar
plöntur voru að aukast frá 5% og
10% til 20% og 30% þegar minna
sphagnum var notað.
Það er því hægt að draga þá
ályktun að fleiri vísindarannsóknir
eru nauðsynlegar til að skilja
áhrif af minni sphagnum-notkun í
ræktunarefni á mikilvægi plantna.
Niðurstöðurnar eru hvati til að hugsa
um hvaða vararæktunarefni fyrir
sphagnum væri hægt að flytja inn
til landsins sem mun uppfylla kröfur
hjá íslenskum garðyrkjubændum.
Þar sem ræktunarefni með minna
sphagnum mun leiða af sér hærri
framleiðslukostnað, þarf jafnvel að
velta fyrir sér hvort íslenskt hráefni
(t.d. íslenskri mómold, afurð úr
íslenskum skógi) bjóði upp á
grundvöll fyrir hentugt ræktunarefni
eða mismunandi ræktunarefni fyrir
mismunandi ræktunarástæður.
Því er ljóst að það gæti verið
spennandi og mikilvægt nýsköpunar-
og tilraunarverkefni til nokkurra
ára með það markmið að þróa
íslenska mold.
Christina Stadler,
deild Ræktunar og fæðu hjá LbhÍ.
Notaðir bílar
Sjáðu fleiri bíla á
notadir.benni.is Krókhálsi 9 | Reykjavík | 590 2035
SsangYong Rexton ‘17, sjálfskiptur,
ekinn 102 þús. km. Verð: 3.990.000 kr.
Jaguar I-Pace S EV400, rafmagn, ‘21, sjálfsk.,
ekinn 21 þús. km. Verð: 9.790.000 kr.
Jeep Compass Trailhawk Phev ‘22, sjálfsk.,
ekinn 12 þús. km. Verð: 6.990.000 kr.
331830 440033 8010564x4
4x4
4x4
Opel Crossland X ‘19, beinskiptur,
ekinn 75 þús. km. Verð: 2.490.000 kr.
Opel Corsa Enjoy ‘16, beinskiptur,
ekinn 110 þús. km. Verð: 990.000 kr.
Hyundai Tucson Premium ‘21, sjálfskiptur,
ekinn 51 þús. km. Verð: 6.890.000 kr.
801361 591957 340107
Opel Grandland X ‘19, sjálfskiptur,
ekinn 89 þús. km. Verð: 3.190.000 kr.
Nissan Juke ‘20, sjálfskiptur,
ekinn 60 þús. km. Verð: 3.490.000 kr.
Toyota Hilux ‘15, beinskiptur,
ekinn 126 þús. km. Verð: 5.290.000 kr.
404821 527247 203956
GOTT ÚRVAL
NOTAÐRA BÍLA
Vegna mikillar sölu vantar okkur allar tegundir bíla á skrá!
Birt með fyrirvara um mynd- og textabrengl
notadir.benni.is
Rafm
agn
Plu
g-in
Hybrid
Plu
g-in
Hybrid
4x4
4x4
Á FAGLEGUM NÓTUM
Hvað á að nota í staðinn fyrir
sphagnum í garðyrkju?
Christina Stadler.
Ræktunarefni í staðinn fyrir sphagnum. Mynd / Colourbox, ZHAW
Sphagnum. Mynd / ZHAW