Bændablaðið - 11.05.2023, Page 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023
ÞÓR HF
thor.is
ZAX 1403
Tveggja sekkja dreifari.
Með jaðarbúnaði og vönduðu segli.
BÆJARHRAUNI 12
220 HAFNARFIRÐI
S. 555 4800
Hafnargata 52
260 Reykjanesbæ
S. 421 7510
Hrísmýri 7
800 Selfossi
S. 482 4200
Furuvöllum 15
600 Akureyri
S. 535 9085
Sólvangi 5
700 Egilsstöðum
S. 471 1244
STÓRVERSLUN STÓRVERSLUN
BÍLDSHÖFÐA 12
110 REYKJAVÍK
S. 535 9000
Skoðaðu vöruúrvalið á www.bilanaust.is
BRENDERUP KERRUR
Bændasamtök Íslands og fleiri
aðilar, á borð við Landsvirkjun,
gerðu alvarlegar athugasemdir
við frumvarp ríkisstjórnarinnar
um breytingu á raforkulögum
sem opnar á að nýir notendur
verði rukkaðir um óskilgreindan
viðbótarkostnað.
Landsvirkjun
bendir á að
frumvarpið geti
unnið gegn
markmiðum um
orkuskipti og
samdrátt í
kolefnislosun.
Bændasamtök
Íslands benda á
hið augljósa, þ.e.
að óskilgreindur
viðbótarkostnaður gangi gegn
markmiðum byggðaáætlunar
sem og tilgreindum markmiðum
sem sett eru fram í matvæla- og
landbúnaðarstefnum stjórnvalda.
Það er óskiljanlegt að meirihluti
atvinnuveganefndar, með Stefán Vagn
Stefánsson, þingmann Framsóknar-
flokksins, í formennsku, taki í engu
mið af alvarlegum athugasemdum og
snúi jafnvel út úr þeim í nefndaráliti
sem lagt var fram við aðra umræðu
um málið á þingi.
Í umræddu nefndaráliti er reynt
að telja almenningi trú um það að
sérstakur viðbótartengikostnaður
á nýja notendur í hinum dreifðu
byggðum geti jafnvel hvatt til
framkvæmda!
Það á eftir að fjalla um málið í
þriðju umræðu á þingi og mikilvægt
er að ná fram breytingum á málinu,
þannig að framþróun og nýsköpun á
landsbyggðinni sé ekki sett í uppnám.
Svo undarlegt sem það nú er að á
sama tíma og ríkisstjórnin gefur út
opna gjaldheimtu á nýsköpun í hinum
dreifðu byggðum, þá er formaður
Framsóknarflokksins með frumvarp
sem kallast Samþætting áætlana.
Sigurjón Þórðarson,
varaþingmaður Flokks fólksins
í Norðvesturkjördæmi.
LESENDARÝNI
Atvinnuuppbygging í hinum
dreifðari byggðum í uppnámi
Sigurjón
Þórðarson.
„Í umræddu nefndaráliti er reynt að telja almenningi trú um það að sérstakur
viðbótartengikostnaður á nýja notendur í hinum dreifðu byggðum geti jafnvel
hvatt til framkvæmda!“
OPINN FUNDUR UM HEIMILDIR SVEITARFÉLAGA
TIL AÐ HEIMILA BEIT Í EIGNARLÖNDUM EINKAÐILA
verður haldinn í sviðslistasalnum/hlöðunni
í Leifshúsum á Svalbarðsströnd í Eyjafirði
fimmtudagskvöldið 18.maí n.k. kl. 20.
Í kjölfar úrskurðar umboðsmanns Alþingis
frá s.l. hausti hafa orðið nokkrar
umræður um afleiðingar hans.
Mér vitanlega hefur lítið sem ekkert samtal
þó átt sér stað um málið milli þeirra sem það varðar
þ.e. landeigenda, sveitarstjórna og sauðfjárbænda.
Ég vil því uppá mitt einsdæmi leggja mitt lóð á
vogarskálarnar með boðun þessa fundar og
undirstrika þannig vilja minn til að leita leiða sem
tryggt geta friðsæla tilvist sauðfjárræktar í landinu.
Ég skora á sveitarstjórnarfólk og Alþingismenn að
kynna sér málefnið því hætt er við að strax í sumar
stefni í óefni ef ekkert verður að gert.
STEFÁN TRYGGVA- OG SIGRÍÐARSON,
EINLÆGUR ÁHUGAMAÐUR UM FRIÐHELGI EIGNARRÉTTARINS
OG FRAMTÍÐ SAUÐFJÁRRÆKTAR Í LANDINU.